Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 693. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1023 — 693. mál.
um Kvennaskólann á Blönduósi.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa starfshóp er leggi fram tillögur um framtíðarhlutverk húsnæðis Kvennaskólans á Blönduósi. Jafnframt geri starfshópurinn framkvæmda- og kostnaðaráætlun þar sem fram komi tillögur um viðhald húsnæðisins og endurbætur.
Starfshópurinn skili niðurstöðum sínum fyrir 1. október 2006.
Kvennaskólinn á Blönduósi var byggður á árunum1911–1912. Húsið er tvær hæðir, kjallari og ris og stendur reisulega á bökkum Blöndu. Húsið er teiknað af Einari Erlendssyni í samráði við Jón Þorláksson, þáverandi landsverkfræðing. Byggt hefur verið við húsið og auk þess hafa risið aðrar byggingar í tengslum við skólann. Kvennaskólahúsið fellur að nokkru undir húsafriðunarlög og á meðan reglulegt skólastarf var í því, fram til 1976, var viðhald þess gott.
Kvennaskólabyggingin er að 75% í eigu ríkisins en Héraðsnefnd A-Húnvetninga á 25%. Árið 1996 gerði menntamálaráðuneytið leigusamning við héraðsnefndina og samkvæmt honum tók nefndin að sér daglegan rekstur og umönnun húseigna skólans.
Eftir að skólahaldi lauk var Fræðsluskrifstofa Norðurlands vestra þar til húsa. Nú er Skólaskrifstofa A-Húnvetninga og Textílsetur Íslands með aðsetur í húsinu. Kennsla grunnskólabarna á Blönduósi í heimilisfræðum fer þar fram. Auk þessa er fyrirtækið Textílkjallarinn, sem framleiðir nytjalist, með starfsemi í skólanum.
Við hlið Kvennaskólahússins stendur Heimilisiðnaðarsafnið sem er einstakt á landsvísu. Það hóf starfsemi sína í fjósi skólans en hefur nú víkkað út starfsemi sína í glæsilegri viðbyggingu sem vígð var árið 2003.
Nú er verulega farið að sjá á húsi Kvennaskólans. Nauðsynlegt er að gera við steypuskemmdir á því og mála það. Innan húss er þörf á verulegum endurbótum. Á fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir 1 milljón kr. til úttektar á ástandi mannvirkjanna.
Nauðsynlegt er finna þessu fallega og fornfræga húsi Húnvetninga nýtt hlutverk í samráði við heimamenn, jafnframt því að halda sögu þess og reisn á lofti.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1023 — 693. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um Kvennaskólann á Blönduósi.
Flm.: Adolf H. Berndsen, Einar Oddur Kristjánsson, Jón Bjarnason,
Jóhanna E. Pálmadóttir, Guðjón A. Kristjánsson,
Jóhann Ársælsson, Kristinn Gunnarsson.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa starfshóp er leggi fram tillögur um framtíðarhlutverk húsnæðis Kvennaskólans á Blönduósi. Jafnframt geri starfshópurinn framkvæmda- og kostnaðaráætlun þar sem fram komi tillögur um viðhald húsnæðisins og endurbætur.
Starfshópurinn skili niðurstöðum sínum fyrir 1. október 2006.
Greinargerð.