Skýrsla
fjármálaráðherra um viðskipti með aflaheimildir, samkvæmt beiðni.
(Lögð fyrir Alþingi á 132. löggjafarþingi 2005–2006.)
Með beiðni (á þskj. 495) frá Jóhanni Ársælssyni og fleiri alþingismönnum er þess óskað að fjármálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um viðskipti með aflaheimildir á síðustu fjórum árum. Í skýrslunni skyldi koma skýrt fram hvaða viðskiptahættir hafi tíðkast með aflahlutdeildir og aflamark og hvernig skattalega meðferð verðmæti fái í þeim viðskiptum. Verði í þeim tilgangi leitað eldri upplýsinga ef þörf krefur.
Auk þess sem að framan er getið er í beiðni þingmannanna jafnframt að finna nánari lýsingu á því sem fram á að koma í skýrslu fjármálaráðherra og er skýrslan unnin í samræmi við þá skiptingu.
Leitað var eftir upplýsingum frá sjávarútvegsráðuneyti og Fiskistofu svo og embætti ríkisskattstjóra um vinnslu skýrslunnar og fylgja svör þessara aðila með skýrslunni sem fylgiskjöl. Jafnframt var horft til svars sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar um flutning veiðiheimilda fiskveiðiárin 2003/2003 og 2004/2005 sem lögð var fram fyrr á þessu löggjafarþingi (272. mál).
Við vinnslu skýrslunnar kom fljótlega í ljós að ýmsum vandkvæðum var bundið að afla þeirra upplýsinga sem um var beðið eins og nánar er vikið að síðar. Jafnframt virðist gæta ákveðins misskilnings um hlutverk skattyfirvalda í þessu tilliti. Þrátt fyrir það er leitast við að svara þeim spurningum sem fyrir fjármálaráðherra voru lagðar í umræddri fyrirspurn.
1. Fram komi með hvaða hætti sjávarútvegsráðuneyti, Fiskistofa og aðrar opinberar stofnanir koma að þessum viðskiptum og hvernig milliganga Fiskistofu um viðskipti með þessi verðmæti nýtist skattyfirvöldum til eftirlits. Fyrir liggur það mat ríkisskattstjóra að tilkynna skuli Fiskistofu verð aflamarks ef flutnings þess milli skipa er óskað. Ætla má að sama regla gildi um flutning aflahlutdeildar. Lagt verði mat á hvort starfshættir Fiskistofu við millifærslur á aflaheimildum auðveldi útgerðum að stunda viðskiptahætti sem ekki samrýmast skattalögum, lögum um virðisaukaskatt og lögum og reglum sem gilda um reikningshald fyrirtækja og ef svo reynist, hvernig úr megi bæta.
Í grófum dráttum má skipta framangreindum lið skýrslubeiðninnar í fjóra hluta. Í fyrsta lagi er spurt um aðkomu opinberra aðila, s.s. sjávarútvegsráðuneytis, Fiskistofu og annarra opinberra aðila, að viðskiptum með aflaheimildir. Í öðru lagi er spurt um nýtingu skattyfirvalda á upplýsingum frá Fiskistofu um aflaheimildir við skatteftirlit. Í þriðja lagi er vitnað í „mat ríkisskattstjóra að tilkynna skuli Fiskistofu verð aflamarks“. Í fjórða lagi er óskað eftir mati á starfsháttum Fiskistofu við millifærslur á aflaheimildum frá sjónarhóli skattalaga og laga um reikningshald fyrirtækja.
Samkvæmt gildandi lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, annast Fiskistofa flutning aflahlutdeildar og aflamarks milli fiskiskipa, sbr. 6. mgr. 11. gr. og 12. gr. laganna, sem finna má í fylgiskjölum með skýrslunni. Sá aðili sem óskar eftir flutningi lætur Fiskistofu í té upplýsingar um magn aflamarks, auk upplýsinga um verð, nema þegar aflamark er flutt á milli skipa í eigu sama aðila, einstaklings eða lögaðila. Tilkynningu um flutning aflamarks skal fylgja staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs um að fyrir liggi samningur útgerðar og áhafnar þess skips sem aflamarkið er flutt til, um fiskverð til viðmiðunar hlutaskiptum. Flutningur aflamarks öðlast ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann.
