Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 616. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1126  —  616. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 79 24. maí 2005, um uppboðsmarkaði sjávarafla.

(Eftir 2. umr., 4. apríl.)



1. gr.

    Við a-lið 1. mgr. 3. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Skilyrði um íslenskan ríkisborgararétt og lögheimili hér á landi ná ekki til einstaklinga sem hafa ríkisfang og búsettir eru í aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins eða í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða til Færeyinga búsettra í Færeyjum eða á Íslandi.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.