Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 593. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Prentað upp.

Þskj. 1271  —  593. mál.
Leiðréttur texti.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um viðbúnað við áföllum í fjármálakerfinu.

     1.      Liggur fyrir skýrsla eða viðbragðsáætlun eftir tveggja ára óformlegt samráð forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytisins, Fjámálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands um viðbúnað og viðbrögð ef upp kemur fjármálakreppa eða alvarleg áföll verða í fjármálakerfinu?
     2.      Ef svo er, verður þessi skýrsla gerð opinber? Ef ekki, mun ráðherra verða við ósk um að efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis verði kynnt efni hennar?
     3.      Hver er skilgreind verkefnalýsing í því formlega samráði sem komið var á um miðjan febrúar sl. á milli fyrrgreindra aðila, sbr. 1. tölul.?

    Vinnuhópur undir forystu ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins sem skipaður var í ársbyrjun 2004 til að skoða viðbúnað stjórnvalda við hugsanlegum áföllum í fjármálakerfum skilaði skýrslu 17. febrúar sl. Skýrslan er á vef forsætisráðuneytis. Meðal tillagna vinnuhópsins var að skipaður yrði sérstakur samráðshópur fulltrúa Fjármálaeftirlits, Seðlabankans, fjármálaráðuneytisins, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins og forsætisráðuneytisins sem jafnframt stýrði hópnum. Helstu verkefni þessa samráðshóps eru að fjalla um stöðu og horfur á fjármálamörkuðum, og fylgjast með meiri háttar breytingum á lögum, reglum og starfsháttum er varða fjármálamarkaðinn, ásamt því að fara með álitamál í alþjóðlegu samstarfi, sérstaklega innan EES. Samráðshópurinn verður vettvangur upplýsinga- og skoðanaskipta. Hann verður ráðgefandi og tekur ekki ákvarðanir um aðgerðir. Samráðshópurinn útbýr og heldur við lista yfir helstu tengiliði. Hann getur staðið að og tekið þátt í viðlagaæfingum eins og þeim sem hafa farið fram í samvinnu Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands. Skapist þær aðstæður að fjármálakerfinu sé talin hætta búin vegna áfalls í fjármálafyrirtæki eða á markaði skal efnt til umfjöllunar í samráðshópnum án tafar.

     4.      Hafa verið mótaðar reglur um viðbúnað við áföllum í fjármálakerfinu og hvert er megininntak þeirra reglna?
     5.      Hvaða reglur gilda annars staðar á Norðurlöndum um viðbúnað við fjármálakreppu eða alvarlegum áföllum í fjármálakerfinu?

    Í lögum um Seðlabanka Íslands nr. 36/2001 er kveðið á um heimild hans til þess að gegna hlutverki lánveitanda til þrautavara. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum hefur bankinn mótað eigin reglur, innanhússreglur, um viðbúnað sinn til þess að bregðast við lausafjárerfiðleikum í samræmi við þessa heimild. Reglurnar varða viðbrögð, fyrirkomulag og meðhöndlun Seðlabankans í slíkum tilvikum. Þær hafa ekki verið birtar opinberlega. Annars staðar á Norðurlöndunum hefur hver seðlabanki mótað eigin reglur um viðbrögð í lausafjárþrengingum banka. Á árinu 2003 gerðu norrænu seðlabankarnir með sér samkomulag um viðbrögð við lausafjárerfiðleikum banka sem starfa í fleiri en einu landanna. Það samkomulag var birt á heimasíðu bankanna á sínum tíma.
    Í ritinu Fjármálastöðugleiki 2006 sem nýkomið er út hjá Seðlabanka Íslands er m.a. fjallað um viðbúnað við áföllum í fjármálakerfinu hér á landi, á Norðurlöndum og í Evrópusambandinu og tengslum Íslands við þá vinnu sem þar fer fram.