Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 412. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 807  —  412. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um rannsókn sjóslysa, nr. 68/2000, með síðari breytingum.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur, Sigurberg Björnsson og Jóhann Guðmundsson frá samgönguráðuneytinu.
    Nefndinni bárust skriflegar umsagnir um málið frá Vélstjórafélagi Íslands, Samtökum verslunar og þjónustu, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Siglingastofnun Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Sjómannasambandi Íslands, Landssambandi smábátaeigenda, ríkislögreglustjóra, ríkissaksóknara og Félagi skipstjórnarmanna.
    Í frumvarpinu er lagt til að breyta stöðu framkvæmdastjóra rannsóknarnefndar sjóslysa til samræmis við stöðu forstöðumanns rannsóknarnefndar flugslysa og forstöðumanns rannsóknarnefndar umferðarslysa. Til þess að auðvelda megi rannsókn sjóslysa er einnig lagt til að breyta ákvæði um aðgang rannsóknarnefndar sjóslysa að ýmsum gögnum þannig að skýrt sé kveðið á um heimild rannsóknarnefndarinnar til aðgangs að upptökum sem til eru um borð í skipum í samræmi við sams konar ákvæði í lögum um rannsóknarnefnd flugslysa er varða loftför.     
    Nefndin leggur áherslu á að þegar reynir á samstarf rannsóknarnefndar sjóslysa og lögreglunnar við rannsókn mála þurfi samvinnan þar á milli að vera góð.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Jón Bjarnason sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hann samþykkur áliti þessu.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    

Alþingi, 15. febrúar 2006.


Hjálmar Árnason,


varaform., frsm.


Anna Kristín Gunnarsdóttir.


Guðjón Hjörleifsson.



Kristján L. Möller.


Sigurrós Þorgrímsdóttir.


Guðjón A. Kristjánsson.



Magnús Stefánsson.