Þskj. 1401 — 808. mál.
Skýrsla
samgönguráðherra um stöðu umferðaröryggismála fyrir árið 2005.
(Lögð fyrir Alþingi á 132. löggjafarþingi 2005–2006.)
1. Almennt.
Samgönguráðherra tók við umferðaröryggismálum 1. janúar 2004 og er þessi skýrsla lögð fram í hans nafni. Hér er einkum fjallað um stöðu umferðaröryggismála eins og hún var í árslok 2005 og hvernig miðað hefur í átt að settu markmiði.
Með þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi 30. maí 2005 var umferðaröryggisáætlun felld inn í samgönguáætlun. Markmið stjórnvalda um aukið umferðaröryggi til ársins 2016 eru að fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist hjá öðrum þjóðum. Einnig að fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferð lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016.
Í umferðaröryggisáætlun samgönguáætlunar var jafnframt sett fram sérstök framkvæmdaáætlun um sérstakar aðgerðir sem eiga að leiða til fækkunar slysa og lækkunar slysakostnaðar. Til grundvallar á vali aðgerða var stuðst við tillögur starfshóps um umferðaröryggisáætlun til ársins 2012, markmið og aðgerðir. Við mat á forsendum um virkni aðgerða var í flestum tilfellum stuðst við erlendar rannsóknir og ber þá sérstaklega að nefna handbók Transportøkonomisk Institut í Noregi um virkni umferðaröryggisaðgerða.
Aðgerðir sem teknar voru til sérstakrar skoðunar skiptast í eftirtalda flokka:
– minni ökuhraði,
– öruggari vegir,
– betri ökumenn,
– öryggisbúnaður farartækja,
– löggæsla/forvarnir.
1.1 Umferðaröryggisráð.
Samgönguráðherra skipaði sérstakt umferðaröryggisráð sem ætlað er að vinna að framgangi þingsályktunarinnar. Í ráðinu sitja Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu, og er hún formaður ráðsins, Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri.
1.2 Samráðshópur umferðaröryggisáætlunar.
Samgönguráðherra skipaði einnig samráðshóp umferðaröryggisáætlunar. Hlutverk samráðshópsins er að gera starfs- og framkvæmdaáætlun um framgang umferðaröryggisáætlunar, samkvæmt ályktun Alþingis. Samráðshópinn skipuðu árið 2005 Hlynur Hreinsson, hagfræðingur í samgönguráðuneytinu, Birgir Hákonarson, framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu, Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðardeildar hjá Vegagerðinni, og Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóraembættinu.
2. Staða.
2.1 Slysaskýrsla.
Yfirlýst markmið íslenskra stjórnvalda á sviði umferðaröryggis er að fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist hjá öðrum þjóðum og að látnum og alvarlega slösuðum í umferð fækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016. Ljóst er að nokkuð miðar í þá átt. Látnum og alvarlega slösuðum hefur fækkað umtalsvert undanfarin ár í samanburði við meðaltal undanfarins áratugar, þrátt fyrir aukna umferð. Fimm til sex látnir á ári á hverja 100.000 íbúa er það sem best gerist í heiminum og færumst við Íslendingar nær því takmarki með árunum. Á mynd 1 sést hvernig fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferðinni á Íslandi hefur þróast undanfarin ár og markmið til ársins 2016.
Mynd 1. Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra 1991–2005
og markmið umferðaröryggisáætlunar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
(Heimild: Umferðarstofa.)
Árið 2005 létust 19 í 16 umferðarslysum hér á landi og 129 slösuðust alvarlega. Árið 2004 létust 23 í 20 slysum og 115 slösuðust alvarlega. Samkvæmt því náum við markmiðum umferðaröryggisáætlunar fimmta árið í röð, þ.e. fjöldi alvarlega slasaðra og látinna er innan viðmiðunarmarka.
Tafla 1. Látnir og alvarlega slasaðir 1991–2005, samanburður milli ára.
| Ár | Látnir | Alvarlega slasaðir | Látnir og alvarlega slasaðir |
| 1991 | 27 | 230 | 257 |
| 1992 | 21 | 228 | 249 |
| 1993 | 17 | 246 | 263 |
| 1994 | 12 | 242 | 254 |
| 1995 | 24 | 239 | 263 |
| 1996 | 10 | 229 | 239 |
| 1997 | 15 | 203 | 218 |
| 1998 | 27 | 229 | 256 |
| 1999 | 21 | 222 | 243 |
| 2000 | 32 | 169 | 201 |
| 2001 | 24 | 158 | 182 |
| 2002 | 29 | 164 | 193 |
| 2003 | 23 | 145 | 168 |
| 2004 | 23 | 115 | 138 |
| 2005 | 19 | 129 | 148 |
Tafla 2. Fjöldi og hlutfall látinna eftir kyni.
| 2005 | Fjöldi látinna | Hlutfall |
| Karlar | 13 | 68,42% |
| Konur | 6 | 31,58% |
Tafla 3. Fjöldi og hlutfall látinna eftir aldri.
| 2005 | Fjöldi látinna | Hlutfall |
| 0–14 ára | 0 | 0,00% |
| 15–24 ára | 8 | 42,11% |
| 25–34 ára | 0 | 0,00% |
| 35–44 ára | 2 | 10,53% |
| 45–54 ára | 4 | 21,05% |
| 55–64 ára | 3 | 15,79% |
| 65 ára og eldri | 2 | 10,53% |
Tafla 4. Fjöldi og hlutfall látinna eftir ársfjórðungi.
| 2005 | Fjöldi látinna | Hlutfall |
| janúar–mars | 5 | 26,32% |
| apríl–júní | 8 | 42,11% |
| júlí–september | 4 | 21,05% |
| október–desember | 2 | 10,53% |
Tafla 5. Fjöldi og hlutfall látinna í dreifbýli/þéttbýli.
| 2005 | Fjöldi látinna | Hlutfall |
| Dreifbýli | 16 | 84,21% |
| Þéttbýli | 3 | 15,79% |
Mynd 2. Þróun fjölda látinna í umferðarslysum í dreifbýli,
sem hlutfall af heildarfjölda látinna árin 1971–2000, og 2001–2005.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
(Heimild: Umferðarstofa.)
Samkvæmt mynd 2 er þróunin sú að mun fleiri látast nú í umferðarslysum í dreifbýli en í þéttbýli. Þetta er umhugsunarvert, m.a. í ljósi þess að meiri hluti aksturs fer fram í þéttbýli. Ökuhraði hefur hins vegar aukist á undanförnum árum, eins og sést á mynd 6, og má án efa að hluta til rekja þessa þróun til þeirrar staðreyndar, og þess að slysum í þéttbýli hefur fækkað meira en slysum í dreifbýli.
Tafla 6. Flokkun látinna.
| 2005 | Fjöldi látinna | Hlutfall |
| Ökumenn | 14 | 73,68% |
| Farþegar | 4 | 21,05% |
| Fótgangandi | 1 | 5,26% |
Tafla 7. Tegund banaslysa.
| 2005 | Fjöldi látinna | Hlutfall |
| Árekstur | 9 | 47,37% |
| Útafakstur | 7 | 36,84% |
| Ekið á fótgangandi | 1 | 5,26% |
| Ekið á brúarstólpa | 1 | 5,26% |
| Ekið fram af brú | 1 | 5,26% |
Tafla 8. Fjöldi og hlutfall látinna eftir landsvæðum.
| 2005 | Fjöldi látinna | Hlutfall |
| Reykjavík | 3 | 15,79% |
| Vesturland/Vestfirðir | 3 | 15,79% |
| Norðurland | 7 | 36,84% |
| Austurland | 3 | 15,79% |
| Suðurland | 3 | 15,79% |
Slysaskýrslu ársins 2005 er að finna í heild sinni á heimasíðu Umferðarstofu, www.us.is.
2.2 Viðhorfsrannsókn á aksturshegðun almennings.
Í september og október 2005 framkvæmdi Gallup viðhorfsrannsókn á aksturshegðun almennings fyrir Umferðarstofu, Vegagerðina og ríkislögreglustjóra. Sambærileg könnun var framkvæmd árið 2001. Úrtakið í könnuninni var 2.000 manns á aldrinum 17–75 ára og var svarhlutfallið 62,6%. Í þessum kafla verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum könnunarinnar, en könnunina í heild sinni er að finna m.a. á heimasíðu Umferðarstofu.
97,2% svarenda höfðu bílpróf og tæp 18% voru með svokallað meirapróf. Tæpur þriðjungur er meira en klukkustund á dag í umferðinni sem ökumenn, fjórðungur ver klukkustund á dag í umferðinni og annar fjórðungur 1/ 2–1 klukkustund á dag að meðaltali.
Syfja er vaxandi vandamál í umferðinni og kom í ljós í könnuninni að rúm 37% ökumanna hafa oft, stundum eða sjaldan orðið syfjaðir á meðan á akstri stóð. Jafnframt höfðu 8,3% ökumanna dottað undir stýri á síðastliðnum sex mánuðum.
Notkun GSM-síma við akstur án handfrjáls búnaðar hefur vaxið á undanförnum árum sé tekið mið af niðurstöðu könnunarinnar. Í könnuninni 2001 svöruðu 36% ökumanna því til að þeir töluðu aldrei í síma án handfrjáls búnaðar við akstur en hlutfallið hafði fallið niður í 30% árið 2005. Hins vegar tala færri oft án handfrjáls búnaðar við akstur árið 2005, eða 11,5%, í stað 28% árið 2001.
Þegar spurt var um ökuhraða við mismunandi leyfðan hámarkshraða kom í ljós að um 57% aðspurðra aka á löglegum hraða þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. eða 60 km/klst., en hlutfallið minnkar allverulega þegar ekið er á vegum þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Þá aka aðeins 47% ökumanna á löglegum hraða.
Munur á hegðun karla og kvenna kemur fram á mynd 3.
Mynd 3. Ökuhraði á vegum þar sem hámarkshraði er 90 km/klst., eftir kyni.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í svörum við spurningum um notkun öryggisbelta kom í ljós að 31% notuðu ekki öryggisbelti sem ökumenn innan bæjar og 8% utan bæjar, 21% notuðu ekki öryggisbelti sem farþegar í framsæti innan bæjar og 7% utan bæjar og 35% notuðu ekki öryggisbelti sem farþegar í aftursæti innan bæjar og 16% utan bæjar. Það er sem sagt líklegra að farþegi í aftursæti noti belti utan bæjar en farþegi í framsæti innan bæjar!
Samanburður á notkun kynjanna á öryggisbeltum innan bæjar kemur fram á mynd 4. Spurt var hvort það hefði komið oft, stundum, sjaldan eða aldrei fyrir á síðustu sex mánuðum að ökumaður notaði ekki öryggisbelti í innanbæjarakstri.
Mynd 4. Notkun á öryggisbeltum innan bæjar, eftir kyni.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Svipaður kynjamunur var á notkun öryggisbelta í utanbæjarakstri.
Þegar litið er til aksturs og áfengisneyslu kemur í ljós að 26% aðspurðra höfðu ekið einu sinni eða oftar eftir neyslu eins áfengs drykkjar á síðastliðnum sex mánuðum, en 12% höfðu ekið einu sinni eða oftar eftir að hafa drukkið meira en einn drykk. Einstaklingar með meirapróf eru ólíklegri en aðrir til að aka eftir neyslu áfengis. Einstaklingar með meiri menntun og hærri tekjur reyndust líklegri en aðrir til að hafa ekið eftir neyslu eins áfengs drykkjar. Hins vegar voru einstaklingar með minni menntun og lægri tekjur líklegri en aðrir til að aka eftir neyslu meira en eins áfengs drykkjar.
Í könnuninni var einnig spurt um akstur á móti rauðu ljósi en 97,5% ökumanna fara sjaldan eða aldrei yfir á rauðu ljósi. Rúmlega 20% fara sjaldan yfir á rauðu ljósi.
Þegar spurt var um umferðarlagabrot höfðu 92% ökumanna ekki fengið sekt fyrir umferðarlagabrot síðastliðna sex mánuði, um 6% einu sinni og 2% tvisvar eða oftar. Tæp 99% ökumanna höfðu ekki fengið sektir vegna umferðarlagabrota úr sjálfvirkum eftirlitsmyndavélum síðastliðna sex mánuði. Er það töluvert minna en í nágrannalöndum okkar.
Mun fleiri urðu varir við eftirlit lögreglu á þjóðvegum í könnuninni árið 2005 en þegar könnunin var gerð árið 2001. Samræmist það aðgerðum í umferðaröryggisáætlun um aukið umferðareftirlit á þjóðvegum landsins sem ráðist var í síðastliðið sumar og haust. Rúmlega 63% aðspurðra telja að eftirlit lögreglu hafi mikil áhrif á hegðun sína í umferðinni.
