Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 543. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1145  —  543. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um samstarf Vestur-Norðurlanda í alþjóðlegri baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa, umhverfisvernd og notkun umhverfisvænna orkulinda.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins.
    Málið var sent til umsagnar og bárust umsagnir frá Hafrannsóknastofnuninni, Náttúrufræðistofnun Íslands og Veiðimálastofnun.
    Með tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að hefja samstarf um að Vestur- Norðurlönd standi saman í fararbroddi í alþjóðlegri baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa, umhverfisvernd og notkun umhverfisvænna orkulinda. Með ályktun nr. 2/2005 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins 22.–24. ágúst 2005 voru stjórnvöld á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi hvött til að hefja samstarf um að Vestur-Norðurlönd verði í fararbroddi í alþjóðlegri baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa, umhverfisvernd og notkun umhverfisvænna orkulinda.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 5. apríl 2006.



Halldór Blöndal,


form., frsm.


Össur Skarphéðinsson.


Magnús Stefánsson.



Drífa Hjartardóttir.


Jón Gunnarsson.


Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.