Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 752. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1278  —  752. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Guðmundar Hallvarðssonar um birgðastöð eldsneytis fyrir höfuðborgarsvæðið.

    Samgönguráðuneytið fékk umsagnir nokkurra aðila um málið, þar á meðal olíufélaganna. Þar sem fyrirspurnin gerir ráð fyrir að í bígerð sé að flytja eldsneytisgeymslur til Helguvíkur er rétt að benda á að starfsleyfi birgðageymslu í Örfirisey gildir til 2024 og eru ekki uppi áform um að hætta geymslu eldsneytis þar.

     1.      Hve miklir verða eldsneytisflutningar til höfuðborgarsvæðisins í tonnum talið ef af áformum verður um flutning birgðastöðvar eldsneytis úr Örfirisey til Helguvíkur?
    Áform um flutning birgðastöðvar eldsneytis úr Örfirisey til Helguvíkur ná eingöngu til þotueldsneytis. Heildarinnflutningur þotueldsneytis nemur nú um 20% alls olíuinnflunings til landsins, eða sem svarar 140 þús. tonnum. Um 7.000 tonn flugeldsneytis eða sem svarar 1% alls olíuinnflutnings til landsins er notað utan Keflavíkurflugvallar og yrði flutt frá Helguvík, þ.e.ef allur innflutningur þotueldsneytis færi þar um.

     2.      Hve margir tankbílar með eldsneyti færu þá um Reykjanesbraut á dag annars vegar og á ári hins vegar? Hve mikið mundi umferð slíkra bíla aukast miðað við núverandi aðstæður?

    Gangi það eftir að allur innflutningur þotueldnseytis til landsins flytjist frá Örfirisey til Helguvíkur munu flutningar flugeldsneytis um Reykjanesbraut dragast saman um sem svarar 95% og fjöldi ferða verða um 200 á ári í stað 4.000. Umfang annarra eldsneytisflutninga frá Örfirisey til Suðurnesja yrði óbreytt en þeir nema alls um 37 þús. tonnum, eða um 22% af heildarnotkun eldsneytis á Suðurnesjum. Að hluta fara þessir flutningar sjóleiðina og að hluta til með bílum.

     3.      Hvaða öryggisráðstafanir þarf að gera hvað varðar umferð um Reykjanesbraut ef eldsneyti verður dreift frá Helguvík?

    Þar sem ekki er á dagskrá að flytja inn annað eldsneyti en flugeldsneyti til Helguvíkur og stórlega mun draga úr flutningum um Reykjanesbraut er ekki þörf á sérstökum öryggisráðstöfunum, umfram það sem nú er.
    Vegagerðin greindi frá því í sinni umsögn að Garðskagavegur frá Helguvík að Reykjanesbraut og þaðan til höfuðborgarsvæðisins, uppfylli þær kröfur sem tíðkast að gera til slíkra flutninga. Þá tók stofnunin einnig fram að álag er langt innan við hættumörk, sérstaklega eftir breikkun Reykjanesbrautar.

     4.      Eru nýjar úrlausnir mögulegar varðandi geymslu eldsneytis og dreifingu á höfuðborgarsvæðinu eða í Helguvík?

    Engar nýjar úrlausnir eru fyrirhugaðar umfram það sem notað er í dag.

     5.      Hve mikið eykst kostnaður við dreifingu á eldsneyti um höfuðborgarsvæðið ef birgðastöð verður í Helguvík?

    Vísar er til áðurframkominna upplýsinga. Beinn innflutningur flugeldsneytis til Helguvíkur hefur ekki áhrif á dreifingarkostnað um höfuðborgarsvæðið fyrir aðrar tegundir eldsneytis.

     6.      Telur ráðherra rétt með tilliti til öryggis að ein stór birgðastöð eldsneytis sé starfrækt fyrir höfuðborgarsvæðið?

    Innflutningur eldsneytis fyrir höfuðborgarsvæðið fer nú um þrjá birgðastöðvar, eina í Hafnarfirði og tvær í Örfirirsey. Auk þess fer fram beinn innflutningur í vaxandi mæli til birgðastöðva utan höfuðborgarsvæðisins. Á liðnum árum hefur birgðastöðvum fækkað af skipulags-, hagkvæmnis- og umhverfisástæðum. Þær birgðastöðvar sem nú eru í rekstri eru af þeim sökum stærri og öflugri vegna aukins magns sem um þær fer og bættra mengunarvarna. Skeljungur tekur það fram í sinni umsögn að undanfarin ár hafi öryggi aukist í rekstri birgðastöðvar fyrir eldsneyti.