Rúmlega 40% telja að auglýsingar í ljósvakamiðlum og dagblöðum um bætta hegðun í umferðinni hafi mikil áhrif á hegðun sína í umferðinni.
Um 70% aðspurðra höfðu orðið vör við leiðbeinandi hraðamerkingar sem Vegagerðin setti upp við þjóðvegi landsins síðastliðið sumar, samkvæmt aðgerðum í umferðaröryggisáætlun. Tæplega 60% töldu að þessar leiðbeinandi hraðamerkingar hefðu mikil áhrif á aksturslag sitt.
3. Aðgerðir og verkefni á árinu 2005.
3.1 Framkvæmdaáætlun.
Við val á aðgerðum til aukins umferðaröryggis er byggt á áætlaðri arðsemi einstakra aðgerða. Gert er ráð fyrir 1.540 millj. kr. í útgjöld á sviði umferðaröryggismála á fjögurra ára tímabili, sbr. töflur 9 og 10, sem fengnar eru úr umferðaröryggisáætlunarhluta þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2005–2008 (þskj. 1079 í 721. máli 131. löggjafarþings).
Tafla 9. Tekjur. Áætlun um fjáröflun.
| Verðlag fjárlaga 2005, millj. kr. | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 |
| Frá vegaáætlun | 200 | 300 | 300 | 300 |
| Umferðaröryggisgjald | 35 | 35 | 35 | 35 |
| Sérstök fjárveiting til umferðaröryggismála | 150 | 50 | 50 | 50 |
| Til ráðstöfunar alls: | 385 | 385 | 385 | 385 |
Tafla 10. Gjöld. Rekstur og stofnkostnaður.
| Verðlag fjárlaga 2005, millj. kr. | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 |
| Ökumaður og farartæki | 170 | 185 | 153 | 150 |
| Áróður og fræðsla | 79 | 89 | 100 | 100 |
| Svartblettir, merkingar o.fl | 137 | 111 | 132 | 135 |
| Samtals: | 385 | 385 | 385 | 385 |
Á árinu 2005 var eftirtöldum fjármunum varið í einstök verkefni:
| Heiti verkefnis: | millj. kr | |
| 3.1.1 | Hraðakstur og bílbeltanotkun – eftirlit, áróður og fræðsla | 85 |
| 3.1.2 | Leiðbeinandi hraðamerkingar á þjóðvegum | 8 |
| 3.1.3 | Eyðing svartbletta | 105 |
| 3.1.4 | Ölvun/fíknefni við akstur – eftirlit, áróður og fræðsla | 19 |
| 3.1.5 | Umferðaröryggi í öryggisstjórnun fyrirtækja | 2 |
| 3.1.6 | Umferðaröryggi í námskrá grunnskóla og leikskóla | 5 |
| 3.1.7 | Öryggisbeltanotkun í hópbílum | 0 |
| 3.1.8 | Forvarnir erlendra ökumanna | 3 |
| 3.1.9 | Takmörkun á lausagöngu búfjár | 30 |
| 3.1.10 | Annað | 2 |
| Kostnaður alls | 259 | |
3.1.1 Hraðakstur og bílbeltanotkun – eftirlit, áróður og fræðsla.
Hraðakstur er algengasta orsök banaslysa í umferðinni. Stefnt er að því að fækka dauðaslysum sem rekja má til hraðakstur eða þess að bílbelti var ekki notað um að meðaltali 2,5 á ári og alvarlega slösuðum af sömu orsökum um 4,8 að meðaltali á ári.
Aðgerðir sem ætlað er að skili mestum árangri eru aukið eftirlit lögreglu um allt að helming, einkum á þekktum slysaköflum. Aðrar aðgerðir sem unnið verður að til að draga úr hraðakstri eru fastir myndavélapunktar, meðalhraðaeftirlit á löngum vegköflum, færanlegar myndavélar og enn meira eftirlit lögreglu á þekktum slysastöðum yfir sumarmánuðina, auk áróðurs og fræðslu.
Á árinu 2005 var gerður sérstakur samningur á milli Umferðarstofu, f.h. samgönguráðuneytisins, Umferðarstofu og Vegagerðarinnar, og ríkislögreglustjóra um aukið umferðareftirlit á þjóðvegum landsins. Samningurinn fól í sér kaup og ísetningu á sex ratsjártækjum með myndavél (Eyewitness-búnaði) í lögreglubíla, auk greiðslu vegna eftirlitsstunda lögreglumanna og aksturs lögreglubifreiða. Samtals var samningurinn að upphæð 34 millj. kr. Eftirlitið fór fram á þjóðvegi 1, frá Hvolsvelli til austurs og að Ljósavatnsskarði til norðurs, og stóð frá 28. júní til 30. september. Fjöldi slysa á umræddum vegarkafla á fyrrgreindu tímabili samanborið við árið á undan og meðaltal fimm síðustu ára má sjá í töflu 11.
Tafla 11. Slys á þjóðvegi 1, frá Hvolsvelli norður að Ljósavatnsskarði.
| Tímabil | Látnir | Alvarlega slasaðir | Lítið slasaðir | Alls |
| 2000–2004 | 5,4 | 8,2 | 38,2 | 51,8 |
| 2004 | 1 | 7 | 34 | 42 |
| 2005 | 0 | 5 | 28 | 33 |
Samhliða auknu eftirliti var Umferðarstofa með áróður um hraðakstur og bílbeltanotkun allt árið.
Ökuhraði á þjóðvegum landsins er enn þá alltof mikill. Þó bendir ýmislegt til að heldur hafi dregið úr honum á síðustu fjórum árum frá tímabilinu þar á undan. Enn þarf hraðinn að minnka til að ná því takmarki að 85% ökumanna aki undir hámarkshraða. Rétt er að geta þess að sú staðreynd að frávik við mælingar hér á landi eru mun meiri en annars staðar á Norðurlöndum leiðir að öllum líkindum til þess að menn virði hraðamörkin síður og fari yfir þau að vikmörkum.
Mynd 5. Fjöldi hraðakstursbrota og annarra umferðarlagabrota
samkvæmt málaskrá lögreglu 1999–2004.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 6. Þróun hraða á þjóðvegum 1988–2005. 1
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Varðandi notkun bílbelta er erfitt að meta hvort árangur hafi náðst á öllu landinu yfir árið í heild sinni þar sem skráningu lögreglunnar á bílbeltanotkun er mjög ábótavant. Af 129 alvarlegum slysum er í 73 tilfellum ekki vitað um bílbeltanotkun. Að auki er erfitt að fullyrða hvort hraðakstur hafi verið orsök tiltekins slyss eftir á. En í heild má segja að nokkur árangur hafi náðst.
Árvekni, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Umferðarstofa könnuðu notkun öryggisbúnaðar fyrir börn í bílum eins og undanfarin ár. Þá kom í ljós að 5,3% barna voru ekki með neinn öryggisbúnað, 10,6% voru eingöngu með bílbelti, sem er ekki fullnægjandi, en 84,1% barna voru í öryggisbúnaði sem hæfði stærð þeirra og aldri.
Mynd 7. Samanburður á notkun öryggisbúnaðar fyrir börn í bílum árin 1996–2005.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3.1.2 Leiðbeinandi hraðamerkingar á þjóðvegum.
Sett verða upp allt að 500 skilti með leiðbeinandi upplýsingum um ökuhraða á tiltekna staði á öllum stofnvegum og helstu tengivegum. Merkin verða sett upp þar sem ástæða þykir til að vekja athygli á að akstur á leyfðum hámarkshraða sé óráðlegur vegna aðstæðna, svo sem vegna krappra beygja, blindhæða eða hættulegra brattra brekkna. Tilgangurinn er að upplýsa vegfarendur um öruggan ökuhraða en gert er ráð fyrir að skiltin gagnist mest óreyndum ökumönnum. Vænst er að látnum fækki um að meðaltali 0,3 og alvarlega slösuðum um að meðaltali 0,9 á ári.
Sumarið 2005 hófst Vegagerðin handa við að setja niður merki með upplýsingum um leiðbeinandi hraða. Á árinu var lokið við að merkja þjóðveg 1, Snæfellsnesveg, Seyðisfjarðarveg, Norðfjarðarveg og hluta Vestfjarðavegar með þessum hætti.
Talið er að leiðbeinandi hraðamerkingar nýtist erlendum ferðamönnum sérstaklega vel þar sem þeir þekkja ekki eins vel til íslenskra akstursaðstæðna og íslenskir ríkisborgarar. Slysum á erlendum ferðamönnum fækkaði um 42% á milli áranna 2004 og 2005, eða úr 112 í 65.
3.1.3 Eyðing svartbletta.
Á árinu 2005 var unnið að lagfæringum á 25 hættulegum stöðum samkvæmt fyrirliggjandi áætlun. Meðal annars voru vegrið sett upp eða lengd á 15 stöðum en jafnframt voru sett upp viðvörunarljós við þrjár einbreiðar brýr, þrenn vegamót lagfærð og merkingar bættar á nokkrum stöðum.
Væntingar um árangur eru fækkun látinna um að meðaltali 0,5 á ári og fækkun alvarlegra slysa um að meðaltali 2,3 á ári.
3.1.4 Ölvun/fíknefni við akstur – eftirlit, áróður og fræðsla.
Í 10% banaslysa er aðalorsökin sú að ökumaður er undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna og má rekja 2,4% allra umferðarslysa til ölvunaraksturs. Til að stemma stigu við þessu er stefnt að því að auka afskipti lögreglu af ökumönnum sem næst 100%. Væntanlegur árangur er fækkun látinna um 0,5 og fækkun alvarlega slasaðra um 2,7 að meðaltali á ári.
Í samningi Umferðarstofu og ríkislögreglustjóra var kveðið á um kaup á tveimur öndunarsýnamælum, en slík tæki auka mjög nákvæmni við mat á áfengismagni í blóði ökumanna. Jafnframt var Umferðarstofa með áróður gegn ölvunarakstri, m.a. í samstarfi við Vínbúðir.
Á árinu 2005 mátti rekja sex banaslys í umferðinni til ölvunaraksturs, sem er töluvert hærra hlutfall en meðaltal undafarinna fimm ára, sem var 2,2 banaslys. Hins vegar fækkaði alvarlegum slysum úr 11,2 að meðaltali árin 2000–2004 í fjögur alvarleg slys vegna ölvunaraksturs á árinu 2005.
Rúmlega 200 fleiri ölvunarakstursmál komu upp á árinu 2005 en 2004. Þá liggur fyrir að ölvun kom við sögu í sex af sextán banaslysum í umferðinni á árinu 2005. Ekki er ólíklegt að fjöldi handtekinna í þessum málum endurspegli umfang eftirlits lögreglu, en í rannsókn á áfengis- og vímuefnaneyslu Íslendinga (Gallup 2005) kemur í ljós að rúmlega 20% aðspurðra á aldrinum 18–75 ára segjast hafa ekið einu sinni eða oftar eftir að hafa neytt áfengis. Þá kemur fram í annarri rannsókn að 25% fólks á aldrinum 17–30 ára hafi ekið einu sinni eða oftar eftir að hafa neytt áfengis, en einungis 4% þeirra höfðu verið tekin af lögreglu. (Haukur Freyr Gylfason, Rannveig Þórisdóttir og Marius Peersen, 2004: Aksturshegðun ungmenna).
Tafla 12. Fjöldi kærðra, handtekinna sakborninga í ölvunarakstursbrotum.
| Ár | Grunaðir um ölvun við akstur |
| 1999 | 1959 |
| 2000 | 2482 |
| 2001 | 2081 |
| 2002 | 1859 |
| 2003 | 1764 |
| 2004 | 1772 |
| 2005 | 1985* |
*Tölur fyrir 2005 eru bráðabirgðatölur.
(Heimild: Ríkislögreglustjórinn.)
3.1.5 Umferðaröryggi í öryggisstjórnun fyrirtækja.
Umferðin er snar þáttur í lífi flestra. Margir stunda störf sem fela í sér að þeir eru í umferðinni frá morgni til kvölds árið um kring. Mikilvægt er að skapa þeim eins traust og öruggt starfsumhverfi og kostur er. Með hliðsjón af þessu hefur Umferðarstofa hafið kynningu á aðferðarfræði til að auka umferðaröryggi á meðal atvinnubílstjóra. Aðferðafræðin, sem ber yfirskriftina „Vel á vegi stödd í vinnunni“, miðar að góðu samstarfi starfsfólks annars vegar og forráðamanna fyrirtækja hins vegar til að ná sameiginlegum markmiðum beggja um aukið öryggi í umferðinni.
Verkefninu var hleypt af stokkunum 7. mars 2005, en árið 2005 voru undirritaðir samstarfssamningar við fjögur fyrirtæki um þátttöku þeirra í verkefninu. Þau eru Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Hafnarfjarðarbær, Hagvagnar og Hópbílar. Á árinu 2006 er reiknað með 15–20 fyrirtækjum til viðbótar.
