Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 62. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 62  —  62. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um úrbætur í málefnum barna og unglinga sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi.

Flm.: Jóhanna Sigurðardóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Einar Már Sigurðarson,


Þórunn Sveinbjarnardóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson,
Mörður Árnason, Anna Kristín Gunnarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að skipa nefnd sérfræðinga sem hafi það verkefni að kanna stöðu barna og unglinga sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi og gera tillögur um bætta stöðu þeirra.
    Verkefni nefndarinnar verði að gera ítarlega úttekt á stöðu barna og unglinga sem eru þolendur kynferðisbrota og ferli kærumála í réttar- og dómskerfinu. Áhersla verði lögð á að skýrslutaka af börnum vegna meintra kynferðisbrota gegn þeim fari fram í Barnahúsi. Skoðuð verði sérstaklega lagaákvæði er varða starfshætti dómstóla og hvort þörf er á að herða refsiúrræði. Einnig leggi nefndin fram tillögur um hvernig bæta megi stuðning og meðferðarúrræði sem fórnarlömb kynferðisbrota eiga kost á.
    Jafnframt verði kannað hvaða fyrirbyggjandi aðgerðir eru mögulegar, m.a. gagnvart gerendum, til að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og ofbeldi. Að auki leitist nefndin við að benda á leiðir til að hvetja þá sem beittir eru kynferðislegu ofbeldi til að kæra verknaðinn.
    Ráðherra skili skýrslu með niðurstöðum og tillögum nefndarinnar til Alþingis innan árs frá samþykkt tillögu þessarar.
    

Greinargerð.


     Kynferðisbrot gegn börnum er einn alvarlegasti glæpur sem hægt er að fremja, enda er ljóst að kynferðislegt ofbeldi getur eyðilagt líf þolenda um alla framtíð.
    Tillaga þessi felur í sér að gerðar verði úrbætur í málefnum barna og unglinga sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi. Einkum er lögð áhersla á að skoðað verði ferli kærumála í réttar- og dómskerfinu og áhersla lögð á að skýrslutaka af börnum vegna meintra kynferðisbrota gegn þeim fari fram í Barnahúsi en flutningsmenn telja að það sé tvímælalaust til hagsbóta fyrir börnin. Í tillögunni er einnig lögð áhersla á að lagðar verði fram tillögur um hvernig bæta megi stuðning og meðferðarúrræði sem fórnarlömb kynferðisbrota eiga kost á og að kannað verði með hvaða hætti er hægt að beita fyrirbyggjandi aðgerðum, m.a. gagnvart gerendum, til að koma í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
    Tillaga þessi hefur verið flutt áður, síðast á 132. löggjafarþingi. Nú er hún endurflutt nokkuð breytt og með nýrri greinargerð, þar sem tekið er mið af nýjum upplýsingum sem komið hafa fram um stöðu kynferðisbrotamála gagnvart börnum og svörum sem dómsmálaráðherra gaf við fyrirspurn fyrsta flutningsmanns um þessi mál síðasta vetur (271. mál).
    Það er alvarlegt áfall fyrir þjóðina ef 17% barna eru misnotuð fyrir 18 ára aldur eins og kom fram í rannsókn um umfang kynferðislegrar misnotkunar á börnum. Þegar í stað þarf að bregðast við þessu, en í rannsókninni kemur fram að fjórðungur þolenda sé sex ára eða yngri og að í 67% tilvika sé misnotkunin gróf eða mjög gróf. Jafnframt þarf að leita skýringa á því hvers vegna tölurnar eru hærri en í rannsóknum annars staðar á Norðurlöndum. Mikilvægt er því að kalla til færustu sérfræðinga í þá nefnd sem hér er gerð tillaga um að skipa.
    Fram kom í nóvember á síðasta ári að fjöldi mála úr barnaverndar- og réttarvörslukerfinu sem snerta kynferðisbrot gegn börnum hafi nær tvöfaldast á tíu árum á sama tíma og sakfellingum fjölgaði aðeins um eina. Málin voru 123 á ári að meðaltali 1995–1997 en að meðaltali 222 á árunum 2002–2004. Á sama tímabili fjölgaði hins vegar sakfellingum einungis úr 16 í 17 á ári að meðaltali.
    Ástæða er til að taka fram að þetta eru ekki tilkynningar um meint kynferðisbrot heldur mál sem barnaverndaryfirvöld hafa til meðferðar, þá er búið að sía út mál sem ekki var talin ástæða til að kanna frekar. Sjö ár eru liðin frá því að Barnahús tók til starfa en þá gjörbreyttist aðstaða barna sem orðið höfðu fyrir kynferðisbrotum. Forstjóri Barnaverndarstofu hefur haldið því fram að breyting sem gerð var á lögum um meðferð opinberra mála og tók gildi 1. maí 1999 hafi verið afar óheppileg fyrir framgang mála í réttarvörslukerfinu. Í Barnahúsi skoðar sameiginlega fólk með mismunandi þekkingu þessi mál, barnaverndarstarfsmenn og lögregla. Það gafst mjög vel en sérfræðingar Barnahúss taka rannsóknarviðtöl við börnin án þess að fulltrúar réttarvörslukerfisins séu viðstaddir.

