Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 438. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 659  —  438. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um fyrirframgreiðslur námslána.

Frá Katrínu Júlíusdóttur.



     1.      Telur ráðherra koma til greina að breyta útlánareglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna þannig að lán verði greidd út fyrir fram?
     2.      Hversu hátt hlutfall lántakenda sem úrskurðaðir voru lánshæfir stóðst ekki kröfur um einingaskil áður en lán voru afgreidd á árunum 2000–2005?