Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 549. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 952  —  549. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun.

     1.      Hvernig er tryggt að einstakir þættir framkvæmda við gerð Kárahnjúkavirkjunar uppfylli þau skilyrði sem sett eru í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar frá 20. desember 2001?
    Norður-Hérað, nú Fljótsdalshérað, gaf út framkvæmdaleyfi vegna Kárahnjúkavirkjunar árið 2003. Í framkvæmdaleyfinu eru rakin skilyrði sem uppfylla þarf og byggjast m.a. á niðurstöðu í úrskurði umhverfisráðherra frá 20. desember 2001, sbr. 16. gr. laga nr. 106/ 2000, um mat á umhverfisáhrifum, þar sem fram kemur að óheimilt sé að gefa út leyfi fyrir matsskyldri framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir fyrr en úrskurður um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir og skal leyfisveitandi taka tillit til hans. Skv. 17. gr. þeirra laga, sbr. nú 18. gr. laga nr. 74/2005, um breyting á áðurnefndum lögum, skal leyfisveitandi hafa eftirlit með því að framkvæmd sé í samræmi við leyfi og úrskurð um mat á umhverfisáhrifum og fer um eftirlitið samkvæmt hlutaðeigandi lögum. Eftirlit með framkvæmdum er því í höndum sveitarstjórnar Fljótsdalshéraðs. Fyrir hönd sveitarstjórnar hafa byggingarfulltrúi Fljótsdalshéraðs og héraðsfulltrúi Fljótsdalshéraðs það verkefni með höndum að sinna almennu eftirliti vegna framkvæmdarinnar auk þess sem gott samstarf er við Heilbrigðiseftirlit Austurlands og Brunavarnir á Héraði.
    Starfshópur skipaður fulltrúum iðnaðarráðuneytisins, umhverfisráðuneytisins og sveitarstjórna Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps sem sérstaklega var settur á laggirnar til þess að fylgjast með framkvæmd skilyrða í mati á umhverfisáhrifum og í virkjunarleyfi iðnaðarráðherra heldur reglulega fundi með framkvæmdaraðila þar sem farið er yfir stöðu mála auk þess sem framkvæmdaraðili gerir grein fyrir framkvæmdinni í árlegri skýrslu.

     2.      Hvernig samræmast framkvæmdir norðan stíflu í Desjarárdal 3. skilyrðinu í úrskurði ráðherra?
    Framkvæmdir norðan Desjarárstíflu við austurenda eru annars vegar flóðvarsskurður og hins vegar aðkomuskurður á nýjum aðgöngum að aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar. Flóðvarið í Desjarárstíflu var vegna jarðtæknilegra aðstæðna flutt frá vesturenda stíflunnar að austurenda hennar en flóðvarið er öryggistæki sem einungis nýtist við hamfaraflóð. Frá flóðvarinu var grafinn skurður 650 m langur og 60 m breiður sem leiða á vatn í hamfaraflóðum niður í dalinn þannig að það skemmi ekki Desjarárstíflu. Efni sem grafið var upp úr skurðinum sem verður ekki nýtt til stíflubyggingar verður ýtt aftur niður í skurðinn. Samkvæmt upplýsingum framkvæmdaraðila er um að ræða þriðjung þess efnis sem grafið er upp úr skurðinum og mun það skolast úr skurðinum við hamfaraflóð. Vegna þess að skurðurinn er að hluta fylltur aftur verða bakkar hans með hrunhalla og skurðurinn grynnist. Sveitarstjórn Norður-Héraðs var með bréfi 26.7.2004 tilkynnt færsla flóðvarsins og gerði hún ekki athugasemdir við hana.
    Inntak aðganga 4 er við hlið flóðvarsskurðar um 100 m neðan stíflufótar Desjarárstíflu. Að inntakinu er grafinn aðkomuskurður 40 m langur og er botnbreidd hans 10 m. Framkvæmdaraðili óskaði eftir því með bréfi 21. desember 2005 að Skipulagsstofnun leiðbeindi um málsmeðferð með tilliti til skipulags vegna áforma um gerð nýrra aðganga að aðrennslisgöngum frá Hálslóni. Niðurstaða Skipulagsstofnunar var sú að með tilliti til staðsetningar framkvæmdarinnar á milli Desjarárstíflu og flóðvarsskurðar og þess að til greina kom að fylla yfir inntakið í göngin og ganga þannig frá landi að ummerki mundu ekki sjást á yfirborði þyrfti ekki að gera breytingu á sérstöku svæðisskipulagi fyrir Kárahnjúkavirkjun vegna breytingar á framkvæmdinni. Stofnunin telur þessa afgreiðslu í fullu samræmi við 3. skilyrði í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar. Að verki loknu verður frágangur þess verkhluta hluti frágangs vinnusvæðis neðan Desjarárstíflu og verður hann unninn eins og annar frágangur vinnusvæða á virkjunarsvæðinu í fullu samráði við Umhverfisstofnun.