Áhrif lagabreytingar.
    Þegar mál er kært til lögreglu er yfirleitt fyrsta skrefið að ræða við barnið til að fá fram sögu þess. Áhrifin af áðurnefndri lagabreytingu 1999 eru þau að meiri hluti skýrslna sem teknar eru af börnum eru teknar í dómshúsi en ekki í Barnahúsi eins og áður. Lögreglu og ákværuvaldi er því erfiðara um vik en meðan skýrslutaka fór fram í Barnahúsi. Skýrslutaka þar er miklu manneskjulegri meðferð á barni sem orðið hefur fyrir svo hræðilegum glæp sem kynferðisbrot er en skýrslutaka í dómshúsi. Þar er efnt til dómþings þar sem verjandi sakbornings og jafnvel sakborningur sjálfur á rétt á að vera viðstaddur. Þetta gerist áður en sakborningur er yfirheyrður. Þegar skýrsla er svo tekin af sakborningi veit hann nákvæmlega hvað barnið hefur sagt í rannsóknarviðtalinu. Hann getur því undirbúið sig með hjálp lögmanns áður en hann gefur framburð sinn, haft skýringar á reiðum höndum og jafnvel undirbúið framburð sem dregur trúverðugleika barnsins í efa. Þetta er afleitt og dæmi þess að þetta hafi eyðilagt mál, komið í veg fyrir sakfellingu eða að dómar hafi orðið vægari en efni standa til. Forstjóri Barnaverndarstofu hefur lýst því yfir að með þessu sé ekki jafnræði með ákæruvaldi og sakborningi. Rannsókn sem gerð hefur verið í Svíþjóð sýnir að þeim mun meira sem sakborningur veit um gögn lögreglu á hann auðveldara með að blekkja.
    Af þessu tilefni beindi fyrsti flutningsmaður þessa máls síðasta vetur fyrirspurn til dómsmálaráðherra (þskj. 285, 271. mál) þar sem ráðherra var m.a. spurður að því hvort hann teldi eðlilegt að á sama tíma og aðrar þjóðir, t.d. Svíar og Norðmenn, væru að koma á fót barnahúsi að íslenskri fyrirmynd hafi sú þróun átt sér stað að meiri hluti skýrslna af börnum væru hér á landi teknar í dómhúsum og minni hluti því í Barnahúsi. Jafnframt var ráðherrann spurður hvort hann teldi ástæðu til að breyta ákvæðum í lögum um meðferð opinberra mála er varða skýrslutökur þegar grunur leikur á kynferðisbroti gegn barni. Eins og áður sagði er ekki jafnræði með ákæruvaldinu og sakborningi í kynferðisbrotamálum, þar sem verjandi sakbornings eða sakborningurinn sjálfur hefur rétt á því að vera viðstaddur frumskýrslutöku og þessi tilhögun hefur iðulega komið í veg fyrir sakfellingu.
    Dómsmálaráðherra taldi engar rannsóknir liggja fyrir um að það að sakborningur og verjandi séu viðstaddir skýrslutöku leiddi til þess að ekki sé sakfellt í máli. Varðandi lagabreytinguna frá 1999 taldi ráðherra það vera börnum til hagsbóta og að lagasetningin væri í samræmi við 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ráðherrann bar jafnframt brigður á að meiri hluti skýrslna af börnum væru teknar í dómshúsi og minni hluti því í Barnahúsi. Yfirheyrsla á barni væri dómsathöfn og það væri því dómari sem hefði forráð á því hvar sú yfirheyrsla færi fram. Jafnframt sagði ráðherrann að Hæstiréttur hefði ítrekað staðfest að sá háttur sem t.d. dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur hafa haft standist fyllilega kröfur laganna um skýrslutöku. Fram kom einnig hjá ráðherra að lögin um meðferð opinberra mála væru til endurskoðunar og þar yrði að farið yfir þau sjónarmið sem fram hafa komið frá því að lögunum var breytt.
    Forstjóri Barnaverndarstofu hefur nú nýlega ítrekað þá skoðun sína að mistök hafi verð gerð með lagabreytingunni frá 1999. Breytingin valdi því að þegar dæmt er í málum vegna kynferðisbrota gegn börnum er sakfellt í helmingi lægra hlutfalli þeirra en áður. Mál spillist og það sé siðferðislega ólíðandi fyrir löggjafann að taka ekki á málum og breyta lögunum. Jafnframt kom fram að hann teldi að framkvæmd lögreglu á skýrslutöku af a.m.k. tveimur börnum, sem grunur lék á að hefðu sætt kynferðisofbeldi, hafi leitt til þess að málin töpuðust. Framburður barnanna hafi þótt trúverðugur en dómarar komust að því að skýrslutakan væri óviðunandi. Skýrsluna tóku lögreglumenn í Héraðsdómi Reykjavíkur en ekki þótti ástæða til að nýta sérfræðiþekkingu starfsmanna Barnahúss. Að sögn forstjóra Barnaverdnarstofu var brugðist við með því að senda lögreglumenn á námskeið erlendis til að læra tækni við skýrslutöku á börnum. Þetta staðfestir það sem forstjórinn segir um að mistök hafi verið gerð við lagasetningun 1999 og sérkennilegt að dómstólar notfæri ekki sérþjálfað fagfólk Barnahúss sem frá upphafi starfseminnar hefur tekið skýrslur af 1.200 börnum. Enn furðulegra er það þegar til þess er litið að Barnahús hefur fengið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar og erlendir aðilar koma hingað til lands að kynna sér og fræðast um þá starfsemi sem fram fer í Barnahúsi.

