Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 467. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 694  —  467. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um endurgreiðslur öryrkja til Tryggingastofnunar ríkisins.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hve margir öryrkjar þurftu að endurgreiða Tryggingastofnun ríkisins ofgreiddan lífeyri sem rekja má til greiðslna til þeirra úr lífeyrissjóðum, um hve miklar fjárhæðir var að ræða í heild og að meðaltali á hvern öryrkja?
     2.      Hvað má áætla að meðalráðstöfunartekjur fyrrgreinds hóps öryrkja skerðist mikið vegna endurgreiðslna til Tryggingastofnunar á endurgreiðslutímanum?
     3.      Að hve miklu leyti bera Tryggingstofnun og lífeyrissjóðirnir ábyrgð á því að upplýsingar um greiðslur frá sjóðunum berist stofnuninni eða er það mat ráðherrans að öryrkjarnir sjálfir beri alfarið þá ábyrgð?
     4.      Er ráðherra reiðubúinn að beita sér fyrir því með breytingum á lögum eða reglum að endurgreiðslukrafan verði felld niður og skerðing á lífeyri taki einungis gildi frá þeim tíma þegar Tryggingastofnun varð ljóst að um ofgreiðslu hefði verið að ræða?