Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 420. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1163 — 420. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um launa- og starfskjör skráðra félaga í Kauphöllinni.
1. Hvaða skráð félög í Kauphöllinni og á tilboðsmarkaði hennar hafa farið eftir reglum sem Kauphöllin setti um mitt ár 2003 um launakjör stjórnarmanna og æðstu stjórnenda? Hvaða skráð félög hafa ekki gert slíkt? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir upplýsingum hvers félags um sig um launakjör einstakra stjórnarmanna og æðstu stjórnenda, þ.m.t. kaupréttarsamninga eða sambærilega samninga, ráðningar- eða starfslokasamninga og hlutafjáreign þeirra, sömuleiðis upplýsingum um óvenjuleg viðskipti eða samninga og lífeyrisréttindi umfram það sem venjulegt er.
Öllum félögum sem skráð eru í Kauphöll Íslands er skylt að fylgja reglum Kauphallarinnar fyrir útgefendur og eru núgildandi reglur frá 1. janúar 2006. Í júlí 2003 kom inn í reglurnar ákvæði sem gerir skráðum félögum skylt að veita upplýsingar í ársreikningum sínum um launakjör stjórnarmanna og æðstu stjórnenda (kafli 2.5). Skráð félög hafa frá og með ársreikningum 2004 vegna ársins 2003 fylgt reglum þessum. Samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni er sá háttur hafður á þegar skráð félög birta ársreikninga sína að starfsmenn hennar fara yfir upplýsingar sem þar koma fram með reglur Kauphallarinnar til hliðsjónar. Séu reglurnar ekki uppfylltar er kallað eftir þeim upplýsingum sem vantar og þær birtar í fréttakerfi Kauphallarinnar um leið og þær berast. Kauphöllin bendir á að hún beiti útgefendur ekki opinberum viðurlögum nema um alvarleg brot á reglum um upplýsingagjöf sé að ræða en hafi, samkvæmt samningi, rétt til að áminna útgefendur óopinberlega eða opinberlega í fréttakerfi sínu og beita févíti. Kauphöllin sé því bundin trúnaði um einstök eftirlitsmál en til að auka gagnsæi og upplýsingar á markaði hefur Kauphöllin sl. þrjú ár birt árlega svokallað „Yfirlit eftirlitsmála“ sem er að finna á heimasíðu hennar.
Samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni eru ekki gerð yfirlit yfir upplýsingagjöf hvers félags um launakjör einstakra stjórnarmanna og æðstu stjórnenda eins og óskað er eftir í fyrirspurninni. Tilgangur upplýsingagjafar skráðra félaga sé að gera fjárfestum kleift að gera sér grein fyrir verðmæti félaga og fjárfestingartækifærum sem í þeim felast og því telur Kauphöllin það ekki falla undir hlutverk sitt að gera samantekt eins og beðið er um í fyrirspurninni. Kauphöllin hefur bent á að upplýsingar frá skráðum félögum sé að finna á fréttavef hennar en mikil vinna sé að gera yfirlit eins og beðið er um og ekki verði séð að slík yfirlit þjóni hagsmunum markaðarins. Því hefur ekki tekist að afla allra þeirra upplýsinga sem um er beðið.
2. Hvaða félög skráð í Kauphöllinni og á tilboðsmarkaði hennar hafa farið að leiðbeinandi reglum um skipan óháðra aðila í stjórnir fyrirtækjanna og skipan starfskjaranefndar og hvaða fyrirtæki hafa ekki gert það?
Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja komu fyrst út í mars 2004 en voru endurskoðaðar í lok síðasta árs. Að þeim standa Viðskiptaráð Íslands, Kauphöll Íslands og Samtök atvinnulífsins. Félögum sem skráð eru í Kauphöll Íslands ber frá 1. janúar 2005 að lýsa því yfir í ársreikningi og/eða ársskýrslu hvort félagið fylgi leiðbeiningunum, sbr. reglur Kauphallar Íslands fyrir útgefendur verðbréfa (grein 2.5.9). Hafi félagið ekki fylgt þeim að öllu leyti skal greina frá frávikum, því tímabili þegar vikið var frá tilteknum ákvæðum og skýra ástæðurnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Íslands gerðu 23 af 24 skráðum félögum í Kauphöllinni grein fyrir því hvort þau fylgdu leiðbeiningunum árið 2005 eða væru með frávik frá þeim. Af þeim fylgdu 10 félög reglunum án frávika en 13 greindu frá frávikum. Í átta tilvikum var greint frá frávikum frá reglum um óháða stjórnarmenn, í ellefu tilvikum var greint frá frávikum frá reglum um endurskoðunarnefnd og í átta tilvikum var greint frá frávikum frá reglum um starfskjaranefnd. Þrátt fyrir að skráðum félögum væri ekki skylt að gera grein fyrir því hvort þau fylgdu leiðbeiningunum árið 2004, þá gerðu 59% þeirra grein fyrir því það ár. Þar af fylgdi helmingur reglunum að öllu leyti en helmingur gerði grein fyrir frávikum.
Líta þarf til þess þegar fjallað er um leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja að stutt er síðan þær voru kynntar hér á landi og telja verður eðlilegt að nokkurn tíma taki að innleiða þær að fullu. Þá kunna að vera eðlilegar skýringar á að þeim skuli ekki vera fylgt í öllum atriðum. Það er mat Kauphallarinnar að innleiðing reglnanna sé komin lengra á veg hér á landi en í ýmsum löndum sem við berum okkur saman við.
Í þessu sambandi er rétt að nefna að í frumvarpi til laga um breytingu á hlutafélagalögum sem nú er til umfjöllunar á Alþingi eru ákvæði þar sem kveðið er á um stjórnarhætti og starfskjör stjórnenda hlutafélaga. Verði frumvarpið að lögum verður m.a. ekki heimilt að víkja frá þeirri kröfu að starfskjarastefna sé lögð fyrir aðalfund til samþykktar.
3. Hve oft hefur Kauphöllin gert athugasemdir við að ekki hafi verið farið að leiðbeinandi tilmælum um stjórnarhætti í fyrirtækjum og hver eru þau tilvik?
Samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni hefur aldrei verið veitt formleg áminning vegna þess að félag fari ekki að leiðbeinandi tilmælum um stjórnarhætti fyrirtækja. Skráðum félögum er heimilt að víkja frá þeim, svo framarlega sem þau frávik eru tilgreind í ársskýrslu, sem og ástæður þeirra.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1163 — 420. mál.
Viðbótarsvar