Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 759. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1272  —  759. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um upptöku evru.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hyggst ráðherra beita sér fyrir upptöku evrunnar á Íslandi á næstu árum?

    Tilefni fyrirspurnarinnar er væntanlega pistill um Ísland og evruna sem ráðherra ritaði fyrir nokkru.
    Þar var þeirri spurningu velt upp hvort Íslendingar gætu til langframa verið hluti af stóru hagkerfi sem er innri markaður Evrópu þar sem ríkir frelsi í flutningum á fjármagni en samt haldið sjálfstæðri mynt með þeim takmörkunum sem það hefur í för með sér. Jafnframt var þeirri spurningu velt upp hvort hagsmunum Íslands yrði best þjónað með aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu.
    Í framhaldi af þessum pistli leitaði sendiherra ESB á Íslandi, Percy Westerlund, að eigin frumkvæði svara hjá Evrópusambandinu við því hvort mögulegt væri fyrir Ísland að gerast aðili að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU) án aðildar að ESB. Eins og kunnugt er var svar starfsmanna framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins neikvætt.
    Burtséð frá öllu þessu er okkur hollt að hugleiða af fullri alvöru hvort lítill gjaldmiðill hjá þjóð sem á jafnmikið og við Íslendingar undir utanríkisviðskiptum og er jafnháð sveiflum, bæði í verði afurða sem og af náttúrulegum ástæðum, geti tryggt þá festu sem við viljum búa við.
    Það er ekki á stefnuskrá núverandi ríkisstjórnar að taka upp evru sem gjaldmiðil á Íslandi. Hins vegar telur ráðherra það skyldu sína að velta fyrir sér öllum valkostum um starfsumhverfi íslensks atvinnulífs til framtíðar.