Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 770. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1132 — 770. mál.
til heilbrigðisráðherra um þjónustu við psoriasis- og exemsjúklinga og greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar.
1. Hvar hafa psoriasis- og exemsjúklingar fengið meðferð eftir að göngudeild Sjálfsbjargar á Bjargi lokaði um síðustu áramót?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því að þjónustu við psoriasis- og exemsjúklinga verði komið á fót á Akureyri?
3. Hafa farið fram viðræður við húðsjúkdómalækna, FSA, Sjálfsbjörg eða Spoex varðandi undirbúning eða rekstur göngudeildar/húðdeildar á Akureyri?
4. Hvenær væri hugsanlegt að slík starfsemi hæfist þar og hvernig yrði þjónustunni háttað?
5. Mun ráðherra beita sér fyrir því að psoriasis- og exemsjúklingar sem búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins fái greiddan óhjákvæmilegan ferðakostnað vegna ítrekaðrar meðferðar í Bláa lóninu, eins og þeir sjúklingar sem leggjast inn á húðdeild LSH?
6. Hyggst ráðherra beita sér fyrir greiðslu ferðastyrks til sjúklinga af höfuðborgarsvæðinu sem nýta göngudeildarmeðferð Bláa lónsins?
7. Mun ráðherra beita sér fyrir endurskoðun á greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar vegna meðferðar barna með psoriasis og exem og kostnaðar foreldra þeirra af þeim sökum?
8. Við hvaða erlendu meðferðarstofnun eða stofnanir hefur Tryggingastofnun gert samninga um loftslagsmeðferð fyrir psoriasissjúklinga?
9. Hve margir sjúklingar sóttu um loftslagsmeðferð erlendis á tímabilinu 2000–2005 og hve margir fengu jákvæðan úrskurð?
Skriflegt svar óskast.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1132 — 770. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um þjónustu við psoriasis- og exemsjúklinga og greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar.
Frá Þuríði Backman.