     3.      Hvað líður vinnu við áætlun þá sem ætlað er að sýna útfærslu aðgerða til að minnka jarðvegsrof og áfok úr Hálslóni, sbr. 4. skilyrði úrskurðarins?
    Framkvæmdaraðili hefur brugðist við þeim fjórum atriðum sem sérstaklega ber að útfæra með eftirfarandi hætti:

a.    Stjórnun vatnsborðsbreytinga í Hálslóni.
    Gerðir hafa verið nýir útreikningar sem byggjast m.a. á núverandi raforkulögum. Gert er ráð fyrir að vatnsmiðlun Landsvirkjunar sé í Hálslóni. Það leiðir til þess að mesta sveifla vatnsborðs minnkar þannig að hún verður mest 65 m en var áður talin verða mest 75 m.

b.    Uppsetning og virkni verkfræðilegra rof- og áfoksvarna.
    Vegna áfoksvarna á austurbakka Hálslóns voru vegur og gerð sandgryfja boðin út vorið 2005. Framkvæmdum mun ljúka í október 2006. Verkfræðistofan Vatnaskil hefur reiknað botnfall jökulaurs í Hálslóni og er niðurstöður þeirra reikninga að finna í skýrslu Landsvirkjunar 2005/038. Verkfræðistofan Vatnaskil hefur metið rof á bökkum Hálslóns miðað við hönnunarstorm með 50–100 ára endurkomutíma, sbr. skýrslu Landsvirkjunar 2005/074. Frekari útreikningar eru nauðsynlegir og verður þeim lokið vorið 2006. Útreikningar benda til þess að stærð sandgryfja uppfylli vel skilyrði í úrskurði umhverfisráðherra um áfoksvarnir. Verkfræðistofan Vatnaskil reiknaði árið 2004 dreifingu ryks á bökkum Hálslóns, sbr. skýrslu Landsvirkjunar 2004/084. Sem stendur er unnið að frekari reikningum og tengingu þeirra við mælingar á fallryki víðs vegar á Héraði en þær hófust sumar 2005. Aðrar mótvægisaðgerðir til að hefta áfok úr Hálslóni eru eftirfarandi:
    Afmörkuð hafa verið þau svæði þar sem fyrirhugað er að dæla jarðvegi af strönd Hálslóns niður í lónið. Áveitufræðingur frá FAO, Oliver Barney, kom til landsins til að meta möguleika á því að koma í veg fyrir rof með áveitutækni. Skilaði hann skýrslu um athuganir sínar þar sem hann bendir á mögulegan tækjabúnað og er sem stendur unnið frekar úr tillögum hans. Vinnuhópur undir stjórn Landgræðslunnar kannar nú möguleika á notkun rykbindiefna og verða gerðar tilraunir með rykbindiefni á komandi sumri. Landgræðslan hefur gert tilraunir með nokkrar gerðir fokgirðinga með það fyrir augum að benda á hentuga fokgirðingu til nota við Hálslón.

