132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1523 — 708. mál.
Frumvarp til laga
um stofnun hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands.
(Eftir 2. umr., 3. júní.)
1. gr.
Heimild til að stofna hlutafélag.
Við stofnun félagsins skal allt hlutafé þess vera í eigu íslenska ríkisins og skal sala þess og ráðstöfun óheimil.
2. gr.
Forræði á hlutafé ríkisins.
3. gr.
Stofnhlutafé.
Samgönguráðherra skal láta meta eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar skv. 1. mgr. og láta leggja mat á hvert stofnhlutafé hlutafélagsins skuli vera miðað við stofndag. Ríkisendurskoðandi skal staðfesta mat á hlutafé félagsins og ákvarða hvert skuli vera nafnverð stofnhlutafjár í félaginu. Skal slík staðfesting liggja fyrir við stofnun félagsins, sbr. 8. gr.
4. gr.
Innborgun hlutafjár.
5. gr.
Tilgangur félagsins.
6. gr.
Frávik frá lögum um hlutafélög.
Ákvæði 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 20. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 107. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög, gilda ekki um tölu stofnenda og fjölda hluthafa í félaginu og ekki skal heldur ákvæði 2. mgr. 14. gr. hlutafélagalaga gilda um félagið. Um mat á stofnfé félagsins fer skv. 2. mgr. 3. gr. laga þessara. Að öðru leyti og ef annað leiðir ekki af lögum þessum taka ákvæði hlutafélagalaga til félagsins.
7. gr.
Réttindi starfsmanna.
Við niðurlagningu starfsemi flugleiðsöguþjónustu og flugvallareksturs Flugmálastjórnar Íslands, sbr. 9. gr., fer um réttindi og skyldur starfsmanna eftir lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum, og lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum, nr. 72/2002, eftir því sem við á.
8. gr.
Stofnfundur og stofnyfirlýsing.
Á stofnfundi skal leggja fram til afgreiðslu drög að stofnyfirlýsingu og samþykktum fyrir félagið. Á stofnfundi skal kjósa félaginu stjórn samkvæmt samþykktum þess til fyrsta aðalfundar. Stjórn félagsins skal við stofnun þess vera skipuð fimm mönnum og þremur til vara.
Í stofnyfirlýsingu skv. 1. mgr. skal mælt fyrir um þau atriði sem áskilið er að fram komi í stofnsamningi samkvæmt hlutafélagalögum að öðru leyti en getið er um í lögum þessum.
9. gr.
Yfirtaka á hluta starfsemi Flugmálastjórnar Íslands.
10. gr.
Samningar ríkisins við félagið.
Nú óska stjórnvöld eftir því að félagið veiti þjónustu, leggi í framkvæmdir eða rekstur, svo sem vegna þjónustu á tilteknu landsvæði, til almannaheilla, í öryggisskyni eða vegna annarra ástæðna, sem ljóst er að ekki skilar arði, og skal þá gera um það samning milli samgönguráðherra og félagsins. Heimilt er ráðherra að fela Flugmálastjórn Íslands að annast gerð slíkra samninga fyrir sína hönd.
11. gr.
Skuldbindingar ríkisins samkvæmt alþjóðasamþykktum o.fl.
Er félaginu skylt að fara að fyrirmælum framangreindra stjórnvalda hér að lútandi sem og öðrum fyrirmælum þeirra er varða framkvæmd og efndir slíkra samninga og annarra þjóðréttarlegra skuldbindinga.
12. gr.
Gjaldskrá.
13. gr.
Gildistaka.
14. gr.
