Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 379. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1011 — 379. mál.
um breytingu á lögum um bílaleigur, nr. 64/2000, með síðari breytingum.
Bílaleiga er starfsemi sem rekin er í atvinnuskyni þar sem almenningi eða fyrirtækjum er boðið til leigu skráningarskylt ökutæki, að jafnaði um skemmri tíma, sbr. þó 2. mgr. 6. gr.
a. Í stað orðsins „samgönguráðuneytisins“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Vegagerðarinnar.
b. Í stað fjárhæðarinnar „10.000 kr.“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: 25.000 kr.
c. Í stað orðsins „Samgönguráðuneytið“ í 2. mgr. kemur: Vegagerðin.
d. 1. málsl. 4. mgr. orðast svo: Bílaleiga á grundvelli starfsleyfis skal rekin á fastri starfsstöð sem opin skal almenningi á tilgreindum tíma.
e. Á eftir 1. málsl. 4. mgr. kemur nýr málsliður sem orðast svo: Afgreiðslutími skal auglýstur á skýran og ótvíræðan hátt og við hann skal staðið.
f. Í stað orðsins „samgönguráðuneytis“ í 1. málsl. 5. mgr. og orðsins „samgönguráðuneytisins“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: Vegagerðarinnar.
Bílaleigu er óheimilt að leigja út ökutæki nema það sé sérstaklega skráð hjá Umferðarstofu sem ökutæki sem leigt er í atvinnuskyni án ökumanns.
Leigusamningur milli bílaleigu og leigutaka skal að jafnaði takmarkast við þrjár vikur ef ökutæki sem leigt er hefur notið lægri vörugjalda, sbr. 5. tölul. 2. mgr. 5. gr. laga um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993, með síðari breytingum. Ef ökutæki hefur ekki notið lægri vörugjalda eða 15 mánuðir eru liðnir frá nýskráningu ökutækis sem notið hefur lægri vörugjalda, sbr. 1. málsl., er bílaleigu heimilt að leigja það til lengri tíma.
a. 1. mgr. orðast svo:
Brot gegn 3., 5., 6. og 7. gr. laga þessara og reglugerðum settum samkvæmt þeim geta varðað sektum, nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum, og skal farið með mál út af slíkum brotum að hætti opinberra mála.
b. Í stað orðsins „Samgönguráðherra“ í 2. mgr. kemur: Vegagerðin.
c. Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Vegagerðin skal hafa eftirlit með því að ákvæðum laganna sé fylgt. Bílaleigu er skylt að veita Vegagerðinni allar upplýsingar sem varða starfsleyfi hennar. Vegagerðin getur afturkallað starfsleyfi bílaleigu veiti hún Vegagerðinni ekki umbeðnar upplýsingar. Vegagerðinni er heimilt að fela faggiltum skoðunarstofum að sinna eftirlitshlutverki sínu samkvæmt lögunum.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1011 — 379. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um bílaleigur, nr. 64/2000, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 29. mars.)
1. gr.
1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:Bílaleiga er starfsemi sem rekin er í atvinnuskyni þar sem almenningi eða fyrirtækjum er boðið til leigu skráningarskylt ökutæki, að jafnaði um skemmri tíma, sbr. þó 2. mgr. 6. gr.
2. gr.
a. Í stað orðsins „samgönguráðuneytisins“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Vegagerðarinnar.
b. Í stað fjárhæðarinnar „10.000 kr.“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: 25.000 kr.
c. Í stað orðsins „Samgönguráðuneytið“ í 2. mgr. kemur: Vegagerðin.
d. 1. málsl. 4. mgr. orðast svo: Bílaleiga á grundvelli starfsleyfis skal rekin á fastri starfsstöð sem opin skal almenningi á tilgreindum tíma.
e. Á eftir 1. málsl. 4. mgr. kemur nýr málsliður sem orðast svo: Afgreiðslutími skal auglýstur á skýran og ótvíræðan hátt og við hann skal staðið.
f. Í stað orðsins „samgönguráðuneytis“ í 1. málsl. 5. mgr. og orðsins „samgönguráðuneytisins“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: Vegagerðarinnar.
3. gr.
4. gr.
Bílaleigu er óheimilt að leigja út ökutæki nema það sé sérstaklega skráð hjá Umferðarstofu sem ökutæki sem leigt er í atvinnuskyni án ökumanns.
5. gr.
Leigusamningur milli bílaleigu og leigutaka skal að jafnaði takmarkast við þrjár vikur ef ökutæki sem leigt er hefur notið lægri vörugjalda, sbr. 5. tölul. 2. mgr. 5. gr. laga um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993, með síðari breytingum. Ef ökutæki hefur ekki notið lægri vörugjalda eða 15 mánuðir eru liðnir frá nýskráningu ökutækis sem notið hefur lægri vörugjalda, sbr. 1. málsl., er bílaleigu heimilt að leigja það til lengri tíma.
6. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Brot gegn 3., 5., 6. og 7. gr. laga þessara og reglugerðum settum samkvæmt þeim geta varðað sektum, nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum, og skal farið með mál út af slíkum brotum að hætti opinberra mála.
b. Í stað orðsins „Samgönguráðherra“ í 2. mgr. kemur: Vegagerðin.
c. Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Vegagerðin skal hafa eftirlit með því að ákvæðum laganna sé fylgt. Bílaleigu er skylt að veita Vegagerðinni allar upplýsingar sem varða starfsleyfi hennar. Vegagerðin getur afturkallað starfsleyfi bílaleigu veiti hún Vegagerðinni ekki umbeðnar upplýsingar. Vegagerðinni er heimilt að fela faggiltum skoðunarstofum að sinna eftirlitshlutverki sínu samkvæmt lögunum.
7. gr.
Stjórnsýslukæra.
8. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.