c.    Stjórnun og aðgerðir vegna stöðvunar áfoksgeira, gróðurverndar og uppgræðslu á svæðum sem verða fyrir áhrifum.
    Landbúnaðarháskóli Íslands hefur ásamt Landgræðslunni staðið fyrir víðtækum gróðurtilraunum á Hálsi síðan 2002. Hluti þeirra tilrauna er gróðursetning víðistiklinga. Hefur framkvæmdaraðili varið um 30 millj. kr. í þessar tilraunir.

d.    Sívirkt eftirlit og mat á virkni mótvægisaðgerðanna.
    Fallryksmæling er hafin til ákvörðunar á grunnástandi áður en starfsemi virkjunarinnar hefst og er mælt á 13 stöðum við Hálslón og niður í byggð á Fljótsdalshéraði.

     4.      Hvað líður vinnu við uppgræðslu- og landbótaaðgerðir samkvæmt 5. skilyrðinu?
    Í samráði við sveitarstjórnir á svæðunum var ákveðið að sveitarfélögin tækju að sér umræddar uppgræðslu- og landbótaaðgerðir. Landsvirkjun hefur þegar greitt í landbótasjóð Fljótsdalshéraðs (áður Norður-Héraðs) 156 millj. kr. og mun á árunum 2006 til og með 2017 greiða að auki 44 millj. kr. Landbótavinna hófst árið 2003 og hefur verið unnið að landbótum hvert sumar síðan og hefur landbótasjóðurinn gefið út skýrslur um landbótastarfið fyrir árin 2003 til og með 2005. Landgræðslan hefur skráð uppgræðslusvæðin í gagnagrunn stofnunarinnar og metið og skráð árangur uppgræðslustarfsins. Að mati sérfræðinga Landgræðslunnar er árangur góður.
    Landsvirkjun hefur greitt í landbótasjóð Fljótsdalshrepps 45 millj. kr. og er gert ráð fyrir því að fyrst verði veitt úr honum árið 2007 til skipulegra uppgræðslu- og landbótaaðgerða.

     5.      Hvað líður vinnu við áætlun um námur, haugsvæði, vega- og slóðagerð samkvæmt 7. skilyrði?
    Framkvæmdaraðili hefur gefið út skýrslur um vegi, aðstöðu verktaka, námur og haugsvæði í samráði við Umhverfisstofnun, sbr. skýrslur Landsvirkjunar LV-2002/054 Kárahnjúkavirkjun – Fyrri áfangi, LV-2004/029 Ufsarveita og Hraunavegur og LV-2005/059 Jöfnunarstrokkur á Hólsufs og LV-2005/079 Hraunveita. Skýrslugerð er lokið en í framhaldinu verður unnin áætlun í samræmi við skilyrði 7 í úrskurði umhverfisráðherra.

