Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 738. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1074 — 738. mál.
um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og breytingu á tollalögum, nr. 88/2005.
a. Tollur á vörum í eftirfarandi tollskrárnúmerum í 10. kafla verður 0%: 1001.1001, 1001.9001, 1002.0001, 1003.0001, 1004.0001, 1005.9001, 1007.0001, 1008.1001, 1008.2001, 1008.3001 og 1008.9001.
b. Tollur á vörum í eftirfarandi tollskrárnúmerum í 11. kafla verður 0%: 1101.0021, 1102.2001, 1102.9011, 1102.9021, 1103.1101, 1103.1311, 1103.1319, 1103.1321, 1103.1901, 1103.2001, 1104.1221, 1104.1901, 1104.2221, 1104.2301, 1104.2301, 1104.2901, 1104.3001 og 1106.2001.
c. Tollur á vörum í 12. kafla í tollskrárnúmerum 1213.0011 og 1213.0021 verður 0%.
d. Tollur á vörum í 17. kafla í tollskrárnúmerum 1703.1001 og 1703.9001 verður 0%.
e. Tollur á vörum í 23. kafla tollskrárinnar verður 0%.
Eftirstöðvar fóðursjóðs, skv. 31. og 33. gr. laga nr. 99/1993, við gildistöku laganna skulu renna til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og andvirði þeirra ráðstafað sem lánum eða framlögum til eflingar nýjum viðfangsefnum í landbúnaði og til stuðnings við búgreinar og breytingar búskaparhátta á lögbýlum.
Með frumvarpi þessu er lagt til að fóðursjóður sem er í vörslu landbúnaðarráðherra og starfar samkvæmt lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, verði lagður niður. Í fóðursjóð renna tolltekjur af innfluttu fóðri og hráefni sem fellur undir 10., 11., 12., 17. og 23. kafla tollskrár í viðauka I við tollalög, nr. 88/2005.
Í reglugerð nr. 431/1996 er fjallað um greiðslur úr fóðursjóði. Skv. 2. gr. eru misháar greiðslur eftir því annars vegar hvort um er að ræða hráefni eða fullunnið fóður og hins vegar hvort um er að ræða hráefni eða fullunnið fóður til annars en loðdýraræktar og fiskeldis. Fyrir hráefni eða fullunnið fóður til loðdýraræktar eða fiskeldis er greitt að fullu andvirði þess tolls sem lagður var á við innflutning. Þegar um ræðir hráefni til fóðurgerðar, annarrar en fiskeldis- og loðdýraræktarfóðurs, eru dregnar frá 0,80 kr. á kíló af andvirði þess tolls sem lagður var á við innflutning en frádregnar 7,80 kr. á kíló ef um er að ræða fóðurblöndur til annars en loðdýraræktar og fiskeldis.
Heimild er í 4. gr. reglugerðarinnar til að skuldajafna áður en útborgun á sér stað og er framkvæmdin sú að skuldajafnað er áður en til greiðslu kemur, og rennur því einungis í sjóðinn sú fjárhæð sem frádregin er frá andvirði tollsins, sbr. 2. gr. reglugerðarinnar, sem fer síðan í Framleiðnisjóð landbúnaðarins.
Á hverju ári eru eftirstöðvar sjóðsins um 40–60 millj. kr. sem renna til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins skv. 2. mgr. 33. gr. laganna. Fénu er ráðstafað sem lánum eða framlögum til eflingar nýjum viðfangsefnum í landbúnaði og til stuðnings við búgreinar og breytingar á búskaparháttum á lögbýlum. Verði frumvarpið að lögum verður eftirstöðvum sjóðsins ráðstafað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins við gildistöku.
Flutningsmenn telja að sjóðurinn sé óþarfa millifærslusjóður sem nýtist engum. Auk þess er með niðurfellingu hans dregið úr stuðningi við landbúnaðarkerfið.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1074 — 738. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og breytingu á tollalögum, nr. 88/2005.
Flm.: Guðlaugur Þór Þórðarson, Birgir Ármannsson, Sigurður Kári Kristjánsson,
Gunnar Örlygsson, Bjarni Benediktsson.
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum,
með síðari breytingum.
1. gr.
31. og 33. gr. laganna falla brott.II. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 88/2005.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10., 11., 12., 17. og 23. kafla tollskrár í viðauka I við tollalög, nr. 88/2005:a. Tollur á vörum í eftirfarandi tollskrárnúmerum í 10. kafla verður 0%: 1001.1001, 1001.9001, 1002.0001, 1003.0001, 1004.0001, 1005.9001, 1007.0001, 1008.1001, 1008.2001, 1008.3001 og 1008.9001.
b. Tollur á vörum í eftirfarandi tollskrárnúmerum í 11. kafla verður 0%: 1101.0021, 1102.2001, 1102.9011, 1102.9021, 1103.1101, 1103.1311, 1103.1319, 1103.1321, 1103.1901, 1103.2001, 1104.1221, 1104.1901, 1104.2221, 1104.2301, 1104.2301, 1104.2901, 1104.3001 og 1106.2001.
c. Tollur á vörum í 12. kafla í tollskrárnúmerum 1213.0011 og 1213.0021 verður 0%.
d. Tollur á vörum í 17. kafla í tollskrárnúmerum 1703.1001 og 1703.9001 verður 0%.
e. Tollur á vörum í 23. kafla tollskrárinnar verður 0%.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2007.Ákvæði til bráðabirgða.
Eftirstöðvar fóðursjóðs, skv. 31. og 33. gr. laga nr. 99/1993, við gildistöku laganna skulu renna til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og andvirði þeirra ráðstafað sem lánum eða framlögum til eflingar nýjum viðfangsefnum í landbúnaði og til stuðnings við búgreinar og breytingar búskaparhátta á lögbýlum.
Greinargerð.