Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 805. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1321  —  805. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um heilsufarsupplýsingar starfsmanna varnarliðsins.

Frá Jóni Gunnarssyni.



     1.      Er ráðherra kunnugt um að varnarliðið hefur safnað heilsufarsupplýsingum um starfsmenn sína með reglubundnum hætti?
     2.      Er ráðherra kunnugt um að til standi að senda þessar nafngreinanlegu upplýsingar á skjalasafn í Bandaríkjunum?
     3.      Hyggst ráðherra hafa áhrif á hvað verður um þessar persónuupplýsingar nú við brotthvarf varnarliðsins?
     4.      Hyggst ráðherra gera kröfu um að upplýsingarnar verði afhentar viðkomandi starfsmanni, færðar í innlenda sjúkraskrá viðkomandi, óski hann þess, eða þeim eytt að kröfu starfsmanns?


Skriflegt svar óskast.