Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 376. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj.  1017 —  376. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á siglingalögum, nr. 34/1985, með síðari breytingum.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur, Sigurberg Björnsson og Jóhann Guðmundsson frá samgönguráðuneytinu og Steinar Adolfsson og Hjálmar V. Björgvinsson frá ríkislögreglustjóra.
    Nefndinni bárust skriflegar umsagnir um málið frá Sýslumannafélagi Íslands, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Félagi skipstjórnarmanna, Sjómannasambandi Íslands, Samtökum verslunar og þjónustu, Hafnasambandi sveitarfélaga, Landssambandi smábátaeigenda, Vélstjórafélagi Íslands, ríkislögreglustjóra, tollstjóranum í Reykjavík, Landhelgisgæslu Íslands, Kjölbátasambandi Íslands og Siglingafélagi Reykjavíkur, og ríkissaksóknara.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á siglingalögum sem varða öryggi á sjó og viðurlög vegna hættulegrar hegðunar þeirra sem stjórna skipi eða reyna að stjórna skipi og fjallað er um í greininni.
    Með breytingunni er lagt til að ákvæði um áfengis- og fíkniefnanotkun verði gerð skýrari og markvissari. Miðað verður við 0,5‰ vínandamagn í blóði þeirra sem ákvæðið varðar eða að vínandamagn í lofti sem viðkomandi andar frá sér nemi 0,25 milligrömmum í lítra lofts eða meira. Engin slík viðmið eru í gildandi lögum. Einnig er lagt til að greinarnar taki til fleiri en eingöngu skipstjóra eins og núgildandi ákvæði gera. Þá er í frumvarpinu byggt undir heimildir lögreglu og annarra sem fara með löggæsluvald til að taka á málum af því tagi sem hér um ræðir.
    Nefndin vekur athygli á villandi orðalagi í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Þegar talað er um viðurlög vegna hættulegrar hegðunar skipstjóra hlýtur að vera átt við viðurlög vegna hættulegrar hegðunar þeirra sem stjórna skipi eða reyna að stjórna skipi.
    Nefndin leggur til breytingu á 1. gr. frumvarpsins sem felur fyrst og fremst í sér orðalagsbreytingar í framhaldi af athugasemdum sem fram komu við frumvarpið frá ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara. M.a. er lagt til að fellt verði út hugtakið „ofskynjunarefni“ í 2. mgr. og í staðinn stuðst við orðin „ávana- og fíkniefni“. Jafnframt er lagt til að sett verði inn ítarlegra ákvæði í 3. mgr. þar sem skilgreind eru „núllmörk“ varðandi þau tilvik er ávana- og fíkniefni mælast í blóði eða þvagi þeirra sem nánar greinir í 2. mgr. Mælist ávana- og fíkniefni sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim í blóði eða þvagi viðkomandi telst hann óhæfur til þeirra starfa sem um ræðir í 2. mgr. Þá er lagt til að bætt verði við heimildum til sýnatöku, þ.e. munnvatns- og svitasýna, til samræmis við þróun og nýja tækni til sýnatöku í málum af því tagi sem hér um ræðir. Einnig er lagt til að heimildir þeirra sem fara með löggæsluvald til sýnatöku verði takmarkaðar að því leyti að gert er ráð fyrir að starfsmenn tollstjóra þurfi að kalla til lögreglu við sýnatöku en Landhelgisgæsla Íslands verði með sambærilegar heimildir og lögregla í slíkum tilvikum.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Jón Bjarnason sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hann samþykkur áliti þessu.
    Þórunn Sveinbjarnardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 23. mars 2006.



Guðjón Hjörleifsson,


frsm.


Lára Margrét Ragnarsdóttir.


Anna Kristín Gunnarsdóttir.



Ísólfur Gylfi Pálmason.


Kristján L. Möller.


Sigurrós Þorgrímsdóttir.



Guðjón A. Kristjánsson.


Magnús Stefánsson.