133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 38 — 38. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, með síðari breytingum.
Flm.: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhann Ársælsson, Mörður Árnason,
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Anna Kristín Gunnardóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson,
Ásta R. Jóhannesdóttir, Björgvin G. Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson,
Guðrún Ögmundsdóttir, Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Gunnarsson,
Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller, Lúðvík Bergvinsson, Margrét Frímannsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Valdimar L. Friðriksson, Össur Skarphéðinsson.
1. gr.
Sé í tillögu að matsáætlun, skv. 1. málsl. 1. mgr. 8. gr., gert ráð fyrir að heimildir Íslands, samkvæmt íslenska ákvæðinu við Kyoto-bókunina við rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar verði nýttar, skal Skipulagsstofnun vísa þeirri tillögu til umhverfisráðherra sem með þingsályktunartillögu aflar samþykkis Alþingis fyrir þeirri framkvæmd sem í tillögu að matsáætlun felst.
2. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er flutt samhliða þingsályktunartillögu Samfylkingarinnar um gerð rammaáætlunar um náttúruvernd. Flutningsmenn, sem eru allir þingmenn Samfylkingarinnar, telja brýna nauðsyn bera til að íslensk stjórnvöld skýri stefnu sína í stóriðjumálum með tilliti til náttúruverndar, mengunar og skuldbindinga landsins vegna Kyoto-bókunarinnar og efnahagslegra áhrifa af uppbyggingu stóriðju.
Mikill áhugi virðist nú fyrir rekstri álvera hér á landi og augljóslega stefnir í að heildarframleiðslugeta álvera hér á landi, og þar með útblástur gróðurhúsalofttegunda af þeim sökum, fari á næstu árum langt fram úr þeirri árlegu viðmiðun sem stuðst er við. Hið svokallaða íslenska ákvæði gerir ráð fyrir 1.600 þús. tonna árlegri losun á koldíoxíði.
Núverandi áform munu viðhalda og jafnvel auka þá miklu spennu sem hefur verið í atvinnu- og fjármálalífi landsins á síðustu árum. Fyrirsjáanlegt er að þróunin verði afar hröð á næstu árum. Árið 2005 var framleiðslugeta álvera í landinu 270 þús. tonn. Þá framleiddi Alcan í Straumsvík 180 þús. tonn og Norðurál í Hvalfirði 90 þús. tonn. Árið 2006 verður framleiðslugetan 400 þús. tonn en þá bætist við stækkun Norðuráls um 130 þús. tonn. Árið 2007 verður framleiðslugetan orðin 786 þús. tonn, með tilkomu álvers Alcoa Fjarðaáls, en framleiðslugeta þess er áætluð 346 þús. tonn, og 40 þús. tonna stækkun Norðuráls.
Ákvarðanir um framangreind verkefni liggja fyrir með skuldbindandi samningum milli álframleiðenda og orkusala og hafa fyrirtækin uppfyllt þær reglur sem þarf til að framleiðsluleyfi fáist. Miðað við fyrrnefnd áform verður aukning árlegrar losunar koldíoxíðs frá árinu 1990 orðin 1.183 þús. tonn og því einungis 417 þús. tonn eftir að mörkum íslenska ákvæðisins, verði það óbreytt eftir fyrirhugaða endurskoðun Kyoto-samkomulagsins árið 2012.
Framkvæmdaáform og útblástursheimildir.
Nú liggur fyrir ákvörðun Landsvirkjunar um að ræða við Alcan á þessu ári um stækkun í Straumsvík um 280 þús. tonn. Tekin hefur verið ákvörðun um samstarf Alcoa og stjórnvalda um undirbúning 250 þús. tonna álvers við Húsavík. Norðurál stefnir að byggingu 250 þús. tonna álvers í Helguvík og hefur nú þegar tryggt sér land og hafnaraðstöðu. Gangi öll þessi áform eftir verður heildarframleiðslugeta á áli í landinu 1.566 þús. tonn. Einungis eitt af þessum þremur verkefnum rúmast innan íslenska ákvæðisins eftir 2012, verði það óbreytt. Vangaveltur stjórnvalda um fleiri verkefni af þessum toga virðast byggjast á því að samkvæmt skuldbindingunni mega íslensk fyrirtæki sleppa út í andrúmsloftið 1.600 þús. tonnum af koldíoxíði að meðaltali til 2012. En verði árleg framleiðslugeta meiri en tæp 1.100 þús. tonn virðist sem ekki verði hægt að nýta þá auknu framleiðslugetu eftir 2012 nema með útvíkkun á íslenska ákvæðinu eða innflutningi á mengunarkvótum.
Hvert stefnir að óbreyttu?
Þau lög og starfsreglur, sem gilda um uppbyggingu stóriðju og raforkuvera, setja engar hömlur á framkvæmdir eða framleiðsluaukningu. Ekki þarf lengur sérstök lög fyrir virkjunum eða álversbyggingum. Ef raforkuframleiðendur og stóriðjufyrirtæki fara að þeim lögum og reglum sem nú gilda hefur löggjafinn að óbreyttu ekki aðkomu að framkvæmdaáformum þeirra. Yfirlýsingar fyrrverandi forsætisráðherra og fleiri ráðamanna liggja fyrir um að stefnt verði að því að fá framlengingu og aukningu á íslenska ákvæðinu. Það kemur hins vegar ekki í ljós fyrr en samningum þjóðanna lýkur hvort af þeirri aukningu verður. Það er óábyrgt frá hendi íslenskra stjórnvalda sem hafa ákveðið að taka þátt í samstarfi í loftslagsmálum að byggja upp framleiðslugetu út á aukningu sem ekki hefur verið staðfest í nýju samkomulagi. Í sveigjanleikaákvæðum loftslagssamningsins er gert ráð fyrir að flytja megi mengunarkvóta milli aðildarríkjanna. Þessi ákvæði ákvað ríkisstjórnin að nýta ekki. Þess vegna hefur engum mengunarkvótum verið úthlutað til stóriðjufyrirtækjanna og engir fyrirvarar verið settir um að þau leggi til losunarheimildir ef með þarf. Yfirlýsingar ráðherra á síðasta vetri um að meiri framleiðslugeta en íslenska ákvæðið gerir ráð fyrir sé innan marka ef framleiðslan er innan meðaltalsins á samningstímanum þýða í raun að íslensk stjórnvöld taka á sig ábyrgð á því að leggja mengunarheimildirnar til með einhverjum hætti.
