Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 378. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 805  — 378. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, nr. 7/1975 með síðari breytingum.

Frá samgöngunefnd.



         Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur, Sigurberg Björnsson og Jóhann Guðmundsson frá samgönguráðuneytinu.
    Nefndinni bárust skriflegar umsagnir um málið frá Veðurstofu Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Siglingastofnun Íslands, Félagi skipstjórnarmanna, Landssambandi smábátaeigenda, Sjómannasambandi Íslands, Samtökum verslunar og þjónustu, Ríkislögreglustjóra og Vélstjórafélagi Íslands.
    Frumvarp þetta felur fyrst og fremst í sér endurþýðingu á gildandi alþjóðareglum í heild auk þess sem settar hafa verið nokkrar nýjar reglur í samræmi við ákvæði alþjóðareglna. Helstu breytingar sem frumvarpið felur í sér varða nýjar reglur um svokölluð svifför en það eru farartæki sem nýta eigin loftpúðaáhrif til þess að svífa rétt ofan við yfirborðið.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Jón Bjarnason sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hann samþykkur áliti þessu.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    

Alþingi, 15. febrúar 2006.


Hjálmar Árnason,
varaform., frsm.
Anna Kristín Gunnarsdóttir.
Guðjón Hjörleifsson.

Kristján L. Möller.
Sigurrós Þorgrímsdóttir.
Guðjón A. Kristjánsson.

Magnús Stefánsson.