Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 659. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Prentað upp.

Þskj. 967  —  659. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um loftmengun af völdum svifryks í Reykjavík.

Frá Fannýju Gunnarsdóttur.



     1.      Hver er stefna ráðuneytisins hvað varðar loftmengun af völdum svifryks í Reykjavík?
     2.      Með hvaða úrræðum mæla sérfræðingar ráðuneytisins?
     3.      Hvort eru aðgerðir á ábyrgð umhverfisráðuneytis eða borgaryfirvalda?



Skriflegt svar óskast.