Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 631. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 929  —  631. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um ívilnanir til álvera á landsbyggðinni.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Í hverju eru þau sérkjör og „ívilnandi samningar við stjórnvöld“ fólgin sem álver og önnur fyrirtæki á landsbyggðinni geta fengið umfram fyrirtæki á suðvesturhorni landsins og heimil eru samkvæmt ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA?
     2.      Hver er ferill umsóknar fyrirtækja um sérkjör á þessum grunni?
     3.      Hvaða fyrirtæki í landinu njóta nú þegar sérkjara á nefndum forsendum, hverjar eru þær ívilnanir og hve mikla fjármuni er um að ræða í hverju tilviki?