Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 785. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1319  —  785. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Halldórs Blöndals um snjóflóðavarnir í Ólafsfjarðarmúla.

    Fyrirspurnin hjóðar svo:
    Hvað líður rannsóknum á snjóflóðavörnum ofan vegarins um Ólafsfjarðarmúla og hvaða úrræði koma helst til greina til að tryggja öryggi vegfarenda þar?


    Vegagerðin hefur látið gera úttekt á snjóflóðastöðum á Ólafsfjarðarvegi frá Dalvík til Ólafsfjarðar. Nú er unnið að ítarlegri greinargerð um málið ásamt tillögum til úrbóta. Gert er ráð fyrir að greinargerðin verði lögð fram á næstu vikum.
    Fram kemur í fyrirliggjandi drögum að greinargerð að skráð hafa verið 260 snjóflóð úr 13 farvegum frá árinu 1976. Á kaflanum frá Dalvík að gangamunna eru skráð 172 snjóflóð úr 10 farvegum á þessu árabili og á kaflanum frá gangamunna að Ólafsfirði eru skráð 88 snjóflóð úr 3 farvegum. Flest snjóflóð falla niður á veginn við Sauðanes og skammt utan þess og við gangamunnann við Ólafsfjörð.
    Í frumdrögum varnarkosta, sem unnin voru á árunum 2000–2001, kemur fram að á svæðinu utan við Sauðanes, undir Rípli, eru snjóflóðafarvegir það nálægt hver öðrum að nauðsynlegt er að reikna þá sem einn farveg, um 800 m breiðan, þegar áhætta vegfarenda við að lenda í snjóflóði er skoðuð. Hins vegar er viðvera við gangamunna Ólafsfjarðar megin lítil þar sem svæðið er frekar stutt en afleiðingar slyss geta verið mjög alvarlegar.
    Nokkrar tillögur að varnarmannvirkjum hafa verið settar fram og taka þær mið af aðstæðum á hverjum stað. Hér er bæði um að ræða leiðigarða og breiðar vegrásir eða vegskápa með þvergörðum við veginn. Þá er einnig möguleiki á því að lengja gangamunnann Ólafsfjarðar megin.
    Kostnaður við þessar aðgerðir hefur ekki verið metinn enn þá en flest bendir til þess að hann geti numið nokkrum hundruðum milljóna króna.