Ávinningur aðgerðanna er talinn vera fækkun látinna um 0,1 og fækkun alvarlega slasaðra um 0,6 að meðaltali á ári. Þar sem verkefnið er svo skammt á veg komið er ekki unnt að meta ávinninginn að svo stöddu.
3.1.6 Umferðaröryggi í námskrá grunnskóla og leikskóla.
Á undanförnum missirum hefur umferðarfræðslu í grunnskólum landsins verið mjög áfátt. Í umferðaröryggisáætlun er fyrirhugað að efla þá fræðslu til muna með því að gera hana að föstum lið í námskrá leikskóla og grunnskóla. Í því sambandi var gerður sérstakur samningur á milli Umferðarstofu og Grundaskóla á Akranesi um eflingu umferðarfræðslu á grunnskólastigi. Grundaskóli verður móðurskóli í umferðarfræðslu og þannig öðrum grunnskólum á Íslandi til fyrirmyndar og ráðgjafar á þessu sviði. Samningurinn gerir ráð fyrir því að Umferðarstofa greiði heilt stöðugildi við Grundaskóla og hljóðar samningurinn upp á 5 millj. kr. á ári.
Jafnframt var unnið að gerð fræðsluvefs í samvinnu við Námsgagnastofnun, sem var formlega opnaður í janúar 2006. Fræðsluvefinn er að finna á www.umferd.is.
Markmið þessara aðgerða er að fækka slysum á börnum um 10% og að fækkun látinna verði um 0,2 og fækkun alvarlega slasaðra verði um 1,0 að meðaltali á ári. Þar sem verkefnið er enn á undirbúningsstigi og raunveruleg fræðsla fer ekki fram fyrr en skólaárið 2006–2007 er ekki hægt að meta ávinning aðgerðanna fyrir árið 2005.
3.1.7 Öryggisbeltanotkun í hópbílum.
Umræddu verkefni var frestað til ársins 2006.
3.1.8 Forvarnir erlendra ökumanna.
Umferðaróhöpp þar sem erlendir ökumenn eru orsakavaldar eru 5% allra umferðarslysa á landinu. Markmið aðgerða er að fækka slysum þar sem erlendir ferðamenn eru orsakavaldar um 10%, þ.e. fækkun látinna um 0,2 og fækkun alvarlega slasaðra um 1,2 að meðaltali á ári
Umferðarstofa lét framleiða myndband fyrir erlenda ferðamenn. Myndbandið er á fjórum tungumálum, ensku, frönsku, spænsku og þýsku, og er það að finna á heimasíðu Umferðarstofu, www.us.is-English. Í myndbandinu er farið yfir helstu hættur sem að erlendum ferðamönnum steðja á ferðum um þjóðvegi landsins. Myndbandið er einnig að finna á heimasíðu Ferðamálaráðs og hjá mörgum bílaleigum. Umferðarstofa lét setja myndbandið á DVD-diska fyrir bílaleigur til dreifingar til viðskiptavina sinna.
Jafnframt rituðu starfsmenn umferðaröryggissviðs Umferðarstofu fjölda greina í tímarit og bækur sem ætluð eru erlendum ferðamönnum til að benda á hættur á þjóðvegum.
Eins og að framan var getið fækkaði slysum á erlendum ferðamönnum um 42% á milli áranna 2004 og 2005, úr 112 í 65.
3.1.9 Takmörkun á lausagöngu búfjár.
Aukin áhersla verður lögð á að girða af vegi þar sem hætta vegfarenda af lausagöngu búfjár er mest. Áætlað er að girða við rúmlega 300 km vega á tímabilinu 2005–2008 þar sem um 30% slysa og óhappa af þessu tagi verða. Væntanlegur ávinningur aðgerða er fækkun látinna um 0,1 á ári og fækkun alvarlega slasaðra um 0,7 að meðaltali á ári.
Á árinu 2005 girti Vegagerðin með fram vegum á 27 vegarköflum í þeim tilgangi að fækka slysum af völdum búfjár. Ljóst er að Vegagerðin, sveitarfélög og eigendur búfjár verða að vinna saman að þessu markmiði um fækkun slysa svo að árangur verði sem mestur.
3.1.10 Annað.
Undir þennan lið fellur viðhorfsrannsókn á aksturshegðun almennings sem Gallup framkvæmdi fyrir Umferðarstofu, Vegagerðina og ríkislögreglustjóra í október 2005. Hluti könnunarinnar var gerður opinber við endurnýjun samnings Umferðarstofu og ríkislögreglustjóra í febrúar 2006. Gerð er grein fyrir hluta könnunarinnar í kafla 2.2, en gera má ráð fyrir að könnunin verði birt í heild sinni á heimasíðu Umferðarstofu í apríl 2006.
3.2 Lög og reglur um umferðarmál á árinu 2005.
3.2.1 Reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni.
Hinn 21. febrúar var gefin út reglugerð nr. 252/2005, um breytingu á reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni, nr. 257/2000. Breytingin lýtur að því að einungis megi veita leyfi til aksturskeppni annars vegar Vélhjóla- og vélsleðaíþróttanefnd ÍSÍ, vegna keppni ökutækja með þrjú hjól eða færri, og hins vegar Landssambandi íslenskra akstursfélaga, vegna keppni ökutækja með fjögur hjól eða fleiri. Skilyrði leyfis er þrengt en áður var kveðið á um að leyfi til aksturskeppni skyldi einungis veita skipulagsbundnum samtökum er hafa akstursíþróttir á verkefnaskrá sinni.
3.2.2 Reglugerð um stærð og þyngd ökutækja.
Hinn 22. júní var gefin út ný reglugerð um stærð og þyngd ökutækja, nr. 688/2005, sem kom í stað reglugerðar nr. 528/1998. Í nýju reglugerðinni eru vagnlest og tengitæki skilgreind og breyting gerð á leyfilegri lengd vagnlestar, þ.e. bifreiðar, annarrar en hópbifreiðar, með festi- eða tengivagni eða samsvarandi tengitæki.
Heimild um undanþágu frá reglum um lengd vagnlestar, um að lengdin megi vera allt að 25,25 m, er framlengd í tvö ár, eða allt til 15. maí 2007.
Uppsetningu og orðalagi reglugerðarinnar og viðauka er breytt frá eldri reglugerð til að gera ákvæðin skýrari. Þá fylgja viðaukunum skýringarmyndir af ökutækjum varðandi stærð og þyngd.
3.2.3 Reglugerð um ökuskírteini.
Hinn 15. ágúst var gefin út reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskírteini, nr. 501/1997, sem að mestu lýtur að ákvæðum sem varða nám og próf til að öðlast réttindi samkvæmt flokkum C1 og D1.
Í umferðaröryggisáætlun frá árinu 2000 er því lýst að æskilegt sé að setja reglur um nám og ökupróf sem veiti réttindi til að stjórna ökutæki í flokki C1 og D1 fyrir þá sem vilja öðlast réttindi til að aka bifreið sem er 7.500 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd (C1) eða bifreið fyrir að hámarki 16 farþega (D1), án þess að um sé að ræða fólks- eða vöruflutninga í atvinnuskyni. (Sjá um flokkun ökuréttinda í 5.–13. gr. reglugerðar nr. 501/1997.)
B-réttindi (sem veita rétt til að stjórna fólksbifreið) eru mismunandi eftir því hvenær ökupróf var tekið. Sá sem tók próf fyrir 1. mars 1988 (á nú við um ökumenn 35 ára og eldri) má aka hópbifreið fyrir að hámarki 16 farþega án gjaldtöku (flokkur D1 á ökuskírteini). Sá sem tók próf fyrir 1. júní 1993 (á nú við um ökumenn 30 ára og eldri) má aka vörubifreið sem er skráð fyrir að hámarki 5 tonna farm (flokkur C1 á ökuskírteini). Reglugerðarbreytingin var byggð á því að ætla mætti að töluverð eftirspurn væri hjá ökumönnum, sem eru yngri en að framan greinir, eftir því að öðlast ökuréttindi C1 og D1 án þess að þurfa að fara í nám sem miðað er við vörubifreið (sem ekki eru bundin við tiltekna leyfða heildarþyngd bifreiðar) eða hópbifreiðar (sem ekki eru bundin við tiltekinn farþegafjölda). Þess má vænta að kostnaður yrði töluvert minni við nám til að fá réttindi C1 en nám vegna réttinda C og D. Einnig tók breytingin mið af því að framboð hefur aukist hin síðari ár á bifreiðum, þyngri en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd, einkum litlum vörubifreiðum (svo nefndum pick-up bifreiðum).
3.2.4 Reglugerð um flutning á hættulegum farmi.
Hinn 30. nóvember 2005 var gefin út reglugerð nr. 1070/2005, um breytingu á reglugerð nr. 984/2000, um flutning á hættulegum farmi. Breytingin lýtur að því að innleiða tilskipun nr. 2003/28/EB og tilskipun 2004/111/EB, sem hafa að geyma breytingar á viðaukum við tilskipun 94/55/EB, varðandi Evrópusamninginn um millilandaflutninga á hættulegum farmi á vegum, sbr. svonefndar ADR-reglur.
3.2.5 Reglugerð um skráningu ökutækja.
Reglugerð um skráningu ökutækja, nr. 751/2003, var breytt tvisvar á árinu. Hinn 23. maí var gefin út reglugerð nr. 506/2005. Auk orðalagsbreytinga er í reglugerðinni breyting á reglum um skammtímaskráningarmerki sem nota má tímabundið í sambandi við akstur vegna skráningar ökutækis.
Hinn 23. júní var gefin út reglugerð nr. 656/2005. Þar er breytt 19. gr. reglugerðar nr. 751/2003 þannig að orðið „námuökutæki“ kemur í stað „námubifreiðar“. Breytingin tengist breytingu á skilgreiningu í reglugerð um gerð og búnað ökutækja.
3.2.6 Reglugerð um gerð og búnað ökutækja.
Reglugerð um gerð og búnað ökutækja var breytt fjórum sinnum árinu. Hinn 29. mars 2005 var gefin úr reglugerð nr. 375/2005 þar sem eru innleiddar eftirgreindar EES-gerðir: tilskipanir nr. 2003/37/EB, 2003/97/EB, 2004/11/EB og 2004/78/EB.
Hinn 22. júní var gefin út reglugerð nr. 647/2005. Þar er „námuökutæki“ skilgreint. Í breytingu á gildandi reglu felst að í stað „námubifreið“ er „námuökutæki“ skilgreint sem ökutæki sem er vörubifreið eða eftirvagn, sbr. 1. gr. draganna. Tilefni breytingarinnar er úrskurður samgönguráðuneytisins frá 22. mars 2004 í stjórnsýslumálinu nr. 21/2004: Impregilo S.p.A gegn Umferðarstofu. Í niðurstöðu úrskurðarins er tekið fram að skráning námubifreiða miðist við að ökutæki séu notuð með tilteknum hætti á tilteknum svæðum eingöngu. Sömu sjónarmið eigi við um eftirvagna sem notaðir séu utan vegakerfisins á afmörkuðu vinnusvæði.
Hinn 28. október var gefin út reglugerð nr. 986/2005 þar sem eru innleiddar eftirgreindar EES-gerðir: tilskipanir nr. 2003/102/EB, 2004/3/EB, 2004/104/EB og 204/66 EB, svo og ákvörðun nr. 2003/138/EB.
Hinn 30. nóvember var gefin út reglugerð nr. 1071/2005 þar sem er innleidd tilskipun nr. 2005/27/EB.
3.2.7 Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.
Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra, nr. 289/1995, var breytt tvisvar á árinu. Hinn 2. febrúar var gefin út reglugerð nr. 230/2005 þar sem eru ákvæði um nýtt viðvörunarmerki vegna lausagöngu hreindýra. Þar er einnig breyting á skilgreiningu ásþunga vegna bannmerkis varðandi takmarkaðan ásþunga. Þá eru í reglugerðinni nýtt upplýsingamerki varðandi bifreiðastæði fyrir fólksbifreiðar, 14 ný þjónustumerki og nýr vegvísir.
Hinn 22. júní var gefin út reglugerð nr. 617/2005 þar sem eru ákvæði um tvö ný þjónustumerki og nýtt undirmerki, leiðbeinandi hámarkshraði, sem nota skal með nokkrum viðvörunarmerkjum. Merkið sýnir þann hámarksökuhraða sem er ráðlagður á þeim vegarkafla sem viðvörun nær yfir. Breytingar eru einnig gerðar varðandi yfirborðsmerkingu á vegum.
3.3 Sektir.
Nýjar reglur um sektir gengu í gildi árið 2001, sbr. reglugerð nr. 575/2001, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim. Þá voru sektir hækkaðar verulega, einkum við brotum sem geta haft verulega hættu í för með sér. Má þar nefna hraðakstur og ölvunarakstur. Á þeim tíma var talið að sýnt hefði verið fram á að háar sektir hefðu áhrif á ökumenn.
