Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 798. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1289 — 798. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar um neysluviðmiðun.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvað líður störfum starfshóps sem skipaður var til þess að hafa umsjón með forkönnun á framkvæmd neysluviðmiðunar og ljúka átti störfum í árslok 2005?
2. Hvenær verða lagðar fyrir Alþingi niðurstöður könnunar á notkun neysluviðmiðana í nágrannalöndum Íslendinga ásamt mati á því hvort ástæða sé til þess að samræma slíkar neysluviðmiðanir hér á landi, sbr. ályktun Alþingis frá 19. maí 2001?
Á undanförnum árum hefur viðskiptaráðherra tekið þátt í umræðum á vettvangi norrænu ráðherranefndarinnar á sviði neytendamála um reynslu annarra Norðurlanda af notkun neysluviðmiða eða neyslustaðla. Árið 1991 veitti t.d. norræna embættismannanefndin um neytendamál styrk til Neytendasamtakanna til að taka saman skýrslu um hvort unnt væri að setja saman neysluviðmið á Íslandi og var sú skýrsla gefin út af norrænu ráðherranefndinni (nr. 1993:525 viðmiðunarneysla fyrir íslensk heimili). Mál þetta náði þó ekki lengra að sinni.
Reynslan hefur sýnt að ýmsir opinberir aðilar reikna út neysluviðmið í tengslum við þá starfsemi sem þeir veita, t.d. Ráðgjafastofa um fjármál heimila, Atvinnuleysistryggingasjóður, Lánasjóður íslenskra námsmanna, Félagsaðstoð sveitarfélaganna, Íbúðalánasjóður og Tryggingastofnun. Auk þess styðjast einkaaðilar, t.d. viðskiptabankar og sparisjóðir, við eigin viðmiðanir í starfsemi sinni. Framangreind staða sýnir glöggt að æskilegt er að eitt almennt neysluviðmið verði sett fram hér á landi.
Í skýrslu nefndar um könnun á kostum og göllum þess að taka upp fjölþrepa tekjuskatt hjá einstaklingum sem skilaði áliti árið 2003 kom fram að nefndin taldi brýna þörf á viðmiðunarreglum sem nota mætti m.a. við útreikning á greiðslubyrði, félagslegum bótum o.fl. og lagði til að unnin yrði neysluviðmiðun fyrir Ísland og setti fram hugmyndir um hvernig standa ætti að slíku starfi.
Á formennskuári Íslands í norrænu ráðherranefndinni árið 2004 ákvað viðskiptaráðherra að hér á landi yrði haldið norrænt málþing um reynslu Norðurlanda af neysluviðmiðun. Framangreint málþing var haldið 30.–31. ágúst 2004 og sóttu málþingið liðlega 30 innlendir og erlendir sérfræðingar.
Í ljósi umræðna og áhuga hér á landi fyrir því að áfram væri unnið að athugun á því hvort ekki væri unnt að semja og setja í framkvæmd neysluviðmið hér á landi skipaði viðskiptaráðherra hinn 7. desember 2004 nefnd á grundvelli samþykktar í ríkisstjórn um að veita 2 millj. kr. af ráðstöfunarfé sínu til að hefja verkið. Í skipunarbréfi nefndarinnar frá 7. desember 2004 segir m.a.:
„Á liðnum árum hafa neytendamálaráðherrar Norðurlandanna rætt um gagnsemi s.n. neyslustaðla (standard budgeter) fyrir heimili og aðra aðila sem þarfnast upplýsinga um raunverulegan framfærslukostnað heimila. Nágrannaríki okkar hafa þróað slíkar neysluviðmiðanir fyrir neytendur.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að viðskiptaráðherra skipi starfshóp er skuli hafa umsjón með gerð forkönnunar á því hvort framkvæmanlegt er á Íslandi að semja slíka neysluviðmiðun, hverjir séu kostir þess og gallar miðað við íslenskar aðstæður. Einnig skal metið hvaða kostnaður kunni að fylgja því að viðhalda slíkum grunni þannig að hann haldi áfram að gefa raunhæfa mynd varðandi þá þætti framfærslukostnaðar sem eðlilegt er að séu í íslenskri útgáfu neysluviðmiðunarinnar.
Í starfshópnum eiga sæti fulltrúar félagsmálaráðuneytis, fjármálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, Hagstofu Íslands og viðskiptaráðuneytis.“
Jafnframt segir í skipunarbréfinu:
„Lögð er áhersla á að starfshópurinn nýti sér þær rannsóknir og vinnu sem önnur Norðurlönd hafa lagt í á þessu sviði, en SIFO í Noregi (norska neytendarannsóknastofnunin) hefur boðið fram aðstoð við þetta starf hér á landi.
Gert er ráð fyrir að með starfshópnum muni starfa sérfræðingur við rannsóknastofnun háskóla sem faglegur ráðgjafi og starfsmaður. Starfshópurinn skal skila skýrslu til viðskiptaráðherra eigi síðar en 31. desember 2005.“
Samkvæmt skipunarbréfi ráðherrra var óskað eftir því að starfshópurinn skilaði áliti sínu eigi síðar en 31. desember 2005. Ýmsar ástæður leiddu til þess að ekki tókst að ljúka starfinu á tilskildum tíma. Samkvæmt upplýsingum sem ráðuneytið hefur aflað sér frá formanni starfshópsins hefur að undanförnu verið unnið samkvæmt ákveðinni tímaáætlun og er þar miðað við að endanlegu áliti verði skilað til viðskiptaráðherra eigi síðar en 10. júní 2006. Þegar skýrsla starfshópsins liggur fyrir verður tekin ákvörðun um frekari framvindu málsins.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1289 — 798. mál.
Svar