Fiskistofa birtir daglega aðgengilegar upplýsingar um flutning aflamarks, þar á meðal um magn eftir tegundum, auk upplýsinga um verð, þar sem við á. Skylda til að tilkynna verð aflamarks var sett með lögum nr. 34/2001, um kjaramál fiskimanna o.fl., og tók gildi 1. júní árið 2001. Sé verð, í tilkynningu um færslu aflamarks milli skipa í eigu tveggja eigenda, langt undir því sem almennt gerist, óskar Fiskistofa eftir skriflegum útskýringum áður en flutningur aflamarks er staðfestur. Ekkert ákvæði í gildandi lögum heimilar Fiskistofu að hafna flutningi aflamarks á þeim grundvelli að verð sé með einhverjum hætti óeðlilegt. Af þessari lýsingu sést að eini opinberi aðilinn sem hefur beina aðkomu að viðskiptum með aflaheimildir er Fiskistofa á grundvelli laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, en þau lög eru á ábyrgð sjávarútvegsráðherra.
Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra nýtast þau gögn sem Fiskistofa aflar um viðskipti með aflaverðmæti skattyfirvöldum sjaldnast með beinum hætti til eftirlits. Skatteftirlit byggist alla jafna á úrtaki fyrirtækja, þ.e. völdu safni af kennitölum lögaðila í atvinnurekstri, þar sem skattyfirvöld óska eftir upplýsingum, m.a. í formi bókhalds og fylgiskjala, með beinum hætti frá þeim aðila sem eftirlitið beinist að.
Rétt þykir að leiðrétta þann misskilning sem gætir í þriðja hluta þessa liðar skýrslubeiðninnar um að það sé mat ríkisskattstjóra „að tilkynna skuli Fiskistofu verð aflamarks ef flutnings þess milli skipa sé óskað“. Þessi ályktun er dregin af efni ákvarðandi bréfs ríkisskattstjóra til skattstjóra frá 30. júlí 2002, sbr. fylgiskjal III. Í því bréfi er embætti ríkisskattstjóra einungis að árétta hinar almennu reglur skattalaga varðandi reikningshald hjá sjávarútvegsfyrirtækjum, að viðskipti, þ.m.t. viðskipti með aflaverðmæti, séu færð til bókar á eðlilegu verði, þ.e. gangverði eins og það gerist í viðskiptum óháðra aðila. Í bréfinu bendir embættið skattstjórum m.a. á þann möguleika að nota upplýsingaveitu Fiskistofu við mat á eðlilegu gangverði, enda sé skylt að tilkynna þeirri stofnun, þ.e. Fiskistofu, flutning aflamarks og verð þess. Jafnframt er bent á kvótamiðlun LÍÚ í sama tilgangi. Með öðrum orðum, tilkynningarskylda aðila um verð aflamarks ef flutnings þess milli skipa er óskað, byggist ekki á áliti ríkisskattstjóra, heldur lögum nr. 34/2001, um kjaramál fiskimanna o.fl., sem tóku gildi 1. júlí 2001, eins og áður var bent á.
Að lokum er óskað eftir mati á því hvort starfshættir Fiskistofu við millifærslur á aflaheimildum auðveldi útgerðum að stunda viðskiptahætti sem ekki samrýmast skattalögum, lögum um virðisaukaskatt og lögum og reglum sem gilda um reikningshald fyrirtækja. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki annað séð en starfshættir Fiskistofu samrýmist fyllilega því hlutverki sem henni er ætlað samkvæmt gildandi lögum, sem er að annast flutning aflahlutdeildar og aflamarks milli skipa, jafnframt því að safna og skrá upplýsingar um magn og verð afla og aflaheimilda óháð þörf annarra aðila, s.s. skattyfirvalda, um gangverð í slíkum viðskiptum. Eins og bent hefur verið á geta upplýsingar Fiskistofu um verð í viðskiptum með aflaverðmæti verið leiðbeinandi fyrir skattyfirvöld við mat á því hvað sé eðlilegt gangverð í slíkum viðskiptum. Út frá því sjónarhorni er vitaskuld brýnt að þær upplýsingar sem fyrir liggja hjá Fiskistofu gefi glögga mynd af stöðu þessara mála. Á hinn bóginn dregur upplýsingaskylda sjávarútvegsfyrirtækja gagnvart Fiskistofu ekkert úr þeirri sjálfstæðu upplýsingaskyldu sem sömu aðilar hafa gagnvart skattyfirvöldum á grundvelli skattalaga og laga um bókhald og gerð ársreikninga, hvort heldur um er að ræða álagningu skatta eða skatteftirlit.
2. Leitt verði í ljós hvernig útgerðir bókfæra verðmæti aflahlutdeilda í einstökum tegundum og hvort brögð séu að því að aflahlutdeildir séu fluttar milli útgerða á verði sem víkur frá gildandi markaðsverði. Ef svo reynist verði leitast við að leggja mat á það hve mikið vanti á að heildarverðmæti séu skráð á markaðsverði í þessum viðskiptum og hvort viðskiptin samrýmist lögum.
