Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 537. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 784  —  537. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráherra um stofnstærðarmælingar á loðnu.

Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.



     1.      Hve margar stofnstærðarmælingar hafa verið gerðar á loðnu nú í janúar og febrúar?
     2.      Hvenær voru mælingarnar gerðar og með hvaða rannsóknaskipum?
     3.      Hvernig voru leiðarlínur rannsóknaskipa við mælingarnar og hvernig leit þéttleikadreifing loðnunnar út, færð á kort eftir mæligildum?
     4.      Hver var áætluð stærð loðnuárganga í hverri mælingu í fjölda og tonnum?
     5.      Hversu áreiðanlegar eru mælingarnar taldar af fiskifræðingum sem stjórnuðu leiðöngrunum?


Skriflegt svar óskast.