Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 329. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 740  —  329. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78 26. maí 1997.

Frá meiri hluta allsherjarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Kristján Björnsson, formann löggjafarnefndar kirkjuþings, Guðmund Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóra kirkjuráðs, og Kristinn Jens Sigurþórsson frá Prestafélagi Íslands.
    Umsagnir bárust frá Biskupsstofu og Prestafélagi Íslands.
    Með frumvarpinu er lagt til að kirkjuþing hafi vald til að skipa kjördæmum sínum með sama hætti og sóknum, prestaköllum og prófastdæmum. Þá er lagt til að kirkjuþing hafi vald til að ákveða fjölda fulltrúa á kirkjuþingi í stað þess að slíkt sé lögbundið. Auk þess er lögð til sú breyting á kjöri fulltrúa á kirkjuþingi, sem samkvæmt gildandi lögum eru prestar og leikmenn úr hópi sóknarnefndarfólks, að í stað orðsins „prestar“ verði orðið „vígðir“ notað. Þar sem djáknar eru vígðir felur breytingin í sér að þeir teljast ekki lengur til leikmanna á kirkjuþingi. Skulu leikmenn verða fleiri á kirkjuþingi en vígðir.
    Nefndinni er kunnugt um það sjónarmið Prestafélags Íslands að breytingarnar hafi ekki verið nægilega vel kynntar en telur engu að síður að þær hafi hlotið nauðsynlega umfjöllun, kynningu og afgreiðslu innan kirkjunnar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldri

BREYTINGU:

    3. gr. orðist svo:
    Lög þessi öðlast þegar gildi.

    Ágúst Ólafur Ágústsson, Birgir Ármannsson og Guðrún Ögmundsdóttir skrifa undir álitið með fyrirvara.
    Kolbrún Halldórsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er með fyrirvara við álitið.
    Björgvin G. Sigurðsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 7. febr. 2006.



Bjarni Benediktsson,


form., frsm.


Jónína Bjartmarz.


Ágúst Ólafur Ágústsson,


með fyrirvara.



Birgir Ármannsson,


með fyrirvara.


Kjartan Ólafsson.


Sigurður Kári Kristjánsson.



Guðrún Ögmundsdóttir,


með fyrirvara.