Samkvæmt svörum frá embætti ríkisskattstjóra er ekki að finna í gögnum skattyfirvalda upplýsingar af því tagi sem hér er beðið um. Til þess að hægt væri að upplýsa nánar um þær matsaðferðir sem útgerðarfyrirtæki beita gagnvart einstökum tegundum þyrfti aðgang að og könnun á bókhaldi og fylgiskjölum þeirra fyrirtækja sem um ræðir. Slíkt er ekki á færi ráðuneytisins. Sama gildir um það atriði hvort aflahlutdeildir séu fluttar milli útgerða á verði sem víkur frá gildandi markaðsverði. Af því leiðir að engar upplýsingar eru fyrirliggjandi um það hvort og þá hversu mikið vanti á að heildarverðmæti umræddra viðskipta séu skráð á markaðsverði í þessum viðskiptum og hvort viðskiptin samrýmist lögum.
Þess má þó geta að í eftirlitsáætlun ríkisskattstjóra fyrir árið 2004 sem lögð er til grundvallar við skatteftirlit einstakra skattstjóra eru eftirliti með sjávarútvegsfyrirtækjum gerð nokkur skil. Þar er m.a. lagt til að viðskipti með aflamark og aflahlutdeild verði könnuð sérstaklega, með hliðsjón af áðurnefndu bréfi ríkisskattstjóra um viðskipti með sjávarafla og aflamark frá 30. júlí 2002. Framkvæmd þessarar áætlunar hefur hins vegar dregist nokkuð, enda afar umfangsmikil, og liggja niðurstöður hennar því enn ekki fyrir.
Í þessu sambandi þarf einnig að hafa í huga að skattyfirvöld hafa víðtækar lagaheimildir til að víkja til hliðar formlegum gjörningum uppfylli þeir ekki skilyrði skattalaga um eðlilegt gangverð í viðskiptum milli óskyldra aðila, sbr. 57. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, um óvenjuleg skipti í fjármálum. * Þessar heimildir ná jafnt yfir fyrirtæki í sjávarútvegi sem og fyrirtæki í annarri starfsemi. Í þeim tilvikum ákveða skattstjórar skattverð viðskiptanna og getur sú ákvörðun haft veruleg áhrif á skattheimtu, einkum tekjuskatt. Áhrif slíkrar ráðstöfunar eru alla jafna minni hvað virðisaukaskattinn varðar, enda fæst innskattur fiskvinnslu sem myndar útskatt hjá útgerðinni endurgreiddur að langmestu leyti vegna vsk-undanþágu útflutnings.
3. Skoðað verði hvort brögð séu að því að viðskiptum með aflahlutdeildir sé blandað saman við önnur viðskipti, t.d. með fisk, skip eða búnað, og hvort markaðsverð aflahlutdeilda, fisks eða annarra verðmæta kunni að vera rangt metið í slíkum viðskiptum. Ef svo reynist skal leitast við að leggja mat á hve mikið vanti á að heildarverðmæti sé rétt skráð í þessum viðskiptum og hvort lög og/eða samningar við sjómenn um hlutaskipti séu brotin með þeim.
Samkvæmt ákvæðum laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, þarf að aðgreina viðskipti með aflahlutdeild frá öðrum viðskiptum, eins og kaupum á skipi eða búnaði. Ástæðan er sú að kaup á aflahlutdeild er ófyrnanleg eign, sbr. 48. gr. umræddra laga, en fjárfestingar í formi skipa eða búnaðar ber að fyrna samkvæmt ákvæðum sömu laga. Viðskipti með hvorn þátt um sig skal færa á markaðsvirði og miða skattuppgjör við það.
Frá embætti ríkisskattstjóra fást þau svör að upplýsingar af því tagi sem hér er beðið um sé ekki að finna í gögnum skattyfirvalda. Að öðru leyti er vísað til athugasemda við 2. lið skýrslubeiðninnar, sbr. umfjöllun hér að framan.
4. Leitt verði í ljós hvernig útgerðir bókfæra verðmæti aflamarks í einstökum tegundum og hvort brögð séu að því að aflamark sé flutt milli útgerða á verði sem víkur frá gildandi markaðsverði þeirra. Ef svo reynist skal leitast við að leggja mat á það hve mikið vanti á að heildarverðmæti séu skráð á markaðsverði í þessum viðskiptum og hvort viðskiptin samrýmast lögum.
Hér er spurt um sambærileg atriði og í 2. lið skýrslubeiðninnar að öðru leyti en því að hér er horft á viðskipti með aflamark en ekki aflahlutdeild.
Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu er skilgreining hugtaksins aflamark aflaheimild skips í tegund á tilteknu veiðitímabili en hugtakið aflahlutdeild er hlutfall af leyfilegum afla fiskveiðiárs sem kemur til úthlutunar. Flutningur aflamarks á skip eykur aflaheimildir þess á því veiðitímabili sem stendur yfir þegar flutningurinn á sér stað. Fluttar aflaheimildir á skip auka hins vegar aflaheimildir skipsins varanlega frá og með næsta veiðitímabili eftir að aflahlutdeildin er flutt á skipið.
Samkvæmt lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, er Fiskistofu falið að safna og skrá upplýsingar um magn og verð afla og magn aflaheimilda til þess að ná því markmiði með stjórn fiskveiða að laga aflann að afrakstursgetu fiskstofna. Verð aflaheimilda var hins vegar aðeins skráð að hluta í stuttan tíma eða á meðan Kvótaþing starfaði á tímabilinu 1. september 1998 til 31. maí 2001. Eftir að Kvótaþingið var lagt af hefur verið skylt að gefa upp verð aflamarks í viðskiptum og annast Fiskistofa skráningu þess. Engin opinber skráning er hins vegar í dag á verðum og verðmæti í viðskiptum með aflahlutdeild.
Að öðru leyti er vísað til athugasemda við 2. lið skýrslubeiðninnar, sbr. umfjöllun hér að framan.
5. Skoðað verði hvort brögð séu að því að viðskiptum með aflamark sé blandað saman við önnur viðskipti, t.d. með fisk eða önnur verðmæti, og hvort markaðsverð aflamarks, fisks eða annarra verðmæta kunni að vera rangt metið í slíkum viðskiptum. Ef svo reynist skal leitast við að leggja mat á það hve mikið vanti á að heildarverðmæti séu skráð í þessum viðskiptum og hvort lög og/eða samningar við sjómenn um hlutaskipti séu brotin með þeim.
Hér er spurt um sambærileg atriði og í 3. lið skýrslubeiðninnar að öðru leyti en því að hér er horft á viðskipti með aflamark en ekki aflahlutdeild. Varðandi frekari skýringar er því vísað til athugasemda við 3. lið, sbr. umfjöllun hér að framan.
Fylgiskjal I.
Bréf frá sjávarútvegsráðuneytinu, 21. febrúar 2006.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal II.
Bréf frá ríkisskattstjóra, 28. febrúar 2006.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal III.
Ákvarðandi bréf ríkisskattstjóra.
(Dags. 30. júlí 2002, G-Ákv. 02-1017.)
Efni: Viðskipti með sjávarafla og aflamark
Bréf þetta er ritað skattstjórum á grundvelli 101. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, og 39. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Athygli ríkisskattstjóra hefur verið vakin á viðskiptum af tilteknum toga með sjávarafla og aflaheimildir milli útgerða og fiskvinnslufyrirtækja. Samkvæmt frásögnum eru viðskiptin með eftirgreindum hætti:
Samið er um kauprétt fiskvinnslu á tilteknum afla. Fyrir aflann skal fiskvinnslan greiða tiltekna fjárhæð í peningum, en jafnframt skal hún leggja útgerðinni til tiltekið aflamark (leigukvóta). Aflamarkið getur verið almennt aflamark, krókaaflamark, þorskaflahámark eða sóknardagar eftir því sem veiðileyfi viðkomandi skips eða báts stendur til. Algengt er að fyrir hvert tonn af óslægðum þorski leggi fiskvinnslan til aflamark fyrir tonn af þorski (tonn á móti tonni).
Af framangreindu tilefni vill ríkisskattstjóri taka eftirfarandi fram:
Við færslu viðskiptanna til bókar og í skattskilum verður að líta á viðskiptin í heild. Ljóst er að útgerðin fær fyrir afla, ekki aðeins þá greiðslu sem reidd er fram í peningum, heldur einnig aflamark. Heildarverð aflans er því samtala þeirrar fjárhæðar sem greidd er í peningum og verðmætis þess aflamarks sem lagt er til. Til tekna hjá útgerðinni, sbr. B-lið 7. gr. laga nr. 75/1981, ber að færa heildarverðið og telst það til virðisaukaskattsskyldrar veltu hennar, sbr. 11. gr. laga nr. 50/1988. Útgerðinni ber að tilgreina á sölureikningi heildarverð afla og virðisaukaskatt af því verði, sbr. 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 20. gr. laga nr. 50/1988. Fiskvinnslan byggir síðan gjaldfærslu og innskattsfærslu vegna kaupa á afla á sölureikningi útgerðar.
