Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 643. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 948  —  643. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um mismunun sjúklinga með gjaldtöku á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Finnst ráðherra eðlilegt að mismuna sjúklingum, svo sem krabbameinssjúklingum, með gjaldtöku eins og gert er á Landspítala – háskólasjúkrahúsi, eftir því hvort þeir fá meðferð á göngu- eða legudeild?
     2.      Hefur ráherra áform um að koma til móts við sjúklinga sem bera mikinn kostnað af meðferð á göngudeildum sjúkrahúsa?