Af framansögðu má sjá að löggjafarvaldið getur að óbreyttu hvorki haft bein áhrif á það í hve mörg verkefni verður ráðist né hvenær. Í raun ríkir algert stjórnleysi í þessum málum. Álframleiðendum er boðið upp á fríar losunarheimildir sem hið opinbera tekur sjálft ábyrgð á að leggja til og þeir geta hafið framkvæmdir þegar þeim hentar ef raforkuframleiðendur anna eftirspurninni. Nú stefnir í að íslensk stjórnvöld þurfi að ná fram hækkun á íslenska ákvæðinu upp í 2,4 millj. tonna á ári ef fram fer sem horfir. Að öðrum kosti þarf að kaupa mengunarheimildir vegna nýrrar framleiðslu eða gera aðrar sambærilegar ráðstafanir til að draga úr útstreymi frá landinu.
Ríkisstjórnin virðist hafa ákveðið að taka þá skyldu á hið opinbera að leggja nýrri stóriðju til allar útblástursheimildir á koldíoxíði þó að íslenska ákvæðið fáist ekki útvíkkað. Nýir skuldbindandi samningar um uppbyggingu raforkuvera og álvera eru á næsta leiti. Stjórnvöld geta ekki að óbreyttu haft bein áhrif á fjölda þeirra, tímasetningu eða hraða uppbyggingarinnar. Samfylkingin telur að við svo búið megi ekki una. Nú þegar verði að skýra stefnu stjórnvalda og gera þeim kleift að hafa áhrif á umfang og tímasetningu framkvæmda.
Framtíðarstefna.
Samfylkingin telur nauðsynlegt að nýta sveigjanleikaákvæði Kyoto-samningsins. Til þess þarf að setja reglur um úthlutun mengunarkvóta og eftirlit með útblæstri. Á síðasta þingi voru samþykkt lög um að skrá losun gróðurhúsalofttegunda, nr. 107/2006, sem er gott mál svo langt sem það nær en ekki er gert ráð fyrir úthlutun mengunarkvóta í lögunum. Slíkar reglur þarf að undirbúa sem allra fyrst því að meðan þær eru ekki til staðar liggur öll ábyrgð af mengandi útblæstri hjá stjórnvöldum í landinu sem hafa ekki nauðsynleg tök á að draga úr honum. Stjórnvöldum ber að vinna hratt að málinu og Samfylkingin lýsir sig reiðubúna að taka þátt í undirbúningi nauðsynlegrar lagasetningar um útblástursheimildir og takmarkanir á þeim.
Jafnframt þessu þarf að vinna að pólitískri sátt um stefnu þjóðarinnar í náttúruverndar- og loftslagsmálum, sem og nýtingu náttúrugæða. Horfa þarf til landsins alls og skoða hvaða arf þær kynslóðir sem nú lifa ætla þeim sem á eftir koma. Einnig þarf að koma til ábyrgt samstarf við aðrar þjóðir sem vinna að sameiginlegum markmiðum um sjálfbæra þróun á jörðinni.
Bráðabirgðaúrræði.
Fyrirsjáanlegt er að þær nauðsynlegu reglur sem hér hefur verið lýst verða ekki virkt stjórntæki nógu fljótt til að hafa áhrif á boðaðar framkvæmdir. Þess vegna leggur Samfylkingin til bráðabirgðaákvæði við lög um mat á umhverfisáhrifum, sem skal gilda til loka árs 2012.
Verði frumvarp þetta að lögum fær löggjafinn í hendur stjórntæki til að ákveða hvort, hvenær og hvar framkvæmdir verða leyfðar. Mögulegt yrði að taka tillit til markaðrar stefnu og skuldbindinga landsins í loftslagsmálum og stöðu efnahags- og atvinnumála þar til mótuð hefur verið framtíðarstefna og hún lögfest. Einungis sex ár eru til loka þess tímabils sem hér um ræðir og miklar framkvæmdir þegar ákveðnar. Að mati Samfylkingarinnar rúmast ein stórframkvæmd til viðbótar á þessum tíma innan íslenska ákvæðisins ef mögulegt verður að framlengja það óbreytt. Slík framkvæmd er hins vegar við þolmörk hagkerfisins. Með vísan til framangreindra raka er það skoðun Samfylkingarinnar að einstakar ákvarðanir um stóriðju þar sem íslenska ákvæðið við Kyoto-bókunina verður nýtt eigi að vera á ábyrgð Alþingis. Slíkan hátt er eðlilegt að hafa á þar til framtíðarstefna Íslendinga gagnvart náttúruvernd og nýtingu náttúrugæða hefur verið mótuð ásamt stefnu í loftslagsmálum í samstarfi við aðrar þjóðir.