Framtíð barna í húfi.
    Fyrir nokkrum árum komu fram á Alþingi upplýsingar frá félagsmálaráðherra, þegar hann svaraði fyrirspurn fyrsta flutningsmanns tillögu þessarar, um fjölda barna og unglinga sem beitt höfðu verið kynferðislegu ofbeldi (þskj. 550, 215. mál á 121. löggjafarþingi). Tölurnar vöktu óhug og leiddi þessi fyrirspurn til stofnunar Barnahúss en starfsemi þess hefur vakið mikla athygli erlendis.
    Fram kom að á árunum 1992–1996 hefðu barnaverndarnefndir fengið til meðferðar 465 mál vegna meintrar kynferðislegrar áreitni eða ofbeldis gegn börnum og þeim tengdust 560 börn yngri en 16 ára. Í einhverjum tilvikum voru þolendur sama ofbeldismanns fleiri en einn. Athyglisvert var að aðeins var birt ákæra í 45 málum af 465 eða í um 10% þeirra mála sem barnaverndarnefndir fengu til meðferðar. Á sl. ári (2005) hafa líka komið fram nýjar upplýsingar um að í rúmlega helmingi tilfella þar sem kynferðisbrot gegn barni hafa verið kærð til lögreglu er málið látið niður falla án þess að til ákæru komi þar sem ekki þykja næg sönnunargögn fyrir hendi til sakfellingar. Ástæður þessa verður að brjóta til mergjar og fara yfir allt kæruferli í réttar- og dómskerfinu, allt frá því að kæra berst og þar til úrskurður dómstóla liggur fyrir. Sömuleiðis verður að finna markvissar leiðir til að hvetja þá sem beittir eru kynferðislegu ofbeldi til að kæra glæpinn. Fram hefur komið að ákærum ríkissaksóknara vegna kynferðisbrota gegn börnum hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Ný rannsókn sem sýnir hve óhugnanlega mörg börn eru beitt kynferðislegu ofbeldi staðfestir að stjórnvöld verða að veita meira fé til stuðnings- og meðferðarúrræða fyrir þolendur kynferðisbrota. Framtíð fjölda barna er þar í húfi.
    Börn sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi og þurfa á sérhæfðri meðferð að halda, sem og fjölskyldur þeirra, en í fyrrnefndu svari félagsmálaráðherra kom fram að ætla ætti að á annað hundrað manns þyrfti á stuðningi og meðferð að halda á ári hverju. Engin hópmeðferð stæði þessum börnum til boða og áfallahjálp og langtímameðferð væri sjaldnast skipulögð af barnaverndarnefndum, enda væru lagaskyldur á því sviði óljósar. Búast má við að sá hópur sem þarf á sérhæfðum meðferðar- og stuðningsúrræðum að halda hafi stækkað verulega frá því að þessar upplýsingar komu fram.

