Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 504. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 737  —  504. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um slys á börnum.

Frá Katrínu Júlíusdóttur.



     1.      Hversu mörg börn yngri en 15 ára slösuðust við leik á snjóþotum, sleðum og vélsleðum á árunum 2000–2005? Svar óskast sundurliðað eftir árum, aldri, kyni og búnaði.
     2.      Telur ráðherra að grípa þurfi til aðgerða til að auka öryggi barna við notkun á þessum búnaði?