Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 749. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1302 — 749. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðjóns Hjörleifssonar um hjúkrunarrými í Suðurkjördæmi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu mörg hjúkrunarrými eru í notkun í Suðurkjördæmi og hversu mörg hjúkrunarrými er áætlað að verði tekin í notkun í kjördæminu á næstu fjórum árum?
Samanlagt eru þetta því 237 hjúkrunarrými.
Í Reykjanesbæ er áætlað að byggja hjúkrunarheimili með 30 hjúkrunarrýmum og mun það fela í sér aukningu um 10 hjúkrunarrými. Þá er í byggingu á Selfossi hjúkrunarheimili með um það bil 40 hjúkrunarrýmum, en 26 verða lögð niður á Ljósheimum, þannig að fjölgunin nemur um 12 rýmum. Samtals er því áætlað að fjölga hjúkrunarrýmum í kjördæminu um 24 á næstu árum.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1302 — 749. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðjóns Hjörleifssonar um hjúkrunarrými í Suðurkjördæmi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu mörg hjúkrunarrými eru í notkun í Suðurkjördæmi og hversu mörg hjúkrunarrými er áætlað að verði tekin í notkun í kjördæminu á næstu fjórum árum?
| Hornafjörður | 26 |
| Klaustur | 17 |
| Vík | 12 |
| Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum | 16 |
| Hraunbúðir, Vestmannaeyjum | 30 |
| Kirkjuhvoll, Hvolsvelli | 11 |
| Lundur, Hellu | 25 |
| Blesastaðir, Skeiðum | 3 |
| Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Ljósheimar | 26 |
| Kumbaravogur, Stokkseyri | 42 |
| Sólvellir, Eyrarbakka | 3 |
| Ás, Hveragerði | 26 |