Menn hafa velt fyrir sér áhrifum þessarar ráðstöfunar og komist að þeirri niðurstöðu að hugsanlega megi álykta á þann veg að hærri sektir hafi haft áhrif til að fækka alvarlegum umferðarslysum. Þannig hefur alvarlega slösuðum fækkað um 18% frá árinu 2001 og hafa markmið umferðaröryggisáætlunar náðst hingað til.
Mál sem lögreglustjórum er heimilt að ljúka skv. 115. gr. og 115 gr. a. laga um meðferð opinberra mála, nr. 199/1991, með síðari breytingum, eru afgreidd á tvennan hátt. Annars vegar er heimilt að ljúka málum með sektarboði og hins vegar með sektargerð sem sakborningur gengst undir með undirskrift sinni. Ákveði lögreglustjóri að gefa kost á að ljúka máli með greiðslu sektar og niðurstaða færist ekki í sakaskrá sendir hann sakborningi greiðsluseðil með sektarboði. Ákveði lögreglustjóri hins vegar að gefa sakborningi kost á að ljúka máli með sektargerð sendir hann honum boð um að mæta og viðkomandi samþykkir niðurstöðuna með undirskrift.
Þannig má segja að minni málum ljúki með sektarboði en stærri málum, þar sem viðurlög eru innan þeirra marka sem lögreglustjórar mega ljúka með lögreglustjórasátt, sé lokið með sektargerð.
Tafla 13. Útsend sektarboð
og hlutfall greiddra og afgreiddra sektarboða 1999–2004.
| Ár | Útsend sektarboð | Greidd sektarboð, % | Afgreidd af gjaldföllnum sektarboðum, % |
| 1999 | 35.933 | 76,7 | 93,0 |
| 2000 | 36.687 | 75,0 | 93,0 |
| 2001 | 38.080 | 77,4 | 92,0 |
| 2002 | 42.193 | 76,6 | 93,0 |
| 2003 | 37.823 | 80,2 | 94,2 |
| 2004 | 35.719 | 82,3 | 94,0 |
Tafla 14. Útsendar sektargerðir
og hlutfall greiddra og afgreiddra sektargerða 1999–2004.
| Ár | Útsendar sektargerðir | Greiddar sektargerðir, % | Afgreiddar af gjaldföllnum sektargerðum, % |
| 1999 | 3.183 | 63,9 | 91,1 |
| 2000 | 3.836 | 61,1 | 89,6 |
| 2001 | 3.123 | 55,7 | 89,1 |
| 2002 | 2.839 | 56,1 | 89,1 |
| 2003 | 2.929 | 58,6 | 87,0 |
| 2004 | 2.949 | 55,5 | 91,6 |
(Heimild: Ríkislögreglustjórinn.)
3.4 Ökunám, ökukennsla og ökupróf.
3.4.1 Ökunám.
Samgönguráðherra staðfesti nýja námskrá fyrir ökukennaranám til almennra ökuréttinda í lok janúar 2005 og í febrúar var undirritaður samstarfssamningur á milli Kennaraháskóla Íslands og Umferðarstofu um ökukennaranám. Bæði er um að ræða nám fyrir verðandi ökukennara og endurmenntun fyrir starfandi ökukennara. 25 nemendur hófu nám til ökukennararéttinda í júní og er gert ráð fyrir námslokum í desember 2006.
Í janúar staðfesti ráðherra sömuleiðis nýjar námskrár til aukinna ökuréttinda og tóku þær gildi 1. apríl. Námskrárnar eru unnar í samstarfi Ökukennarafélags Íslands og Umferðarstofu.
Í september var brugðist við aukinni eftirspurn og þörf landsmanna til að mega aka millistærðir „vöru-“ og hópbifreiða, þ.e. vörubifreiða að hámarki 7.500 kg að leyfðri heildarþyngd og hópbifreiða með sæti fyrir 16 farþega eða færri.
Á árinu var hafinn undirbúningur að innleiðingu tilskipunar 2003/59/EB, um hæfni og starfsþjálfun hóp- og vörubifreiðastjóra sem stunda atvinnuflutninga á vegum, tölvuvæðingu fræðilegra ökuprófa o.fl.
3.4.2 Ökukennsla.
Árið 2005 störfuðu rúmlega 30 ökuskólar á landinu. Starf þeirra var hefðbundið nema hvað umsvif skóla til aukinna ökuréttinda voru áfram mikil samtímis því að þeir voru að laga sig að og taka upp kennslu í samræmi við nýja námskrá.
4.847 einstaklingar luku prófi til almennra ökuréttinda á árinu, bæði nýliðar í umferð sem og einstaklingar sem þurftu að endurtaka ökupróf vegna þess að þeir höfðu verið án réttinda í meira en 12 mánuði.
Tafla 15. Almenn ökuréttindi. Fjöldi þeirra sem standast verkleg próf.
| 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | |
| Bifreið | 4.665 | 4.872 | 4.642 | 4.448 | 4.253 | 4.214 | 4.266 | 4.847 |
Á árinu var unnið með Frumherja að samræmingu í fyrirlagningu, framkvæmd og mati á verklegum ökuprófum til almennra ökuréttinda, sem og annarra ökuréttinda. Hlutfall nemenda sem stóðust ekki verklegt ökupróf til almennra ökuréttinda var á árinu um 6% en var 7 % árið 2004. 7.970 skrifleg próf voru lögð fyrir til almennra réttinda og var fallprósenta á þeim prófum um 38% yfir landið í heild.
Á árinu 2005 hélt áfram sú mikla sókn nema í nám til aukinna ökuréttinda sem hófst árinu áður. Hún tengist beint því að nýja námskráin var auglýst með miklum fyrirvara og sumir ökuskólar auglýstu að í vændum væru miklar breytingar sem mundu gera námið dýrara. Umferðarstofa var í samstarfi við alla ökuskóla til aukinna ökuréttinda um skipulag þeirra á námskeiðum til aukinna ökuréttinda í tengslum við hina nýju námskrá.
Tafla 16. Aukin ökuréttindi. Fjöldi þeirra sem standast verkleg próf.
| 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | |
| Vörubifreið | 477 | 439 | 535 | 603 | 567 | 579 | 997 | 768 |
| Hópbifreið | 343 | 379 | 400 | 404 | 412 | 368 | 678 | 579 |
| Eftirvagn C/D | 289 | 302 | 313 | 381 | 417 | 424 | 661 | 659 |
| Leigubifreið | 369 | 389 | 474 | 451 | 476 | 378 | 685 | 526 |
Gífurleg aukning var í bifhjólaprófum á árinu, en 724 einstaklingar luku prófi til bifhjólaréttinda. Fáir tóku próf í öðrum flokkum. Aðeins 56 unglingar luku prófi til að mega aka léttu bifhjóli.
Tafla 17. Fjöldi þeirra sem standast verkleg próf.
| 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | |
| Bifhjól | 206 | 243 | 241 | 258 | 247 | 313 | 438 | 724 |
| Létt bifhjól | 83 | 77 | 59 | 70 | 65 | 51 | 54 | 56 |
| Dráttarvél | 3 | 6 | 4 | 5 | 8 | 13 | 4 | 9 |
| Eftivagn B | 1 | 3 | 4 | 4 | 4 | 7 | 8 | 7 |
Spölur hf. býður öllum ökunemum sem eru í námi til almennra ökuréttinda eina ókeypis ferð fram og aftur um Hvalfjarðargöng. Þetta fyrirkomulag hefur verið við lýði síðan í ágúst 2000 og stuðlar að því að ökunemar fái að reyna akstur við fjölbreyttar aðstæður. Jafnframt því að öðlast reynslu í akstri um þetta sérstaka umferðarmannvirki og þjóðvegaakstri fá nemar á höfuðborgarsvæðinu tækifæri til að kynnst akstri í dreifbýli og nemar með búsetu fjarri borginni fá tækifæri til að kynnast akstri í borgarumhverfi.
Tafla 18. Akstur ökunema um Hvalfjarðargöng.
| 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | |
| janúar | 157 | 79 | 65 | 72 | 71 | |
| febrúar | 87 | 101 | 74 | 97 | 101 | |
| mars | 106 | 86 | 101 | 121 | 89 | |
| apríl | 107 | 71 | 79 | 101 | 104 | |
| maí | 128 | 98 | 105 | 95 | 118 | |
| júní | 102 | 107 | 104 | 79 | 120 | |
| júlí | 139 | 152 | 109 | 132 | 108 | |
| ágúst | 146 | 99 | 108 | 107 | 105 | 116 |
| september | 139 | 104 | 175 | 110 | 125 | 89 |
| október | 118 | 64 | 117 | 70 | 99 | 86 |
| nóvember | 121 | 65 | 111 | 93 | 82 | 90 |
| desember | 77 | 37 | 61 | 47 | 74 | 67 |
| Samtals | 601 | 1.195 | 1.266 | 1.064 | 1.182 | 1.159 |
4. Verkefni ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga, fyrirtækja og félagasamtaka.
4.1 Ráðuneyti og stofnanir.
4.1.1 Samgönguráðuneyti.
Umferðarmál fluttust frá dómsmálaráðuneyti til samgönguráðuneytis 1. janúar 2004. Í kjölfarið hófst vinna við endurskoðun umferðaröryggisáætlunar og var hún samþykkt sem hluti af samgönguáætlun á vorþingi 2005. Í fyrsta skipti er umferðaröryggisaðgerðum forgangsraðað með tilliti til arðsemi þeirra. Arðsemi er reiknuð miðað við áætlaða fækkun slysa og óhappa út frá forsendum um kostnað við hvert slys og fjölda atvika sem skráð eru í lögregluskýrslur. Reiknaður heildarkostnaður vegna umferðarslysa og óhappa er um 10 milljarðar kr. á ári. Fjárveiting til umferðaröryggisaðgerða er 1.540 millj. kr. á fjögurra ára tímabili en heildararðsemi aðgerða, miðað við rekstur í 10 ár og 7% ávöxtunarkröfu, er rúmlega 3 milljarðar kr. Mælikvarðarnir eru tveir:
1. Fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa verði sambærilegur við það sem lægst gerist í heiminum árið 2016, mælt sem meðaltal fimm ára.
2. Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016.
Í umferðaröryggisáætlun eru settar fram aðgerðir sem unnið verður að á tímabilinu 2005–2008 og greint hefur verið frá í kafla 3.1.
Samgönguráðherra stóð að því að efla rannsóknarnefnd umferðarslysa og rýmka rannsóknarheimildir hennar. Samkvæmt lögum um rannsóknarnefnd umferðarslysa, nr. 24/2005, er markmiðið með störfum nefndarinnar að leiða í ljós orsakir umferðarslysa og koma í veg fyrir að sams konar slys verði aftur og stuðla með því að auknu öryggi í umferðinni hér á landi.
4.1.2 Umferðarstofa.
Störf Umferðarstofu á sviði umferðaröryggismála á árinu 2005 byggðust í meginatriðum á markmiðum umferðaröryggisáætlunar samgönguáætlunar til ársins 2008, en nánar hefur verið gerð grein fyrir þeim verkefnum í kafla 3.1. Aðgerðir til að draga úr ökuhraða, koma í veg fyrir ölvunarakstur og til að auka notkun öryggisbúnaðar í bílum skipuðu þar einna stærstan sess.
Auglýsingar Umferðarstofu hafa vakið verðskuldaða athygli og óhætt er að segja að umræður um umferðarmál hafi sjaldan eða aldrei verið meiri. Umferðarstofa lætur Gallup gera viðhorfskannanir eftir hverja auglýsingaherferð til að meta áhrif þeirra. Tvær af auglýsingum Umferðarstofu hafa fengið hæstu einkunn sem mælst hefur hjá Gallup á Íslandi. Aðrar auglýsingaherferðir Umferðarstofu standa þeim ekki langt að baki. Í langflestum tilfellum (80–90%) hafa skilaboðin komist vel til skila, rétt um helmingur aðspurðra telur að auglýsingarnar hafi tilætluð áhrif á hegðun sína í umferðinni og mikill meiri hluti (65–80%) telur að Umferðarstofa gangi hæfilega langt í að koma boðskapnum til skila. Auglýsingin „Hægðu á þér“ hlaut viðurkenningu sem besta auglýsingin á Íslandi árið 2004 í flokki almannaheillaauglýsinga. Jafnframt hlaut auglýsingin gullverðlaun á Eurobest 2004 í flokknum „Public health and safety“ sem eru æðstu auglýsingaverðlaun í Evrópu.
Undanfarinn áratug hefur umferðarfræðslu í grunnskólum landsins verði áfátt. Til að bæta úr því hefur Umferðarstofa gert samning við Grundaskóla á Akranesi um að vera móðurskóli umferðarfræðslu á Íslandi. Liður í því var gerð sérstaks fræðsluvefs sem unninn var í samvinnu Umferðarstofu, Grundaskóla og Námsgagnastofnunar.
Umferðarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu var starfandi allt árið í stað þriggja mánaða áður. Hann vann að almennu umferðaröryggi, m.a. með fræðslu, könnunum, samstarfi við aðra o.fl. Um sumarið skoðaði hann hálendið, með tilliti til öryggis þeirra sem um það fara.
Eins og mörg undanfarin ár stóð Umferðarstofa fyrir könnun á notkun öryggisbúnaðar fyrir börn í bílum í samstarfi við Árvekni og Slysavarnafélagið Landsbjörgu. Gerð er grein fyrir niðurstöðum könnunarinnar í kafla 3.1.1. Notkun öryggisbúnaðar fyrir börn hefur aukist ár frá ári, en leggja þarf áherslu á rétta notkun.
Endurskoðun fræðsluefnis umferðarskólans Ungir vegfarendur hefur staðið yfir undafarin ár og lýkur á árinu 2007.
Umferðarskóli fyrir 5 og 6 ára börn fór fram á árinu með hefðbundnum hætti en þó varð sú breyting á að í stað þess að fræðslan færi fram í grunnskólum fór hún fram í leikskólunum sjálfum. Með þessu móti jókst fjöldi heimsókna úr 60% á höfuðborgarsvæðinu í um 90%. Að auki hófst fræðslan að nýju á Akureyri, en hún hafði legið niðri um nokkurra ára skeið, og í fyrsta skipti voru leikskólabörn í Reykjanesbæ heimsótt.
Slysaskráning Umferðarstofu hefur verið efld og á árinu 2005 náði hún þeim áfanga að vera uppfærð til dagsins í dag, en þegar Umferðarstofa tók við verkefninu árið 2002 var slysaskráningin um tveimur árum á eftir í rauntíma.
Umferðarstofa og Félaga íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) gerðu með sér samning um að FÍB framkvæmdi úttekt á vegum landsins út frá stöðlum EuroRAP, en EuroRAP-verkefnið byggist á samvinnu neytenda, vegagerða og hönnuða um flokkun vega og stjörnugjöf út frá öryggi. Stjörnugjöfin er unnin með sjónrænni athugun á samgöngumannvirkjum og umhverfi vega, að teknu tilliti til umferðarhraða, umferðarþunga og slysagagna.
Umferðarstofa hefur innleitt stefnumiðað árangursmat (e. Balanced Score Card) sem miðar að því að mæla virkni í starfseminni og árangur hennar.
4.1.3 Vegagerðin.
Vegagerðin tók virkan þátt í starfi samráðshóps sem sér um að útfæra og halda utan um framkvæmd gildandi umferðaröryggisáætlunar, sem samþykkt var á Alþingi vorið 2005. Eitt af verkefnum umferðaröryggisáætlunar er að fækka hættulegum stöðum í vegakerfinu og á árinu 2005 var unnið að lagfæringum á 25 hættulegum stöðum samkvæmt fyrirliggjandi áætlun. M.a. voru vegrið sett upp eða lengd á 15 stöðum, en jafnframt voru sett upp viðvörunarljós við þrjár einbreiðar brýr, þrenn gatnamót lagfærð og merkingar bættar á nokkrum stöðum. Girt var með fram vegum á 27 vegarköflum í þeim tilgangi að fækka slysum af völdum búfjár.
Sumarið 2005 var byrjað að setja niður merki með upplýsingum um leiðbeinandi hraða, þ.e. öruggan hraða, á tilteknum stöðum, t.d. í kröppum beygjum, miðað við akstursskilyrði á auðum og blautum vegi. Á árinu var lokið við að merkja hringveg, Snæfellsnesveg, Seyðisfjarðarveg, Norðfjarðarveg og hluta Vestfjarðavegar með þessum hætti.
Reistar voru tvíbreiðar brýr eða lögð ræsi í staðinn fyrir einbreiðar brýr á 14 stöðum.
Lokið var við gerð margra nýrra vegarkafla á árinu sem bæta munu umferðaröryggi verulega. M.a. var lokið við tvöföldun hringvegar milli Víkurvegar og Skarhólabrautar og byggður nýr 2+1 vegur um Svínahraun með mislægum vegamótum við Þrengslaveg. Á hinum nýja 2+1 vegi eru akstursstefnur skildar að með víravegriði. Tvenn jarðgöng, göng undir Almannaskarð og Fáskrúðsfjarðargöng, voru opnuð á árinu.
4.1.4 Umferðarráð.
Hinn 1. október 2002 tók Umferðarstofa við stjórnsýsluverkefnum á sviði umferðaröryggismála sem áður heyrðu undir Umferðarráð, þ.e. umferðarfræðslu, slysaskráningu og umsjón og eftirliti með ökunámi og ökuprófum. Við þau tímamót lauk starfsemi Umferðarráðs sem stofnunar, en fulltrúaráðið Umferðarráð hélt starfsemi sinni áfram. Í því sitja nú 22 fulltrúar jafnmargra stofnana, félagasamtaka, ráðuneyta og annarra sem koma að álefnum með einum eða öðrum hætti, auk formanns og varaformanns, sem skipaðir eru af ráðherra. Umferðarráð fær mörg mál til umsagnar, m.a. frá Alþingi og samgönguráðuneytinu, og kemur saman til funda nokkrum sinnum á ári. Meðal dagskrárefna að undanförnu má nefna áfengismörk í ölvunarakstri, áfengiskaupaaldur, hraðatakmarkarar í fólksbifreiðir, vélknúin hjól/torfærubifhjól: réttindaleysi, vanskráning og ólöglegur akstur, hert hjálmaskylda hjólreiðafólks, umferðaröryggi í öryggisstjórnun fyrirtækja, nýr vegarkafli Suðurlandsvegar í Svínahrauni, Sundabraut, Reykjanesbraut, vegaskoðun, Vegagerðin og umferðaröryggismál, hámarkshraði á tveggja akreina þjóðvegum, umferðaröryggismál í samgönguáætlun fyrir árin 2005–2008, leiðsögubílstjórar og æfingasvæði/ökugerði fyrir ökunema og ökumenn.
Meðal ályktana sem Umferðarráð sendi frá sér á árunum 2004–2005 er ályktun um sumarumferðina 2005, auglýsingar Umferðarstofu, ályktun um ölvunarakstur, bílbelti, farsímanotkun ökumanna, og um að Suðurlandsvegur verði svokallaður 2+1 vegur með vegriði á milli akstursstefna. Í kjölfar síðastnefndu ályktunarinnar ákvað samgönguráðherra að á nýjum kafla vegarins í Svínahrauni yrði vegrið í vegmiðju. Fagnaði Umferðarráð þeirri ákvörðun og sendi frá sér fréttatilkynningu þar að lútandi.
4.1.5 Rannsóknarnefnd umferðarslysa.
Árið 2005 fékk Rannsóknarnefnd umferðarslysa til rannsóknar 19 banaslys í umferðinni og á þriðja tug annarra alvarlegra umferðarslysa. Fór nefndin yfir þessi slys með ábendingar og forvarnir í huga og er niðurstöðu þeirrar greiningar að vænta í skýrslu á árinu 2006. Árið 2006 stefnir rannsóknarnefndin að því að rannsaka öll slys þar sem meiðsli á fólki eru mikil, auk þess sem nefndin hyggst gefa út skýrslur um einstök slys þegar ástæða þykir til, eða varnaðarskýrslur um tiltekin öryggisatriði sem verða byggðar á niðurstöðum rannsókna eins eða fleiri slysa. Er þetta í samræmi við hlutverk nefndarinnar sem kveðið er á um í lögum og reglugerð frá árinu 2005, nánar tiltekið lögum nr. 24/2005 og reglugerð nr. 702/2005.
Í skýrslu um banaslys í umferðinni 2004 (útgefin 2005) lagði rannsóknarnefndin mesta áherslu á áhættuhegðun ungra ökumanna, ofsaakstur og endurskoðun viðurlaga við ofsaakstri og beindi til samgönguráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins. Aðrar ábendingar í skýrslu nefndarinnar sem vert er að nefna varða viðbrögð leikmanna á slysavettvangi, afskiptaleysi og tillitsleysi gagnvart fólki í neyð á slysavettvangi og notkun hættuljósa og viðvörunarþríhyrninga, sem nefndin telur verulega ábótavant á Íslandi. Lagði nefndin til við Umferðarstofu að meiri áhersla yrði lögð á áróður um notkun viðvörunarþríhyrninga og hættuljósa. Í skýrslu um slys 2004 er einnig fjallað um vélsleðaslys, skráningu þeirra og forvarnir, en RNU og Slysavarnafélagið Landsbjörg rannsökuðu í sameiningu orsakir vélsleðaslysa og gaf Slysavarnafélagið út bækling í samstarfi við Landssamband íslenskra vélsleðamanna um forvarnir í kjölfar þeirrar vinnu. Þá gaf rannsóknarnefndin út skýrslu um umferðarslys erlendra ferðamanna, sem send var öllum bílaleigum á landinu, og var skýrslan liður í auknum forvörnum á því sviði.
4.1.6 Rannsóknarráð umferðaröryggismála (Rannum).
Rannum, sem er samstarfsvettvangur Vegagerðarinnar, Rauða kross Íslands, Umferðarráðs, Landspítala – háskólasjúkrahúss og 13 annarra aðila veitti á árinu 2005 samtals um 11 millj. kr. til 14 rannsóknarverkefna á sviði umferðaröryggismála. Verkefnin voru fjölbreytt og tengjast umferðaröryggismálum frá nokkrum hliðum. Um þriðjungur styrkupphæðar ársins fór til verkefna sem tengjast ýmiss konar tölfræði og um fimmtungur til verkefna sem tengjast sálfræði og hegðun ökumanna. M.a. var unnið að verkefnum sem tengjast öryggi elstu og yngstu borgaranna í umferðinni. Samstarf innan Rannum hófst árið 2000 og stóð yfir í fimm ár. Á þessum árum hafa verið veittir styrkir til alls 92 verkefna, að upphæð 88 millj. kr., en auk þess hefur komið til vinnuframlag í verkefnum frá aðilum sem tengdust samstarfinu. Reiknað er með því að yfirlit um starfsemi Rannum og einstök rannsóknarverkefni verði kynnt á Umferðarþingi haustið 2006.
4.1.7 Dómsmálaráðuneyti.
Í samræmi við 1. og 4. gr. laga nr. 90/1996 er áhersla lögð á gerð árangursstjórnunarsamninga við lögreglustjórana, stefnumótun og markmiðasetningu. Kemur ráðuneytið að gerð samninga og langtímaáætlana hjá lögreglustjórunum, leggur mat á markmið og áherslur, auk þess sem farið er markvisst yfir túlkun árangurs í ársskýrslum embættanna. Hafa embættin unnið langtímaáætlanir til nokkurra ára í senn þar sem m.a. eru sett fram meginmarkmið og leiðir að markmiðum. Þá hafa embætti unnið stefnumörkun til eins árs í senn þar sem tilgreind eru nánar forgangsatriði í löggæslueftirliti, deilimarkmið og árangursmælikvarðar. Í áætlunum embætta hefur m.a. verið lögð áhersla á forvarnir, eftirlit með ástandi ökutækja og ökumanna og fækkun umferðaróhappa og slysa. Sérstök áhersla er lögð á eftirlit með ökuhraða, notkun öryggisbúnaðar, ölvunarakstri, umferð um gatnamót, og umferð í og við skóla. Þá er þung áhersla á frumkvæðisvinnu lögreglu í eftirliti vegna ávana- og fíkniefnamála.
4.1.8 Ríkislögreglustjórinn.
Áhersla var lögð á skipulagt samstarf lögregluliðanna í landinu, á sviði umferðaröryggis. Stærsta verkefnið var samstarfssamningur ríkislögreglustjórans (RLS) við Umferðarstofu (US), í umboði samgönguráðuneytisins. Samningurinn hljóðaði upp á samstarf lögregluembættanna frá Hvolsvelli í austri, vestur og norður um til Húsavíkur. Tímabilið var frá júní til október 2005. Kostnaður var greiddur af samgönguráðuneytinu sem einnig kostaði mynd- og hljóðupptökubúnað í sex lögreglubifreiðir. Samningurinn kom sem hrein viðbót við annað eftirlit hjá viðkomandi embættum. Almenn ánægja var með þetta fyrirkomulag og var jafnframt unnið að því að koma á svipuðum samningi fyrir árið 2006. Sumarið kallaði á frekara umferðareftirlit og var ríkislögreglustjórinn lögreglustjórum til aðstoðar í þeim efnum, þá sérstaklega yfir verslunarmannahelgina. Unnið var að gerð verklagsreglna um vinnu lögreglumanna á vettvangi.