Brýnar úrbætur.
    Alþingi kemst ekki hjá því að taka upp alvarlega umræðu um herta refsingu fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum og skoða sérstaklega hvernig fyrningu í þessum málum er háttað. Sérstaklega þarf að kanna réttarstöðu þeirra fjölmörgu barna og unglinga sem hafa mátt þola kynferðislegt ofbeldi. Má þar nefna atriði eins og skýrslutöku af börnum yngri en 18 ára, hvaða sérbúnaður skuli skuli vera tiltækur og hvort unnt sé að koma upp fjarfundabúnaði við héraðsdómstóla landsins. Rannsaka verður hvort þörf sé á að herða refsiúrræði og hverju það kunni að skila, hvort sýknudómum verði áfrýjað til Hæstaréttar í meira mæli en nú og hvernig dómstólar nýta þann refsiramma sem til staðar er í núgildandi löggjöf. Kanna þarf hvernig betur er hægt að tryggja aðbúnað og aðstöðu þeirra sem leita réttar síns vegna kynferðisbrota, enda ljóst að hér er um mjög vandmeðfarin tilfinningamál að ræða og ber opinberum aðilum skylda til að auðvelda þolendum kæru- og dómsferlið eins og kostur er. Sömuleiðis er brýn þörf á að bæta stuðning og meðferðarúrræði fyrir fórnarlömb kynferðisbrota. Þá þarf að benda á mögulegar leiðir til að hvetja þá sem beittir eru kynferðislegu ofbeldi til að kæra glæpinn, auk þess sem kannaður verði möguleiki á því að skilgreina tímafresti og forgang mála við rannsókn mála hjá lögregluyfirvöldum. Jafnframt verður að telja nauðsynlegt að skoðaðar verði þær skyldur sem hvíla á barnaverndarnefndum. Sálfræðingafélag Íslands hefur til dæmis viljað leggja áherslu á að gagnkvæm tilkynningar skylda ríki á milli barnaverndarnefndar og lögreglu og að barnaverndarnefndum verði gert skylt að óska opinberrar rannsóknar allra mála sem varða meint kynferðisbrot gegn börnum. Enn fremur verður að athuga starfshætti dómstóla, m.a. meta hvort skylt ætti að vera að kveðja til meðdómendur með sérfræðikunnáttu þegar fjallað er um kynferðisbrot gegn börnum.
    Ástæða er til að endurskoða lagaákvæði um kynferðisbrot gagnvart börnum. Í lögum er engin lágmarksrefsing tilgreind við slíkum brotum en hámarksrefsing er 12 ára fangelsi, allt eftir aldri barns og skyldleika geranda við það. Hins vegar er í lögunum ákvæði um lágmarksrefsingu fyrir nauðgun, eins árs fangelsisvistun, og hámarksrefsing er 16 ár, en því ákvæði er beitt ef ofbeldi eða er beitt eða því hótað, án tillits til aldurs þolanda. Erfitt er að sjá af hverju ekki er sambærilegt lágmarksákvæði hérlendis vegna kynferðislegs ofbeldis gagnvart börnum. Í Noregi er í slíkum málum lágmarksrefsing eitt ár og í Svíþjóð fangelsisvist að lágmarki tvö ár. Það skýrir væntanlega að einhverju leyti að dómar hér á landi eru mun vægari að hér er engin lágmarksrefsing vegna kynferðisbrota gegn börnum.

