Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 632. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 930  —  632. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um gamla héraðsskólahúsið á Laugarvatni.

Frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni.



     1.      Hvernig er gamla héraðsskólahúsið á Laugarvatni nýtt og hvaða hugmyndir eru uppi um notkun þess í framtíðinni?
     2.      Er fyrirhugað að leggja fé í endurnýjun og viðhald hússins? Ef svo er, hve mikið?