Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 721. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1057 — 721. mál.
um breytingu á samkeppnislögum, nr. 44/2005.
Gunnar Örlygsson, Pétur H. Blöndal, Sigurður Kári Kristjánsson.
a. Í stað orðanna „1 milljarður kr.“ í 1. málsl. kemur: 4 milljarðar kr.
b. Í stað orðanna „50 millj. kr.“ í 3. málsl. kemur: 300 millj. kr.
Í frumvarpi þessu er lagt til að viðmið um veltu fyrirtækja við mat á lögmæti samruna skv. 17. gr. samkeppnislaga, nr. 44/2005, verði hækkuð, en samkvæmt ákvæðinu er skylt að tilkynna samruna til Samkeppniseftirlitsins ef sameiginleg heildarvelta viðkomandi fyrirtækja er yfir einum milljarði kr. og ef ársvelta a.m.k. tveggja af þeim fyrirtækjum sem aðild eiga að samrunanum er yfir 50 millj. kr. Samsvarandi ákvæði kom í svipaðri mynd inn í eldri samkeppnislög nr. 8/1993 með lögum nr. 107/2000.
Sé viðmið um veltu við mat á lögmæti samruna of lágt er hætt við að ákvæðið verði virt að vettugi. Fyrir því geta verið ýmsar ástæður, svo sem þær að menn þekki ekki til reglnanna, geri ekki ráð fyrir að þeim verði beitt eða ákveði einfaldlega að spara sér vinnuna við að tilkynna samruna þar sem þeir telji langsótt að samkeppnisyfirvöld muni aðhafast nokkuð þótt farið sé fram hjá þeim. Vísbendingar eru um að tilkynningaskyldu sé ekki gætt í mörgum tilvikum, en umsvif fyrirtækja á íslenskum markaði hafa aukist mjög undanfarin ár og fyrirtækjum sem falla undir viðmið 2. mgr. 17. gr., þ.e. hafa veltu yfir 1 milljarði kr., hefur fjölgað verulega. Þar með eykst hættan á að fyrirmælum 2. mgr. 17. gr. verði ekki sinnt sem skyldi. Með því að hækka viðmiðunarmörkin yrði tryggt að eingöngu mál þar sem verulegir hagsmunir væru í húfi kæmu til kasta Samkeppniseftirlitsins og sú skylda væri lögð á atvinnulífið að tilkynna þegar ástæða væri til að ætla að kaup eða samruni fyrirtækja hefðu áhrif eða skiptu máli varðandi samkeppni.
Atvinnulífið hefur hvatt til þess að þröskuldur viðmiða verði hækkaður. Meðal þeirra sem telja nauðsynlegt að hækka viðmiðunarmörk 2. mgr. 17. gr. má nefna Samtök atvinnulífsins og Verslunarráð Íslands. Raunar hafa Samtök atvinnulífsins bent á að ákjósanlegast væri að fella niður ákvæði laganna um bann við samruna og koma í veg fyrir misnotkun ráðandi aðila á markaði með ströngu og virku aðhaldi Samkeppniseftirlitsins gagnvart fyrirtækjum í markaðsráðandi stöðu. Þá hefur einnig verið bent á að óheppilegt sé að viðmiðunarmörk sem þessi séu bundin í lög frekar en t.d. í reglugerð, þar sem nauðsynlegt sé að endurskoða veltumörkin reglulega, en það hefur ekki verið gert frá því að ákvæðið var lögtekið. Svo langt verður hins vegar ekki gengið hér heldur staðnæmst við þá breytingu að þröskuldur fyrir afskipti samkeppnisyfirvalda verði hækkaður.
Jafnframt má benda á að viðmiðunarmörkin í íslensku samkeppnislögunum eru mun lægri en hjá nágrannaþjóðunum Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. Í Danmörku er miðað við að heildarvelta samrunafyrirtækja jafngildi um 44 milljörðum kr. en velta a.m.k. tveggja fyrirtækja 3,5 milljörðum kr. Í Finnlandi er viðmiðið fyrir heildarveltu að jafngildi um 30 milljarðar kr. og velta a.m.k. tveggja fyrirtækja að jafngildi um 1,7 milljarðar kr. Í Svíþjóð er miðað við að heildarvelta samrunafyrirtækja jafngildi um 38 milljörðum kr. en velta a.m.k. tveggja fyrirtækja um 1 milljarði kr. Með hliðsjón af þessum fjárhæðum er ljóst að varlega er af stað farið með þeirri lagabreytingu sem hér er lögð til.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1057 — 721. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á samkeppnislögum, nr. 44/2005.
Flm.: Bjarni Benediktsson, Birgir Ármannsson, Guðlaugur Þór Þórðarson,
Gunnar Örlygsson, Pétur H. Blöndal, Sigurður Kári Kristjánsson.
1. gr.
a. Í stað orðanna „1 milljarður kr.“ í 1. málsl. kemur: 4 milljarðar kr.
b. Í stað orðanna „50 millj. kr.“ í 3. málsl. kemur: 300 millj. kr.
2. gr.
Greinargerð.