Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 423. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 640  —  423. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um hjúkrunarþjónustu við aldraða.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hversu margir makar vistmanna á öldrunarstofnunum eru nú á biðlista eftir að komast einnig á öldrunarstofnun?
     2.      Hversu margt fólk í hjónabandi eða sambúð er ekki vistað á sömu öldrunarstofnun og makinn? Hve margir hafa verið vistaðir þannig á undanförnum fimm árum?
     3.      Finnst ráðherra boðlegt að aðskilja öldruð hjón eða sambýlisfólk mánuðum og árum saman síðustu æviárin á þennan hátt?