Breytingar á lögum um loftferðir og lögum um rannsókn flugslysa.
a. 1. málsl. 1. mgr. 57. gr. c, sbr. 7. gr. laga nr. 75/2005, orðast svo: Flugmálayfirvöld geta tekið til athugunar skipulag afgreiðslugetu flugvallar og krafist úrbóta, ef kostur er, í samræmi við reglur sem samgönguráðherra setur.
b. 58. gr. orðast svo:
Ef nauðsynlegt er í tengslum við rekstur flugvallar eða flugleiðsögubúnaðar að afla lands, lóðar eða annarrar eignar og samningum um kaup verður ekki við komið má ráðherra heimila, að fenginni umsögn Flugmálastjórnar, að eign eða hluti hennar sé tekin eignarnámi gegn endurgjaldi sem meta skal samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms. Samþykki ráðherra fyrir eignarnámi skal m.a. háð því að eignarnemi setji tryggingu fyrir greiðslu áætlaðra eignarnámsbóta og kostnaðar við matið. Nú fást eignarnámsbætur ekki greiddar hjá eignarnema og skal ríkissjóður þá ábyrgjast greiðslu þeirra.
c. 1.–3. mgr. 71. gr., sbr. 11. gr. laga nr. 21/2002, orðast svo:
Heimta má gjöld til að standa undir kostnaði við rekstur flugvalla eða flugleiðsögutækja í þágu loftferða. Þá er heimilt að heimta gjöld fyrir þá aðstöðu sem starfsemi tengd flugsamgöngum nýtur á flugvöllum.
Enn fremur er heimilt að heimta gjöld til greiðslu á kostnaði við rekstur flugumferðarstjórnar í þágu loftferða.
Heimilt er með samningi að fela stjórnvöldum annarra ríkja eða öðrum viðurkenndum aðilum innheimtu á þessum gjöldum.
d. Eftirfarandi breytingar verða á 71. gr. a, sbr. 1. gr. laga nr. 88/2004:
1. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Lendingargjöld skulu renna til þess aðila sem starfrækir viðkomandi flugvöll.
2. Orðin „sem ráðherra setur“ í 2. málsl. 3. mgr. falla brott.
3. Í stað orðanna „Flugmálastjórn er heimilt“ í 6. mgr. kemur: Heimilt er.
e. Eftirfarandi breytingar verða á 75. gr., sbr. 14. gr. laga nr. 21/2002:
1. Í stað orðanna: „Flugmálastjórn skal heimilt“ í 2. mgr. kemur: Heimilt er þeim sem annast flugleiðsöguþjónustu.
2. Við 4. mgr. bætist nýr málsliður sem verður 1. málsl., svohljóðandi: Flugmálastjórn skal heimill aðgangur að gögnum þessum við framkvæmd eftirlits með eftirlitsskyldum aðilum.
f. Í stað orðsins „Samgönguráðherra“ í 1. mgr. 76. gr. kemur: Flugmálastjórn.
g. Á eftir orðinu „Flugmálastjórn“ í 1. mgr. 77. gr. kemur: og þeim sem annast flugleiðsöguþjónustu.
h. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. 132. gr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Flugmálastjórn getur með samningi falið félagasamtökum eða fyrirtækjum að hafa umsjón með framkvæmd leitarstarfa að hluta til eða öllu leyti.
i. Á eftir orðunum „Flugmálastjórn Íslands“ í 1. mgr. 136. gr., sbr. 18. gr. laga nr. 21/2002, kemur: og þeim sem starfrækir flugvöll eða flugleiðsöguþjónustu.
j. 2. mgr. 138. gr. fellur brott.
k. 139. gr. fellur brott.
l. 2. málsl. 140. gr. orðast svo: Skulu allir handhafar flugrekstrarleyfa og flugkennsluleyfa, útgefinna af Flugmálastjórn, svo og þeir sem starfrækja flugvelli og flugleiðsöguþjónustu hér á landi vera áskrifendur að útgáfum þessum.
2. Eftirfarandi breytingar verða á lögum nr. 35/2004, um rannsókn flugslysa:
a. 3. mgr. 8. gr. orðast svo:
Flugmálastjórn Íslands og lögreglu, svo og þeim sem starfrækja flugleiðsöguþjónustu og flugvelli, er skylt að veita nefndinni nauðsynlegar upplýsingar og aðstoð vegna rannsóknar flugslyss.
b. Á eftir orðunum „Flugmálastjórn Íslands“ í 2. málsl. 1. mgr. 11. gr. kemur: þeir sem starfrækja flugleiðsöguþjónustu og flugvelli.