4.1.9 Lögregluskóli ríkisins.
Í grunnnámi Lögregluskólans er fjallað um umferðarfræði með það að markmiði að nemendur kynnist málaflokknum þannig að þeir þekki umferðarmálefni nægilega vel til að geta sinnt umferðareftirliti í samræmi við lög og reglur. Auk þess sem fastráðinn starfsmaður skólans kennir málaflokkinn er leitað til sérfræðinga utan lögreglunnar með fræðslu og fá nemendur rækilega kynningu á gildandi umferðaröryggisáætlun. Starfandi lögreglumönnum gefst einnig kostur á að sækja ýmis námskeið í framhaldsdeild skólans þar sem umferðarmál eru til skoðunar, t.d. símenntunarnámskeið og sérnámskeið um umferðarmál. Stjórnendur, nemendur í stjórnunarnámi skólans, fá upplýsingar um markmiðasetningu og æfa sig í að setja markmið, t.d. í umferðarmálum, og þeir sem sækja það nám á yfirstandandi skólaári hafa unnið verkefni sem fólst í því að skoða skýrslur rannsóknarnefndar umferðarslysa (RNU) og meta hvaða lærdóm lögreglan getur dregið af þeim. Verkefni þeirra voru metin af formanni RNU þannig að þekking og reynsla færðist á milli skólans, lögreglunnar í landinu og RNU. Unnið hefur verið að uppfærslu kennsluefnis í umferðarfræði í skólanum og er nú á lokastigi. Lokið er endurskoðun kennslu um rannsóknir umferðarslysa og þær kenndar eftir nýju fyrirkomulagi.
4.1.10 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
Í heilbrigðisáætlun, sem samþykkt var á Alþingi 20. maí 2001 og gildir til ársins 2010, er það eitt af forgangsmarkmiðunum sjö að draga úr slysum um 25%. Við endurskoðun á þessu markmiði hefur verið ákveðið að það standi, en frá og með árinu 2003 verði miðað við tölur úr Slysaskrá Íslands. Slysaskrá Íslands hefur verið að byggjast upp á síðustu árum, en hún er meðal þeirra leiða sem fara á til að ná þessu markmiði. Jafnframt er ætlast til að stofnanir ráðuneytisins vinni skipulega að framgangi þessa markmiðs.
4.1.11 Landlæknir – slysavarnaráð.
Landlæknisembættið og slysavarnaráð hafa haft frumkvæði að samræmdri skráningu slysa með þróun og gerð gagnabankans Slysaskrár Íslands. Samkvæmt lögum nr. 18/2003 er þessi skrá varðveitt hjá landlæknisembættinu. Skráning í Slysaskrá Íslands hófst árið 2002 með þátttöku fjögurra aðila: ríkislögreglustjóra, slysadeildar Landspítala – háskólasjúkrahúss, Tryggingamiðstöðvarinnar og Vinnueftirlits ríkisins. Síðan hafa fleiri skráningaraðilar bæst við. Heilbrigðisstofnun Austurlands byrjaði að skrá á árinu 2003 og á síðasta ári bættust við aðilar heilsugæslunnar hjá Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks, Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík. Á árinu 2005 voru enn fremur hafnar viðræður við fleiri heilsugæslustöðvar sem og tryggingafélög. Markmiðið er að í Slysaskrá Íslands skrái allir sem meðhöndla upplýsingar um slys. Þar með mun skráning slysa á landinu verða samræmd og betra yfirlit fást yfir fjölda slysa, orsakir þeirra og afleiðingar. Slysaskrá Íslands er því mikilvæg þegar kemur að slysaforvörnum og rannsóknum á slysum. Á vef landlæknisembættisins ( www.landlaeknir.is) eru reglulega birtar tölfræðilegar upplýsingar úr Slysaskrá Íslands og er þar á meðal að finna upplýsingar um umferðarslys.
4.1.12 Lýðheilsustöð.
Helsta framlag Lýðheilsustöðvar til umferðarslysavarna árið 2005 var þátttaka í könnuninni Öryggi barna í bílum. Þetta er umfangsmikil könnun á öryggi barna í bílum fyrir utan leikskóla landsins og hefur verið gerð árlega frá árinu 1996. Niðurstöður könnunarinnar hafa jafnan verið vel kynntar. Þegar könnunin var gerð í aprílmánuði 2005 voru 5% barna laus í bílum, en voru 32% þegar hún var fyrst gerð. Brugðist hefur verið við niðurstöðum, m.a. með aukinni fræðslu til foreldra og heilsusgæsluhjúkrunarfræðinga. Samstarfsaðilar hafa verið Slysavarnafélagið Landsbjörg og Umferðarstofa.
4.1.13 Landbúnaðarráðuneytið.
Ráðuneytið hefur ekki unnið sérstaklega að umferðaröryggismálum á árinu 2005 umfram það sem ráðuneytið hefur gert á undanförnum árum. Sú vinna hefur tengst friðun vegsvæða fyrir búfé.
Ráðuneytið telur að þar hafi mál þokast í réttan farveg. Helstu vegir hafa verið girtir af Vegagerðinni og jafnframt auglýst bann við lausagöngu búfjár á viðkomandi svæði. Enn þarf að halda áfram á sömu braut.
4.1.14 Umhverfisráðuneytið.
Á árinu 2005 gaf ráðuneytið út reglugerð nr. 528/2005, um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands. Í reglugerðinni er áréttuð sú meginregla að óheimilt er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega í náttúru Íslands. Í framhaldi af því var gefinn út á vegum Umhverfisstofnunar bæklingurinn „Akstur utan vega“ sem ætlaður er til kynningar fyrir alla ferðamenn, innlenda jafnt og erlenda. Í bæklingnum eru kynnt lög og reglugerðir sem snerta utanvegaakstur og fjallað um ástæðu þess að akstur utan vega er bannaður á Íslandi og hverjar afleiðingar utanvegaakstur hefur á náttúruna.
Bæklinginn má nálgast á heimasíðu Umferðarstofu: www.ust.is
4.2 Sveitarfélög.
4.2.1 Reykjavíkurborg.
Á árinu 2005 var varið um 50 millj. kr. til úrbóta á ýmsum stöðum í gatnakerfinu í þeim tilgangi að auka umferðaröryggi (endurbætur vástaða) og einnig var varið 10 millj. kr. í ný gangbrautarljós. Á árinu var einnig leyfður hámarkshraði minnkaður í 30 km/klst. (30 km hverfi) í sjö íbúðahverfum með hefðbundnum aðgerðum (hliðum og hraðahindrunum). Heildarkostnaður við þær framkvæmdir er áætlaður um 50 millj. kr. og er áætlun um gerð 30 km hverfa nú vel á veg komin. Auk þessara aðgerða var unnið að bættu öryggi á gönguleiðum skólabarna að sex grunnskólum borgarinnar og er heildarkostnaður við þessar aðgerðir áætlaður um 25 millj. kr. Samtals hefur því á árinu 2005 verið varið um 135 millj. kr. sérstaklega til þessa málaflokks.
4.2.2 Seltjarnarneskaupstaður.
Helstu aðgerðir sem unnið var að á síðastliðnu ári til þess að auka öryggi vegfarenda í bæjarfélaginu voru þær að aukin áhersla var lögð á að vera úti í umferðinni með færanlegan hraðamæli sem upplýsir ökumenn um á hvaða hraða þeir aka. Virðist notkun hans gefa góða raun. Á árinu 2005 var unnið að almennu viðhaldi og endurbótum á umferðarmerkjum, gatnamálun og ýmsum lagfæringum á gatna- og göngustígakerfinu til aukins öryggis fyrir vegfarendur. „Öryggi barna allra ábyrgð“ er árlegt verkefni sem framkvæmt hefur verið tvisvar á ári, að haustlagi og síðla vetrar. Um er að ræða samstarf við Mýrarhúsaskóla, foreldrafélag skólans, íþrótta- og æskulýðsráð og Slysavarnadeild kvenna á Seltjarnarnesi um hvernig örva megi á öruggan hátt börn á Seltjarnarnesi til að ganga frá heimili sínu í skólann á morgnana.
Ótalinn er hér þáttur lögreglunnar eða félagasamtaka við störf að umferðaröryggi í bæjarfélaginu. Þess má geta að í gegnum árin hefur verið fátt um alvarleg óhöpp í umferðinni á Seltjarnarnesi og ekki hægt að benda á sérstaka staði með hárri slysatíðni.
4.2.3 Kópavogsbær.
Árið 2001 var samþykkt áætlun um 30 km aðgerðir í íbúðahverfum í Kópavogi. Á árinu 2005 hafði að mestu verið uppfyllt það markmið að 30 km hámarkshraði væri í öllum húsagötum í bæjarfélaginu. Helstu verkefni síðasta árs voru uppsetning þrenginga þar sem ekið er inn á 30 km svæði í Vatnsendahverfi. Jafnframt voru settar níu hellulagðar upphækkanir með gangbraut í hverfinu. Í eldri hverfum bæjarins voru settar upp fjórar hraðahindranir.
Árið 2004 var gerð ný úttekt á umferðaröryggi í bæjarfélaginu. Á grundvelli hennar voru samþykktar tillögur um aðgerðir til að auka umferðaröryggi á nokkrum stöðum og hófust framkvæmdir við þær aðgerðir á árinu 2005. Áætlað er að þeim framkvæmdum ljúki á árinu 2006.
4.2.4 Garðabær.
Helstu aðgerðir í umferðaröryggismálum á liðnu ári var rekstur færanlegs hraðaviðvörunartækis sem segir ökumönnum til um aksturshraða þeirra, en skráir hann ekki.
Vegna kvartana um mikinn umferðarhraða var ráðist í tölfræðilega marktækar hraðamælingar með radar og niðurstöðurnar notaðar til ákvarðanatöku um hraðahindrandi aðgerðir. Niðurstöðunum hefur einnig verið miðlað til lögreglunnar. Settar hafa verið allmargar hraðahindranir, einkum í safngötum nálægt íbúðabyggð. Einnig á gatnamótum nýrrar gönguleiðar að nýjum Sjálandsskóla. Gert var hringtorg, sem aðkoma að nýjum Sjálandsskóla, og undirgöng undir Vífilsstaðaveg við nýjan Sjálandsskóla. Gert var hringtorg í samvinnu við Vegagerðina á gatnamótum Arnarnesvegar/Bæjarbrautar/Fífuhvammsvegar til að leysa umferðarvandamál þar. Haldið var áfram vinnu við gerð göngustíga í bænum til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Lokið var vinnu við úttekt á hægri forgangi í bænum. Auk þessa voru ýmsar smærri aðgerðir í umferðarmálum.
4.2.5 Hafnarfjarðarbær.
Árið 2000 var samþykkt áætlun um gerð 30 km hverfa í Hafnarfirði og hefur síðan verið unnið markvist að uppbyggingu þeirra. Helstu verkefni síðasta árs voru áframhaldandi vinna við að gera Suðurbæinn að 30 km hverfi, ný hringtorg á gatnamótum Arnarhrauns og Reykjavíkurvegar, sem og gatnamótum Herjólfsgötu og Vesturgötu, bætt umferðaröryggi í Hlíðarbergi og Vesturgötu, unnið að nýjum hraðahindrandi aðgerðum, ásamt ýmsum lagfæringum á gatnakerfinu. Á síðasta ári var lokið við breytingar á Reykjanesbraut frá Kaplakrika fram fyrir Hvammabraut, en samhliða breytingum í gatnakerfinu var gert átak í göngu- og hjólaleiðum við brautina. Á síðasta ári var haldin sérstök umferðarvika í Hafnarfirði, en efnt hefur verið til umferðarviku í Hafnarfirði allt frá árinu 1999, með víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í bænum.
4.2.6 Reykjanesbær.
Sérstakt umferðaröryggisátak var viku áður en skólar hófust haustið 2005, farið var í skólana með fræðslu um öryggismál. Farið yfir gangbrautir og annað aðgengi og stóð þetta átak yfir í fjórar vikur. Þá voru settir upp fánar á ljósastaura og fánar á skólabíla til áréttingar á átakinu. Svæði með 30 km hámarkshraða voru sett við alla skóla, leikskóla, sundlaugar og íþróttahús. Einnig hefur miðbærinn verið hannaður frekar fyrir gangandi vegfarendur og þungaumferð þar bönnuð. Hraðahindrandi aðgerðir til viðbótar voru eftirfarandi: sex hringtorg, tuttugu hraðahindranir og fimm þrengingar. Umferðarbreyting var gerð í Höfnum í samvinnu við Vegagerðina þannig að þjóðvegur út á Reykjanes var færður út fyrir byggðarlagið. Að síðustu má nefna að komið hefur verið upp æfingasvæði fyrir verðandi ökumenn bifreiða og bifhjóla.
4.2.7 Mosfellsbær.
Á árinu var framhaldið hraðatakmarkandi aðgerðum í íbúðahverfum, en Mosfellsbær samþykkti á árinu 2003 að hámarkshraði í íbúðabyggð skyldi vera 30 km/klst. og að unnið yrði á næstu þremur árum, þ.e. 2004, 2005 og 2006, að uppsetningu á hraðahindrunum og uppsetningu á skiltum í samræmi við úttekt og tillögur frá Línuhönnun.
