Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 523. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 765  —  523. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um dagpeninga til foreldra langveikra barna.

Frá Söndru Franks.



    Hyggst heilbrigðisráðherra beita sér fyrir því að foreldrar eða forráðamenn langveikra barna sem búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins og þurfa að fara með börn sín til læknismeðferðar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi fái greidda dagpeninga á meðan meðferð stendur?