Aflamark eru bundið við tiltekið skip eða bát, sem veiðileyfi hefur. Fiskvinnsla getur ekki haft yfirráð aflamarks nema að eiga slíkt fley til að vista aflamark á. Dæmi eru um slíkt og er þá aflamark flutt af skipi fiskvinnslunnar til skips útgerðar. Algengara er þó í umræddum viðskiptum að fiskvinnslan eigi ekki skip og þar af leiðandi ekki aflamark. Gerast kaupin þá þannig að fiskvinnsla greiðir fyrir aflamark sem flutt eru af skipi seljanda þeirra yfir á skip útgerðar. Fiskvinnslan eignast þannig að formi til aldrei heimildina heldur leggur út fyrir henni.
Í síðarnefnda tilvikinu má ljóst vera að fé það sem fiskvinnslan reiðir fram við kaup aflamarks myndar, ásamt beinu fjárgreiðslunni fyrir aflann, heildarverð hans. Í fyrrnefnda tilvikinu, þ.e. þegar fiskvinnslan hefur yfir að ráða úthlutuðu aflamarki, kann hins vegar að vera að verðmæti aflamarks liggi ekki fyrir með jafn óyggjandi hætti. Í slíkum tilvikum er rétt að miða verðmæti við almennt gangverð, sbr. skattverðsreglu 2. mgr. 8. gr. laga nr. 50/1988. Þar er kveðið á um að við skipti á vörum og þjónustu beri að miða skattverð við almennt gangverð í sams konar viðskiptum. Við að leiða fram almennt gangverð aflamarks má leita fanga hjá Fiskistofu þar sem skylt er að tilkynna henni flutning aflamarks og verð þess. Einnig er rétt að kanna gangverð aflamarks hjá kvótasölum, t.d. kvótamiðlun LÍÚ. Um gangverð á afla er hægt að afla upplýsinga hjá fiskmörkuðum og Verðlagsstofu skiptaverðs.
Í þeim tilvikum að fiskvinnsla framselur til útgerðar eigið aflamark er um sölu að ræða. Tekjur af slíkri sölu ber fiskvinnslunni að sjálfsögðu að færa sér til tekna í bókhaldi sínu og skattskilum. Í þessu sambandi skal ítrekað að um er að ræða sölu aflamarks (kvótaleigu), en ekki sölu aflahlutdeildar (kvótasölu), sem kaupanda bæri að eignfæra. Söluverð aflamarks telst til veltu undanþeginnar virðisaukaskatti, skv. 6. tl. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988, eins og ákvæðið hefur verið túlkað í skattframkvæmd.
Aflamark, sem útgerðin kaupir með framangreindum hætti, hvort heldur er af fiskvinnslunni eða þriðja aðila fyrir milligöngu fiskvinnslunar, er henni heimilt að gjaldfæra. Sem tekjur af viðskiptunum ber að færa eins og að framan greinir heildarverðið sem fæst fyrir aflann í formi peningagreiðslu og aflaheimildar. Ekki er útgerðinni heimilt að færa aðeins þann hluta sem greiddur er í peningum til tekna. Slíkt samræmist hvorki ákvæðum laga nr. 50/1988 varðandi skattskylda veltu og skattverð, eins og að framan er rakið, né samræmist það ákvæði 6. gr. bókhaldslaga nr. 145/1994 um að bókhaldi skuli haga þannig að á skýran og aðgengilegan hátt megi rekja viðskipti og notkun fjármuna.
Sé aflamark flutt á skip útgerðar áður en gagngjaldið (aflinn) er afhent, þá verður að líta á flutninginn sem fyrirframgreiðslu sem útgerðinni ber að standa skil á virðisaukaskatti af, sbr. 3. mgr. 13. gr. laga nr. 50/1988.
Virðingarfyllst
Bragi Gunnarsson
Ingibjörg Ingvadóttir
- Neðanmálsgrein: 1
-
*
57. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
Ef skattaðilar semja um skipti sín í fjármálum á hátt sem er verulega frábrugðinn því sem almennt gerist í slíkum viðskiptum skulu verðmæti, sem án slíkra samninga hefðu runnið til annars skattaðilans en gera það ekki vegna samningsins, teljast honum til tekna.
Kaupi skattaðili eign á óeðlilega háu verði eða selji eign á óeðlilega lágu verði geta skattyfirvöld metið hvað telja skuli eðlilegt kaup- eða söluverð. Mismun kaupverðs eða söluverðs annars vegar og matsverðs hins vegar skal telja til skattskyldra tekna hjá þeim aðila sem slíkra viðskipta nýtur.