Jafnframt var unnið við niðurtektir á gangstéttum þar sem farið er yfir götur til að bæta öryggi fatlaðra og hjólreiðafólks. Unnið hefur verið markvisst að því á síðustu fimm árum og er ástandið orðið nokkuð gott á fjölförnustu leiðum að og frá skólum og miðbæ.
Gerð var úttekt á helstu óhappastöðum í bænum miðað við óhöpp á síðustu tíu árum samkvæmt gögnum frá Umferðarstofu. Óhöpp í Mosfellsbæ hafa verið frá 30–94 á ári síðustu tíu árin. Lítið hefur verið um alvarleg slys, eða frá engu til fjögurra á ári. Þrjú banaslys urðu á tímabilinu og öll á Vesturlandsvegi. Flest óhöpp eru á Vesturlandsvegi.
4.2.8 Akraneskaupstaður.
Umferðarmannvirki:
Í samstarf við Vegagerðina var ráðist í gerð nýs hringtorgs á mótum Innnesvegar og Garðagrundar með nýrri tengingu inn í Flatahverfi.
Minnkun leyfðs hámarkshraða:
Tekin var ákvörðum um að minnka leyfðan hámarkshraða við grunnskóla bæjarins og í völdum íbúðahverfum og verður ákvörðuninni komið til framkvæmda árið 2006.
Aðgerðir í nágrenni skóla:
Við upphaf skólastarfs á haustdögum 2005 voru áletraðir borðar hengdir upp í grennd við grunnskóla bæjarins þar sem athygli ökumanna var vakin á umferð skólabarna. Jafnframt var lögð sérstök áhersla á gangbrautamerkingar.
Stæði fyrir flutningabíla og vinnuvélar:
Nokkuð hafði borið á því að bifreiðarstjórar vörubifreiða og vinnuvéla legðu ökutækjum sínum í íbúðahverfum, þrátt fyrir að lögreglusamþykkt banni slíkt. Lögregla taldi sig eiga erfitt með að framfylgja banninu þar sem ekki væri hægt að benda á viðeigandi geymslustað fyrir slík farartæki. Útbúið var sérstakt bílastæði á iðnaðarsvæði í bænum þannig að unnt yrði að framfylgja gildandi reglum og þannig dregið úr ónauðsynlegri umferð stórra farartækja um íbúðargötur.
4.2.9 Ísafjarðarbær.
Ísafjarðarkaupstað er hálfpartinn skipt í tvennt. Annars vegar er eyrin og hlíðin fyrir ofan hana og svo hins vegar byggð í botni Skutulsfjarðar, Holtahverfi og nýtt hverfi, Tunguhverfi, sem er í u.þ.b. 3 km fjarlægð frá eyrinni. Síðastliðið sumar var lagður göngustígur frá Holtahverfi að Eyrinni þannig að hjólandi og gangandi umferð er ekki lengur um Skutulsfjarðarbraut sem er þjóðvegur 61.
Lagfærð voru gatnamót Aðalstrætis/Mjósunda/Pollgötu. Pollgata er þjóðvegur í þéttbýli, sem mikil þungaumferð fer um. Fyrir voru gatnamót Aðalstræti/Pollgata og Mjósund/Pollgata, sem voru með stuttu millibili. Gatnamótin Aðalstræti/Pollgata voru mjög óheppileg þar sem Aðalstræti kom ekki inn á Pollgötuna með 90° horni. Gatnamótunum var breytt þannig að nú kemur Aðalstræti inn í Mjósund og Mjósund inn á Pollgötu. Gatnamótin voru víkkuð og radíusar stækkaðir, og gert er ráð fyrir dropa til að aðgreina umferð enn frekar. Inni í Tunguhverfi er verið að byggja upp nýtt hverfi. Þar er einnig iðnaður, verslun og bensínstöð. Gatnamótin voru víkkuð, settur dropi á Tungubraut við Skutulsfjarðarbraut og verið er að vinna við lýsingu á þessu svæði. Ákveðið hefur verið að breyta gatnamótum Fjarðarstrætis/Sólgötu/Eyrargötu, (Hrannargata). Þessi gatnamót eru svo gott sem krossgatnamót. Umferð frá Hnífsdal og Bolungarvík fer um þessar götur. Umhverfisnefnd hefur samþykkt að breyta þessum gatnamótum á þann hátt að Fjarðarstrætið verður einstefna og Eyrargata verður botnlangi. Við þessa framkvæmd var Fjarðarstrætið fært til um hálfa breidd sína.
4.2.10 Sveitarfélagið Skagafjörður.
Í tengslum við vinnu við gerð aðalskipulags fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð 2005–2017, sem nú er á lokastigi, er markvisst unnið að flokkun gatnakerfisins og skráningu á óhöppum og slysum. Í undirbúningi er að gera öll íbúðarsvæði í þéttbýli að 30 km svæðum, en það hefur ekki enn komið til framkvæmda. Helstu úrbætur á gatnakerfinu hvað varðar umferðaröryggi hafa falist í betri merkingu gatna og gatnamóta og bættri aðkomu að bílastæðum. Markvisst hefur verið unnið að gerð göngustíga og gangbrauta á þéttbýlisstöðum sveitarfélagsins til þess að aðskilja sem mest gangandi umferð frá þeirri vélknúnu. Þá er yfir vetrartímann stöðugt aukinn snjómokstur og hreinsun á götum og gangbrautum til að stuðla að auknu öryggi í umferðinni.
4.2.11 Akureyrarbær.
Umferðaröryggisáætlun fyrir Akureyri hefur ekki verið gerð, en bærinn er markvisst að gera íbúðahverfi að 30 km hverfum og er áætlað til þeirra framkvæmda 15 millj. kr. á hverju ári. Til stendur að ljúka hönnun 30 km hverfa nú í vetur og er þá hægt að ljúka þessari áætlun í framhaldi að þeirri hönnun.
4.2.12 Fjarðabyggð.
Áfram hefur verið unnið að úrbótum til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda. Er það gert með þrengingum og betri afmörkun gatnamóta, lagfæringu á gangstéttum, merkingum og bættri lýsingu. Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar frá 2000 hefur verið tekin upp og endurbætt. Þar er m.a. gert ráð fyrir bættum merkingum, minnkun á leyfðum hámarkshraða í húsagötum niður í 30 km á nokkrum götum til viðbótar þeim sem fyrir voru með slíka takmörkun og ýmsum fleiri úrbótum til að auka öryggi í umferðinni. Vinnulag við snjómokstur er í endurskoðun og þar á að leggja áherslu á betri snjóhreinsun og hálkueyðingu gangstétta til að auðvelda umferð gangandi vegfarenda.
Sett hefur verið upp hraðaviðvörunarskilti með blikkljósi við innkeyrslu að þéttbýlinu á Reyðarfirði þegar komið er úr austri. Hringtorg sem sett var við innkeyrslu að þéttbýlinu úr vestri í tengslum við gerð hjáleiðar hefur dregið mjög úr hraðakstri þar.
Fyrir liggur að gera úttekt á götulýsingu við innkeyrslur í alla þéttbýliskjarna Fjarðabyggðar.
4.2.13 Vestmannaeyjabær.
Helstu aðgerðir til að auka umferðaröryggi í Vestmannaeyjabæ árið 2005 voru eftirfarandi: Unnið var að því að auka öryggi gangandi vegfarenda með því að leggja áherslu á betri stíga og lýsingu þeirra. Unnið var að því að lagfæra umferðarmerkingar þar sem það átti við. Víða um bæinn var unnið að lagfæringum á götum, ýmist með því að lagfæra holur eða leggja yfirlag, hraðatakmarkandi aðgerðir voru á stöku stað. Samstarf bæjarins við verktaka og lögreglu var bætt vegna merkinga við vinnusvæði og annarra umferðaröryggismála. Sérstakur vinnuhópur var skipaður um umferðarmál og hefur hann skoðað helstu hættusvæðin í umferðinni og komið með tillögur um að minnka leyfðan hámarkshraða í íbúðahverfum og við skóla.
Umferðarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu kom á staðinn og fór yfir tillögur vinnuhópsins um umferðarmál, og verður unnið að því að koma tillögunum í framkvæmd á næstu missirum.
4.2.14 Sveitarfélagið Árborg.
Undanfarin ár hefur verið unnið að umferðarskipulagi fyrir Selfoss. Árið 2005 var verkefnið víkkað út og nær núna auk þess til þéttbýlisstaðanna við ströndina, þ.e. Eyrarbakka og Stokkseyrar. Fyrir liggur tillaga að umferðarskipulagi fyrir þessa þéttbýlisstaði. Tillagan hefur verið tekin til umfjöllunar í umferðarnefnd sveitarfélagsins og leitað hefur verið eftir áliti hagsmunaaðila eins og lögreglu, ökukennara og framkvæmda- og veitusviðs. Einnig hefur vinnuhópur umferðarnefndar, sem samanstendur af tveimur fulltrúum úr nefndinni og yfirlögregluþjóni, yfirfarið tillögurnar og sent frá sér álit. Nú liggur fyrir álit hagsmunaaðila og hefur umferðarnefndin fjallað um tillöguna og þær athugasemdir sem komnar eru frá hagsmunaaðilum. Stefnt er að því að afgreiða tillögu að nýju umferðarskipulagi fyrir sveitarfélagið til bæjarstjórnar í marsmánuði 2006. Þegar umferðarskipulagið verður samþykkt endanlega í bæjarstjórn Árborgar verður því væntanlega hrint í framkvæmd í áföngum, með tímasettri framkvæmdaáætlun. Skipulagið tekur á umferðaröryggismálum eins og hraðahindrunum, 50 km götum, 30 km götum o.fl., þannig að eftir því sem framkvæmd þess miðar áfram má gera ráð fyrir því að umferðaröryggi aukist í sveitarfélaginu. Á árinu 2005 var unnið að gerð nokkurra hraðahindrana og voru þær staðsettar í samræmi við fyrirliggjandi skipulagstillögur. Einnig hefur verið skilgreind og gerð 30 km gata við nýjan skóla á Selfossi, Sunnulækjarskóla.
4.3 Vátryggingafélög.
4.3.1 Samband íslenskra tryggingafélaga.
Samband íslenskra tryggingafélaga hefur venju samkvæmt komið að ýmsum verkefnum á síðasta ári, sem hafa að markmiði að auka öryggi í umferðinni og fækka slysum. Áhersla að þessu sinni hefur verið lögð á öryggi hjólreiðamanna og hjálmanotkun þeirra, auk áróðurs gegn ölvunarakstri og hraðakstri. Þá hefur allmikilli vinnu verið varið í að hlutast til um að reglum sé fylgt er snúa að öryggi ökutækjanna sjálfra, t.d. varðandi skráningar-, vátryggingar- og skoðunarskyldu ökutækja, en í því efni er pottur brotinn. Af hálfu Sambands íslenskra tryggingafélaga er á næstunni ætlunin að leggja sérstaka áherslu á styrkingu ökunámsins hér á landi og fræðslu ungra ökumanna.
4.3.2 Sjóvá.
Haldin voru námskeið um land allt fyrir ökumenn á aldrinum 17–20 ára, með mjög góðum árangri. Tjónatíðni var að meðaltali þrefalt minni hjá þeim sem mæta og óhöpp þeirra yfirleitt minni háttar. Aukin áhersla var á árinu 2005 á að auka umferðaröryggi innan fyrirtækja með fundum, námskeiðum, stormviðvörunum og fleiri leiðum. Sjóvá tekur á móti nemendum úr ökuskólum víða um land og kemur að fræðslu til aukinna ökuréttinda með ýmsum hætti. Heimsóttir eru margir skólar þar sem umferðarfræðsla er val í 10. bekk, yngri bekkir hafa verið heimsóttir og boðið upp á fræðslu tengda reiðhjólum og hjálmanotkun. Fjöldi framhaldsskóla var heimsóttur og aðallega komið inn í lífsleiknikennsluna á fyrsta ári með umferðartengda fræðslu. Sjóvá var í samstarfi við lögregluna og Landssamband íslenskra vélsleðamanna (LÍV) um fækkun slysa á vélsleðum og um nauðsyn þess að hafa sleðana skyldutryggða. Samstarf var við Brautina, bindindisfélag ökumanna, um ökuleikni milli framhaldsskólanema. Skólarnir voru heimsóttir og fundir haldnir með nemendum um umferðarmál. Öflug fræðsla er á heimasíðu félagsins fyrir ýmsa hópa vegfarenda.
Veltibíllinn er í eigu Sjóvár, Brautarinnar og Umferðarstofu. Sjóvá hefur nýtt veltibílinn vel til fræðslu og boðið hópum að prófa, bæði í Tjónaskoðunarstöðinni og víða um land. Starfsmenn Brautarinnar hafa haft umsjón með bílnum.
