Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 505. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 839 — 505. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Söndru Franks um Álftanesveg.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvenær er áformað að bjóða út gerð nýs vegar á Álftanesi syðra?
2. Hve mikið er áætlað að lagning hans kosti?
3. Hve mikið er lagt til hans í fjárlögum yfirstandandi árs?
4. Hvenær er áætlað að gerð hans verði lokið?
Áformað er að bjóða út endurbyggingu Álftanesvegar frá Engidal að vegamótum Bessastaðavegar seint á þessu ári.
Áætlaður heildarkostnaður er 528 millj. kr. og er reiknað með að hann falli allur til á næsta ári. Ekki er gert ráð fyrir neinni fjárveitingu á þessu ári og áætlað er að verkinu verði að fullu lokið sumarið 2008.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 839 — 505. mál.
Svar