Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 600. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1137 — 600. mál.
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Jóns Kr. Óskarssonar um menntun fiskvinnslufólks.
1. Telur ráðherra þörf á því að efla menntun fiskvinnslufólks hér á landi? Ef svo er, hvernig yrði það best gert?
Ljóst er að efla þarf fagþekkingu og menntun fiskvinnslufólks á Íslandi. Markaðirnir gera sífellt meiri kröfur um gæði, heilnæmi og hollustu matvæla, rekjanleika og kröfur um að veiðar og vinnsla afurðanna fari fram í sátt við umhverfið. Þessar auknu kröfur kalla á aukna þekkingu starfsmanna og fyrir dyrum stendur að innleiða reglugerðir Evrópusambandsins um fiskvinnslu þar sem kveðið er á um auknar kröfur til menntunar og þjálfunar þeirra.
Ófaglærðum starfsmönnum í fiskvinnslu gefst kostur á að sækja 40 klst. námskeið sem starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar í sjávarútvegsráðuneytinu stendur fyrir. Ýmsir aðilar, bæði opinberir aðilar og einkafyrirtæki, bjóða auk þess styttri afmörkuð námskeið fyrir fiskvinnslufólk og mörg fiskvinnslufyrirtæki standa sjálf fyrir námskeiðum fyrir sitt starfsfólk.
Eftir að Fiskvinnsluskólinn í Hafnarfirði og Fiskvinnsludeildin á Dalvík hættu starfsemi sinni hefur þess orðið áþreifanlega vart að fagþekkingu hefur hrakað í vinnslunni og ber brýna nauðsyn til að bæta hér úr. Sjávarútvegsráðuneytið hefur því skipað starfshóp sem vinnur að úrbótum í þessum efnum. Hópnum er ætlað að koma á skipulegri fræðslu fyrir millistjórnendur í vinnslunni og standa vonir til að hægt verði að bjóða upp á 3–4 vikna námskeið frá og með næsta hausti. Ráðuneytið býður því upp á námskeið fyrir almennt starfsfólk í fiskvinnslunni ásamt því að vinna að því að koma á fót námskeiðum fyrir millistjórnendur. Afar brýnt er að framboð á menntun í fiskvinnslu sé fyrir hendi og þarf að huga vel að því að slíkt framboð standist kröfur um nútímatækni í kennsluaðferðum og höfði bæði til fólks sem stendur frammi fyrir starfsvali en einnig til þeirra sem eru starfandi í fiskvinnslunni. Jafnframt þarf framboðið að vera í samræmi við þarfir fyrirtækjanna.
2. Telur ráðherra koma til greina að endurvekja Fiskvinnsluskólann í einhverri mynd?
Fram til ársins 2001 var hægt að sækja menntun og þjálfun í fiskiðnaði í sérstökum fiskvinnsluskólum á tveim stöðum á landinu, á Dalvík og í Hafnarfirði. Báðir skólarnir voru á framhaldsskólastigi, annar bauð upp á tveggja ára nám en hinn þriggja ára nám. Báðir skólarnir hafa nú verið lagðir niður vegna lítillar aðsóknar og því enginn fiskvinnsluskóli starfandi á landinu núna. Sérstök sjávarútvegsdeild hefur verið sett á stofn í Fjöltækniskólanum og unnið er að því koma á fót fjölvirkjanámi með áherslu á fiskvinnslu á vegum Mennta- og matvælaklasa Vaxtarsamnings Eyjafjarðar.
Samkvæmt 4. gr. laga nr. 19/1992, um starfsmenntun í atvinnulífinu, heyrir starfsfræðsla í fiskvinnslu undir sjávarútvegsráðuneytið. Formleg menntun í fiskvinnslu, sambærileg því sem Fiskvinnsluskólinn í Hafnarfirði og Fiskvinnsludeildin á Dalvík buðu upp á ásamt því námsframboði sem er fyrir hendi og að framan er frá greint er hins vegar á verkefnasviði menntamálaráðuneytisins.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1137 — 600. mál.
Svar