Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 608. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1140  —  608. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóns Kr. Óskarssonar um alþjóðleg útboð.

     1.      Hvernig eru tilboð metin í verk sem ríkið býður út á alþjóðlegum markaði?
    Lög um opinber innkaup, nr. 94/2001, fjalla um innkaup hins opinbera þegar kaup á vörum, þjónustu og verkum fara yfir ákveðin viðmiðunarmörk og þar er m.a. fjallað um val á tilboði. Við valið skal gengið út frá hagkvæmasta boði. Hagkvæmasta tilboð er samkvæmt lögunum það boð sem er lægst að fjárhæð eða það boð sem fullnægir þörfum kaupanda best samkvæmt þeim forsendum sem settar hafa verið fram í útboðsgögnum.
    Ef kaupandi hyggst meta hagkvæmni tilboðs á grundvelli fleiri forsendna en verðs skal í útboðsgögnum tiltekið hverjar þessar forsendur eru og þeim raðað eftir mikilvægi, nema slíkt sé útilokað. Sönnunarbyrðin fyrir því að útilokað sé að raða forsendum upp eftir mikilvægi hvílir á kaupanda. Ef nota á reiknilíkan þar sem hverju tilboði eru gefnar einkunnir samkvæmt tilteknum viðmiðum þurfa fullnægjandi upplýsingar um líkanið að koma fram í útboðsgögnum.

     2.      Telur ráðherra koma til greina að taka tillit til innlendra tekna sem verkefni skapa, séu þau unnin hérlendis, við samanburð á tilboðum?
    Í 11. gr. laga um opinber innkaup er kveðið á um jafnræði bjóðenda. Samkvæmt greininni má ekki mismuna bjóðendum á neinn hátt, og tekur þetta ákvæði til bjóðenda á Evrópska efnahagssvæðinu og þeirra sem eiga aðild að samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um opinber innkaup frá árinu 1994 (GPA, Government Procurement Agreement).
    Í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið er ákvæði um fjórfrelsið, þ.e. frjálst flæði vöruflutninga, fólksflutninga, þjónustustarfsemi og fjármagnsflutninga um efnahagssvæðið án hvers konar hindrana.
    Í 1. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið segir:
             „1. Markmið þessa samstarfssamnings er að stuðla að stöðugri og jafnri eflingu viðskipta- og efnahagstengsla samningsaðila við sömu samkeppnisskilyrði og eftir sömu reglum með það fyrir augum að mynda einsleitt Evrópskt efnahagssvæði sem nefnist hér á eftir EES.
             2. Til að ná þeim markmiðum sem sett eru í 1. mgr. skal samstarfið í samræmi við ákvæði samnings þessa fela í sér:
                  a.      frjálsa vöruflutninga;
                  b.      frjálsa fólksflutninga;
                  c.      frjálsa þjónustustarfsemi;
                  d.      frjálsa fjármagnsflutninga …“
    Í 4. gr. samningsins segir: „Hvers konar mismunun á grundvelli ríkisfangs er bönnuð á gildissviði samnings þessa nema annað leiði af einstökum ákvæðum hans.“
    Í þessu sambandi má benda á dóma Evrópudómstólsins: mál nr. 21/88, Du Pont Nemors, 20. mars 1990, og mál nr. 3/1988, framkvæmdastjórnin gegn Ítalíu, 5. desember 1989.
    Mál Du Pont Nemors snerist um ítalska reglu þess efnis að 30% af opinberum innkaupum á Suður-Ítalíu skyldu gerð hjá fyrirtækjum á svæðinu. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að lög sem veita framleiðsluvörum frá tilteknu héraði eða svæði forgangsrétt væru í andstöðu við ákvæði Rómarsáttmálans. Þau hefðu í för með sér mismunun gagnvart vörum frá öðrum aðildarríkjum og hindruðu frjáls vöruskipti á svæðinu.
    Mál framkvæmdastjórnarinnar gegn Ítalíu varðaði ítölsk lög sem mæltu fyrir um að einungis fyrirtæki sem ítalska ríkið ætti að öllu eða einhverju leyti mætti fá samninga um tölvuþjónustu við ríkið. Í dómnum kom fram að sá sem vill bera fyrir sig öryggi ríkisins og skjalaleynd hefur sönnunarbyrðina fyrir því að undanþága frá almennum reglum sé nauðsynleg og að þær ráðstafanir sem séu til umræðu megi ekki brjóta í bága við meðalhófsregluna.
    Af framansögðu leiðir að óheimilt er við samanburð á tilboðum að taka tillit til innlendra tekna sem verkefni skapa.