Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 676. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 992  —  676. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um samkeppnisstöðu íslenskrar fiskvinnslu.

Frá Jóhanni Ársælssyni.



     1.      Áformar ráðherra að gera ráðstafanir sem tryggi samkeppnisstöðu innlendrar fiskvinnslu gagnvart erlendri fiskvinnslu og vinnslu sem fer fram í fullvinnsluskipum?
     2.      Telur ráðherra að með því að ekki er gerð krafa um að gámafiskur sé veginn nettóvigt áður en hann er sendur á markaði erlendis sé jafnræðis gætt við útgerðarmenn sem selja sinn fisk innan lands?
     3.      Telur ráðherra það standast samkeppnisskilyrði að íslenskri fiskvinnslu sé meinað að bjóða í fisk sem sendur er óvigtaður á erlenda markaði?
     4.      Hvers vegna hefur ekki verið krafist innvigtunar inn á vinnslulínur í vinnsluskipum með löggiltum flæðivogum sem nota má á sjó?
     5.      Stenst það jafnræðiskröfur gagnvart keppinautum í greininni og samkeppnislög að gera ekki kröfur um löggilta vigtarmenn í fullvinnsluskipum? Er áformað að gera þá kröfu?


Skriflegt svar óskast.