Reglulega hefur Sjóvá vakið athygli vegfarenda á ýmsum vanda í umferðinni, svo sem að tala í síma án handfrjáls búnaðar, of stuttu bili milli bíla, búnaði bíla, ölvunarakstri o.fl.
Samstarf var við ÍTR um fræðslu fyrir hjólreiðamenn. Lögð var áhersla á reglur og hjálmanotkun. Efnt var til forvarnadaga vítt og breitt um landið þar sem m.a. var bent á varhugaverða staði, fundir haldnir með eldri borgurum o.fl. Þúsundir endurskinsvesta voru afhentar í leikskólum víða um land til vettvangsferða með leikskólabörn.
Sjóvá hefur undanfarin ár gefið endurskinsmerki, en notkunin verið sáralítil. Því voru útbúin smellibönd sem auðveld eru í notkun og krökkum þykja flott. Auk ofangreindra verkefna hefur fjöldinn allur af smærri verkefnum verið unninn, svo sem svartblettagreining o.fl.
4.3.3 Tryggingamiðstöðin hf.
Á árinu 2005 stóð TM fyrir fjölda fræðslufunda hjá fyrirtækjum þar sem umferðaröryggismál voru sett á oddinn. Naut félagið þar liðsinnis Snorra Bjarnasonar ökukennara sem er í hópi reyndustu manna landsins á þessu sviði. Sérstök áhersla var lögð á fræðslu fyrir fyrirtæki á sviði þungaflutninga, en sem kunnugt er hafa slíkir flutningar aukist mikið á þjóðvegum landsins undanfarið. Í þessu samhengi má nefna að TM hafði frumkvæði að því að koma á samstarfi Flytjanda og Veðurstofunnar þar sem Veðurstofan útvegar nú Flytjanda daglega veðurspár sem sérstaklega eru útfærðar með tilliti til þeirra leiða sem bílar á vegum fyrirtækisins aka. Þetta verkefni er í þróun, í samstarfi við Símann, og eru bundnar miklar vonir við að þessar upplýsingar muni í nánustu framtíð auka öryggi vegfarenda til mikilla muna.
Þá átti félagið farsælt samstarf við önnur þungaflutningafyrirtæki m.t.t. þess að bæta aksturslag atvinnubílstjóra. Að venju styrkti félagið með fjárframlögum ýmsa aðila sem láta sig umferðaröryggi varða en einnig má geta þess að félagið hefur átt gott samstarf við aðila sem tryggt hafa viðskiptavinum félagsins aðgang að barnabílstólum af bestu gerð, bæði til leigu og kaups.
Þessu til viðbótar má geta umferðarátaks með Flytjanda um verslunarmannahelgina þar sem áhersla var lögð á að glaðir ökumenn væru betri ökumenn. Í því skyni stóð TM ásamt Flytjanda að flutningi 20 gamansagna eða brandara í útvarpi yfir þessa mestu umferðarhelgi ársins til að létta geð ökumanna.
Loks gaf TM viðskiptavinum sínum endurskinsmerki sl. haust til að auka sýnileika yngstu þátttakendanna í umferðinni og þeirra sem eru á ferðinni þegar rökkva tekur.
4.3.4 Vátryggingafélag Íslands hf.
VÍS hélt fjölmarga umferðarfundi meðal nýnema í framhaldsskólum landsins árið 2005. Þar var fjallað um afleiðingar umferðarslysa fyrir ungt fólk í máli og myndum. Auk þess heldur VÍS opna umferðarfundi í þjónustumiðstöð félagsins á tveggja vikna fresti í samstarfi við þrjá af stærstu ökuskólum landsins. Þá heimsækir félagið eldri borgara og fjallar um tjóna- og slysavarnir.
Yngstu bekkir grunnskóla og elstu börn leikskóla heimsóttu VÍS á árinu og fengu fræðslu um öryggi í umferð. VÍS gekkst á árinu fyrir nokkrum fundum með þungaflutningabílstjórum, auk þess sem boðið er upp á umferðaröryggisfræðslu í fyrirtækjum sem tryggð eru hjá félaginu.
Árið 2005 boðaði VÍS til þjóðarátaks gegn umferðarslysum og birti m.a. sérstakar forvarnaauglýsingar í fjölmiðlum. Forvarnafulltrúi VÍS var reglulegur gestur í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 og helgarútvarpi Rásar 2, þar sem fjallað var um umferðaröryggismál.
VÍS leigir út einhverja öruggustu barnabílstóla sem völ er á í heiminum, og veitir reglulega ráðgjöf og fræðslu um þá.
Árið 2005 stóð VÍS fyrir tilraunaverkefni um þriggja mánaða skeið meðal ungra ökumanna sem notuðu Saga-ökuritann. Það var í fyrsta skipti hér á landi sem kannaður var árangur slíks búnaðar meðal einstaklinga. Árangurinn var mjög góður, m.a. umtalsvert minni ökuhraði þátttakenda.
VÍS stóð fyrir sérstöku eftirvagnaátaki í vikunni fyrir verslunarmannahelgina í samstarfi við Frumherja þar sem boðið var upp á endurgjaldslausa skoðun á eftirvögnum og búnaði þeirra.
4.4 Ýmis félagasamtök.
4.4.1 Brautin – bindindisfélag ökumanna.
Meginþungi starfs félagsins á árinu 2005 var ökuleikni framhaldsskólanema. Um tilraunaverkefni var að ræða og voru heimsóttir tíu framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu, auk VMA á Akureyri og Menntaskólans á Egilsstöðum. Fyrir keppni var boðið upp á fræðslu þar sem athyglinni var beint að því hvernig er að vera nýliði í umferðinni, með sérstaka áherslu á áhrif áfengis. Alls tóku 65 nemendur þátt í undankeppnum og hefur um helmingur þeirra áunnið sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni, sem haldin verður í ársbyrjun 2006. Verkefnið var unnið í samvinnu við Sjóvá, OgVodafone, Gámaþjónustuna, KSÍ og Heklu, sem lánaði bíl til verkefnisins.
Veltibíllinn var mikið notaður á árinu og var stór stund þegar nýr bíll var afhentur 5. október. Við sama tækifæri var fyrsti íslenski veltibíllinn afhentur Samgönguminjasafninu á Skógum. Þá var bíll númer tvö nýttur til þess að vekja athygli á aftanákeyrslum með því að láta hann falla úr krana. Þannig var líkt eftir árekstri á 50 km hraða.
Í desember var svo athygli vakin á óáfengum drykkjum þar sem kaffibarþjónar kynntu Baróninn, hátíðardrykk 2006.
4.4.2 Félag íslenskra bifreiðaeigenda.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda er aðili að EuroRAP, sem eru fjölþjóðleg samtök bifreiðaeigendafélaga og vegayfirvalda. EuroRAP-verkefnið er byggt á samvinnu neytenda, vegagerða og hönnuða um flokkun vega og stjörnugjöf út frá öryggi. Stjörnugjöfin er unnin með sjónrænni athugun á samgöngumannvirkjum og umhverfi vega, að teknu tilliti til umferðarhraða, umferðarþunga og slysagagna. EuroRAP er systurverkefni EuroNCAP. Á árinu 2005 var unnið að innleiðingu EuroRAP á Íslandi. Búið er að tækjavæða nýjan bíl og sækja nokkra fundi sérfræðinga EuroRAP.
Umferðaröryggismál voru veigamikill efnisþáttur í FÍB-blaðinu. Þrjú tölublöð voru gefin út árið 2005 í um 17 þúsund eintökum hvert. Á heimasíðu FÍB eru umferðaröryggismál reglulega til umfjöllunar. Á liðnu ári var oft vitnað í umferðaröryggisefni FÍB í öðrum fjölmiðlum.
Námskeið um akstur erlendis, þar sem m.a. er fjallað um umferðarreglur og umferðarmenningu, eru reglulegur þáttur í starfsemi FÍB.
Skrifstofa FÍB miðlar upplýsingum um akstur og umferðaröryggi á Íslandi til erlendra systurklúbba og til FIA, alþjóðasamtaka bifreiðaeigenda.
4.4.3 Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Félagið var með umferðarfulltrúa sem starfaði allt árið. Hann vann að almennu umferðaröryggi, m.a. með fræðslu, könnunum, samstarfi við aðra o.fl. Um sumarið skoðaði hann hálendið m.t.t. öryggis þeirra sem um það fara.
Árleg könnun um öryggisbúnað barna í bílum var gerð, skoðaður fjöldi jeppa í umferð, beltanotkun ökumanna o.fl. Margar slysavarnadeildir félagsins unnu að auknu öryggi í heimabæ sínum, eins og að gefa endurskinsmerki, halda hjóladag, gefa hjálma, gera kannanir o.fl.
Fræðsluefni sem til er hjá félaginu tengt umferðarmálum:
– Námsefni í lífsleikni fyrir 4., 5. og 6. bekk sem byggist á sex þemaheftum og er eitt þeirra um umferðina.
– Númi á ferð og flugi og Lært og leikið með Núma, brúðusýning og námsefni fyrir leikskólabörn og börn í 1. og 2. bekk grunnskólans þar sem m.a. er komið inn á umferð.
– Bæklingur „Have a safe journey“ um öryggi ferðamanna þar sem m.a. er komið inn á umferðina. Bæklingurinn er á þremur tungumálum og á sex tungumálum á netinu.
– Bæklingurinn Hjólreiðar, fyrir börn og foreldra þeirra.
– Bæklingurinn Hlífðu þér, um hlaupahjól, línuskauta og hjólabretti, fyrir börn og foreldra þeirra.
– Bæklingur um vélsleðaöryggi.
– Veggspjald um banaslys erlendra ferðamanna á sex tungumálum.
– Öryggishandbók fyrir ferðalanga um flest það sem við kemur bifreiðum og ferðalögum tengdum þeim.
– Bæklingurinn Örugg efri ár, ætlaður öldruðum í umferðinni.
– Ýmsir fyrirlestrar fyrir grunnskóla tengdir umferð sem starfsmenn félagsins halda.
4.4.4 Ökukennarafélag Íslands.
Ökukennarafélagið hefur sem fyrr haft á boðstólum kennsluefni fyrir öll stig ökunáms. Kennslubók til almennra ökuréttinda býðst jafnframt sem margmiðlunardiskur. Einnig lét félagið semja nýja kennsluskrá fyrir ökuskóla til aukinna ökuréttinda.
Áfram hefur verið unnið að markaðssetningu vistakstursnámskeiða fyrir ökumenn. Mikið hefur áunnist og hafa mörg fyrirtæki sem stunda fólksflutninga og fyrirtæki með stóran bílaflota sent ökumenn sína á slík námskeið. Telja bæði fyrirtækin og ökumennirnir sjálfir að námskeiðin hafi skilað miklum árangri, m.a. í auknu umferðaröryggi sem afleiðing af vistaksturshugsun ökumanns.
Félagið hefur haldið nokkur slík námskeið fyrir ökukennara „Sálræn skyndihjálp í ökukennslu“, með leiðbeinendum frá RKÍ og „Nýjungar í bíltækni og Kraftar og hemlun“, með leiðbeinanda frá Fræðslumiðstöð Bílgreinasambandsins.
Þá hefur félagið gerst virkur aðili að Evrópusambandi ökukennara, EFA, og bætist það starf við margra ára norrænt samstarf.
Félagið hefur unnið markvisst að því að aksturskennslusvæði verði að veruleika á Íslandi. Félagið er tilbúið að standa fyrir uppbyggingu og fjármögnun slíks svæðis strax og yfirvöld hafa gert ráðstafanir til að tryggja rekstrargrundvöllinn.
Fylgiskjal I.
Samanburður á fjölda látinna í umferðinni miðað við 100.000 íbúa
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
í nokkrum viðmiðunarlöndum 1970–2005.
Heimild: IRTAD-International Road Traffic and Accident Database (Alþjóðlegur grunnur með upplýsingum
um umferð og slys á vegum): Gagnagrunnurinn er á vegum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD).
Fylgiskjal II.Samanburður á fjölda látinna í umferðinni miðað við 1 billjón ekna kílómetra
í nokkrum viðmiðunarlöndum frá 1970.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: IRTAD-International Road Traffic and Accident Database (Alþjóðlegur grunnur með upplýsingum
um umferð og slys á vegum): Gagnagrunnurinn er á vegum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD).
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Línuritið sýnir þróun ökuhraða á þjóðvegum á tímabilinu 1988–2005. Engar mælingar fóru fram 1994 og 1995 og mjög fáar árið 1997 og er þeim árum því sleppt. Sjá má að ökuhraði hefur aukist umtalsvert á tímabilinu. Þó eru vísbendingar um að síðustu fjögur ár, þ.e. árin 2002, 2003, 2004 og 2005, hafi dregið úr öðuhraða miðað við árin þar á undan.