Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 429. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 646  —  429. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um Fjarskiptasafn Landssímans.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



    Hvaða áform eru uppi um framtíð og starfsemi Fjarskiptasafns Landssímans í gömlu Loftskeytastöðinni við Suðurgötu nú þegar Síminn hefur verið seldur og Þjóðminjasafninu falið að varðveita munina úr safninu?