Fyrirbyggjandi aðgerðir.
    Huga verður að fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir að börn og unglingar verði þolendur kynferðisofbeldis. Í því sambandi hlýtur staða gerenda að verða skoðuð og þau meðferðarúrræði sem þeim gefst kostur á. Rannsóknir hafa sýnt að kynferðisbrotamenn hafi takmarkaða samhygð með öðrum og eigi erfitt með að setja sig í spor annarra. Þeir eiga það jafnframt til að líta á börn sem hluti (e. objects) fremur en manneskjur. Samkvæmt upplýsingum frá Stígamótum eru um 20% kynferðisbrotamanna yngri en 18 ára. Telja verður mikilvægt að unnt sé að grípa inn í hegðun þeirra og reyna að veita þeim aðstoð. Þannig gæti verið unnt að koma í veg fyrir áframhaldandi brotahegðun þeirra. Í ársskýrslu Barnaverndarstofu fyrir árið 2003 kemur fram að meintir gerendur í málum þeirra barna sem greindu frá kynferðisofbeldi í skýrslutöku fyrir dómi hafi verið á aldrinum 15–59 ára og meðalaldur þeirra um 30 ár, sem er um 15 árum lægri meðalaldur en árið áður. Þegar tengsl geranda og þolanda eru skoðuð, kemur í ljós að í 84% tilvika þekkir gerandi til barns, er t.d. tengdur því fjölskylduböndum. Sjaldgæft er að gerendur séu barni ókunnugir með öllu.

Viðbrögð við ofbeldi.
    Mikilvægt er að þeir sem koma að kynferðisbrotamálum verði meðvitaðri um hvernig bregðast eigi við. Talið er að í einungis 1,6% tilfella hafi börn leitað aðstoðar hjá starfsfólki skóla. Telja verður að átak þurfi að gera í menntun fagfólks þannig að stöðugt sé minnt á ábyrgð og skyldur þegar kynferðisbrot gegn börnum eru annars vegar. Bent hefur verið á dæmi þess að starfsfólk skóla hafi veigrað sér við að taka á alvarlegum kynferðisbrotamálum vegna óöryggis og því hafi málum ekki verið sinnt eins og best væri á kosið.
    Ítreka verður að mjög brýnt er orðið að gera úttekt á breytingunum á lögum um meðferð opinberra mála 1999, einkum er varðar skýrslutökur dómara af börnum. Í því sambandi er ástæða til að benda á þá mismunun sem börn sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi búa við. Þeim börnum sem njóta aðstöðu Barnahúss er tryggð besta fáanlega þjónusta og tryggt er að þau fái læknisskoðun og meðferð þegar ástæða er til. Þetta er ekki unnt að tryggja ef skýrslutaka fer fram í dómhúsum, ekki er tryggt að sérfræðingar annist skýrslutöku og hvorki er trygging fyrir meðferð né læknisskoðun.
    Á fyrstu fimm starfsárum Barnahúss komu alls 678 börn í rannsóknarviðtöl og af þeim voru einungis 203 dómaraviðtöl, eða um 30%. Þetta merkir að í 70% tilvika kom lögregla ekki að rannsókn málanna. Sjálfsagt er engin ástæða til að lögregla komi að öllum þessum málum, t.d. þegar meintur gerandi er ósakhæfur eða grunur er á mjög veikum rökum reistur. Hins vegar eru þessar tölur áhyggjuefni þar sem búast má við að í nokkrum hluta þessara mála sé full ástæða til að lögregla komi að rannsókninni.
    Í fyrrgreindri ársskýrslu Barnaverndarstofu kemur fram að árið 2003 hafi verið tekin 210 rannsóknarviðtöl í Barnahúsi, sem er 26% aukning frá árinu 2002. Þess ber að geta að fjöldi rannsóknarviðtala felur hvorki í sér fjölda barna né fjölda mála þar sem sum börn koma í fleiri en eitt rannsóknarviðtal, önnur börn koma oftar en einu sinni vegna mismunandi mála og enn önnur greina frá fleiri en einu máli í sama viðtali. Um 51% þeirra barna sem komu í rannsóknarviðtal var innan við 10 ára. Alls var 110 börnum vísað í greiningar- og meðferðarviðtöl og er það 21% fjölgun frá árinu 2002. Stúlkur voru í miklum meiri hluta þeirra barna sem komu í Barnahús á árinu 2003 eða um 70% þeirra sem komu í rannsóknarviðtal.
    Mikilvægt er að í nefndinni, sem skipa á samkvæmt tillögunni, verði sérfræðingar á sviði kynferðisbrota. Flutningsmenn leggja áherslu á að í nefndina verði m.a. skipaðir fulltrúar stéttarfélaga geðlækna, félagsráðgjafa og sálfræðinga, auk fulltrúa Barnaverndarstofu, Stígamóta, lögregluyfirvalda og lögfræðinga eða dómara.
    Skoðun flutningsmanna er að víðtæk sátt ætti að nást á Alþingi um þetta mál, sem leitt gæti til úrbóta í kynferðisbrotamálum og bættrar stöðu þolenda.