     6.      Hver er staða þeirra rannsókna sem getið er um í 11., 12., 13. og 19. skilyrði? Hverjar af þeim rannsóknarniðurstöðum sem þegar liggja fyrir hafa vakið sérstaka athygli eða komið sérstaklega á óvart?
    Skilyrði 11 – Rannsókn á setlögum í Hálslóni.
    Náttúrufræðistofnun Íslands gerði verklýsingu á nauðsynlegum rannsóknum á seti og öskulögum í Hálslóni. Á grundvelli þeirrar verklýsingar var samið við ÍSOR og Raunvísindastofnun Háskólans undir forustu Almennu verkfræðistofunnar um rannsóknir á árunum 2005 og 2006. Þessar rannsóknir standa nú yfir.
    Skilyrði 12 – Jarðhitasvæði og hrúðurbreiður við Sauðárfossa.
    Rannsóknir fóru fram sumurin 2004 og 2005 og voru framkvæmdar af ÍSOR. Skýrslu um niðurstöðu rannsókna er að vænta í apríl nk.
    Skilyrði 13 – Rannsóknir á flikrubergi í gljúfri Jökulsár í Hálslóni.
    Rannsóknum og skýrslugerð er lokið og ekki reyndist þar flikruberg að finna heldur rauðbrennt móberg.
    Skilyrði 19 – Regluleg vöktun fornminja í hættu.
    Rannsóknir vegna fornminja fóru fram á því svæði sem lendir undir Hálslóni sumarið 2004. Niðurstöður rannsókna hafa komið út í tveimur skýrslum. Rannsóknir vegna rústa sem fundust á Hálsi gegnt Sauðá voru boðnar út í janúar 2005. Rannsóknum er lokið og skýrslu um niðurstöður að vænta haustið 2006.
    Rannsókn á Sjónarhólskofa verður framkvæmd sumarið 2006.
    Í úrskurði umhverfisráðherra kemur fram að framkvæmdir vegna Kárahnjúkavirkjunar muni hafa áhrif á þekktar fornminjar á framkvæmdasvæði virkjunarinnar frá Hálslóni til strandar. Að mati framkvæmdaraðila er hér miðað við fyrri virkjunartilhögun og því nauðsynlegt að skoða málið í ljósi útreikninga á vatnsstöðu sem nú liggja fyrir. Vatnsborð milli Lagarfljótsvirkjunar og brúar við Egilsstaði lækkar og í Leginum hækkar vatnsstaða í þrjá mánuði af tólf um 25–30 cm. Samkvæmt þessu ættu áhrif vatnsborðsbreytinga á fornminjar að vera minni en áður var talið.
    Framkvæmdaraðili mun halda fund með Fornleifavernd ríkisins og Minjavörslu Austurlands á komandi sumri þar sem farið verður yfir áhrif vatnaflutninga á minjar við Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljót neðan Lagarfossvirkjunar.
    Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra átti að fara fram björgunarrannsókn á tóft (NM- 174:30) í landi Brekku í Fljótsdalshreppi. Fornleifavernd hefur staðfest að þessari tóft stafar ekki hætta af framkvæmdum sem tengjast Kárahnjúkavirkjun.
    Niðurstöður rannsókna á fornleifum hafa ekki leitt neitt sérstakt í ljós sem ekki var vitað áður nema fundur rústa á Hálsi.

     7.      Á hvern hátt hafa stofnanir ráðuneytisins fylgst með borun jarðganga á svæðinu, sbr. 14. skilyrði í úrskurðinum? Hvað hafa rannsóknir á jarðvatni því sem framkvæmdaraðilar hafa glímt við leitt í ljós?
    Eins og gefur að skilja er stór og nauðsynlegur verkþáttur við jarðgangagerð þéttun bergs til að draga úr innrennsli vatns inn í göngin á byggingartíma enda sá þáttur í byggingu þeirra sem jarðgangagerðarmönnum stafar mest hætta af. Framkvæmdaraðili hefur lagt mikla áherslu á þennan öryggisþátt og jafnframt á að vatn geti runnið út úr göngunum eftir að starfræksla hefst, bæði með því að bæta og styrkja þéttingu bergs þar sem vatn rann í göngin á byggingartíma.
    Framkvæmdaraðili hefur borað fjölda hola með gangaleiðinni til að fylgjast með breytingu á stöðu grunnvatns. Liggur fyrir skýrsla og kort sem sýnir hvar þessar holur hafa verið boraðar en að svo stöddu er ekki tímabært að meta breytingar á stöðu grunnvatns. Engar breytingar hafa komið fram á yfirborði. Vatnið sem rennur úr jarðgöngunum er hreinsað úr setskiljum áður en því er veitt í nálæg vatnsföll. Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands hafa ekki komið beint að þessu verkefni enda ekki hlutverk þeirra en Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur fylgst með verkinu og haft eftirlit af hálfu sveitarstjórna með hreinsun vatnsins.