Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 771, 132. löggjafarþing 329. mál: staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar (kjördæmi kirkjuþings o.fl.).
Lög nr. 6 16. febrúar 2006.

Lög um breyting á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78 26. maí 1997.


1. gr.

     18. gr. laganna orðast svo:
     Kirkjuþing ákveður skipan umdæma vígslubiskupa.

2. gr.

     1.–3. mgr. 21. gr. laganna orðast svo:
     Kirkjuþingsfulltrúar eru kosnir leynilegri kosningu til fjögurra ára í senn.
     Kirkjuþing ákveður skipan kjördæma kirkjuþings og fjölda kirkjuþingsmanna.
     Á kirkjuþingi skulu leikmenn vera fleiri en vígðir.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 14. febrúar 2006.