Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 603. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 887  —  603. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um jarðskjálftaupplýsingar í Ríkisútvarpinu.

Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.



     1.      Klukkan hvað var fyrst upplýst um jarðskjálftann sem átti upptök sín við Krísuvík 6. mars sl., á Rás 2 Ríkisútvarpsins?
     2.      Klukkan hvað voru fyrstu upplýsingar um skjálftann settar á vefsíðu Ríkisútvarpsins og á textavarp þess?
     3.      Klukkan hvað var fyrst tilkynnt um skjálftann í sjónvarpsútsendingu Ríkisútvarpsins og þá með hvaða hætti?
     4.      Klukkan hvað voru fluttar fyrstu fréttir eða upplýsingar um skjálftann á Rás 1?