Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 786. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1277 — 786. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Halldórs Blöndals um veðurathuganir á Stórasandi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvenær hóf Vegagerðin veðurathuganir á Stórasandi með tilliti til vegagerðar um sandinn og hvaða upplýsingar liggja nú fyrir?
Tveimur litlum sjálfvirkum veðurathugunarstöðvum var komið fyrir á „Stórasandsleið“ seint í september árið 2004. Önnur stöðin er á Stórasandi, skammt norðaustur af Bláfelli – norðan Langjökuls. Hin stöðin er upp af Gilhagadal í Skagafirði, sunnan við Háheiði. Fyrstu gögn frá henni komu um tveimur vikum síðar.
Mældir eru nokkrir veðurfarsþættir: vindstefna og styrkur, og lofthiti og raki. Úr gagnasafninu verður unnið þegar fyrir liggja upplýsingar um nógu langan tíma, reynist gæði gagnanna viðunandi. Hingað til hefur eingöngu verið unnið að gagnasöfnun en stefnt er að frekari úrvinnslu og að koma gögnunum á frambærilegt form á þessu ári.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1277 — 786. mál.
Svar