Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 611. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 895  —  611. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um leiguverð fiskveiðiheimilda.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Telur ráðherra að samráð eigi sér stað um verðlagningu fiskveiðiheimilda á markaði, en þar virðist leiguverð víðast það sama?
     2.      Hefur ráðherra staðið fyrir skoðun á því hvernig verðmyndun á leiguverði fiskveiðiheimilda á sér stað? Ef svo er ekki, hyggst ráðherra standa að slíkri skoðun?