Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 63. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 63 — 63. mál.
um verkefnið Djúpborun á Íslandi.
Jóhann Ársælsson, Kristján L. Möller, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Alþingi ályktar að fela iðnaðarráðherra að semja áætlun um það hvernig ljúka megi verkefninu Djúpborun á fimm til tíu árum. Í áætluninni, sem samin verði í samráði við forsvarsmenn verkefnisins og óháða sérfræðinga, verði gerð grein fyrir fjármagni sem til þyrfti og hversu mikið fé er líklegt að leggja þyrfti til í fjárlögum. Ráðherra kynni Alþingi þessa áætlun í formi skýrslu eða frumvarps á vorþingi 2007.
Tækniframfarir eru nú að skapa nýja vídd í orkumálum Íslendinga. Gangi eftir vonir manna um svokallaða djúpborun, sem nú er á tilraunastigi, má vinna um 3–5 sinnum meiri orku úr háhitasvæðum en menn hafa hingað til talið gerlegt. Þessi straumhvörf geta, ef rétt er á haldið, fært okkur nær viðunandi málamiðlun milli orkunýtingar- og náttúruverndarsjónarmiða en verið hefur um hríð. Jarðvarmavirkjanirnar yrðu mun vistvænni en áður miðað við orkuöflunargetu þar sem miklu meiri orka fengist úr hverri borholu en nú. Jarðvarmavirkjanir yrðu mun hagkvæmari kostur til orkuframleiðslu á Íslandi en nú er miðað við vatnsaflsvirkjanir.
Rannsóknarverkefnið „Djúpborun á Íslandi“ er nú komið á fullt skrið. Tilraunahola sem reynd var á Reykjanesi hrundi við blástursprófun og nýtist ekki verkefninu. Nú er verið að undirbúa nýja holu á Kröflusvæðinu og verður það fyrsta djúpborunarholan. Aðstandendur verkefnisins gera ráð fyrir að um 15 ár kunni að líða þar til víst er um árangur í þremur tilraunaholum sem boraðar yrðu hver á eftir annarri ef fjármagn fæst til. Þeim áfanga mætti þó ná á mun skemmri tíma ef fjármagn væri tryggt, með því að bora tilraunaholurnar með styttra millibili eða á sama tíma. Með þeim hætti hefði til dæmis ekki orðið sú töf sem nú stendur eftir að hætta varð við Reykjanesholuna.
Rannsóknarverkefnið Djúpborun á Íslandi (IDDP).
Rannsóknarverkefninu Djúpborun á Íslandi var hrundið úr vör árið 2000. Það gerðu þrjú helstu orkufyrirtæki landsins, Hitaveita Suðurnesja, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur í samráði við Orkustofnun og sérfræðingar hennar á þáverandi rannsóknasviði. Verkefnisstjóri er Guðmundur Ómar Friðleifsson jarðfræðingur.
Verkefnið felst í því að skera úr um hvort unnt er að bora 4–5 km eftir jarðhitavatni í svokölluðu yfirmarksástandi í rótum háhitasvæða, 400–600° C heitu, og koma því í nýtanlegu horfi upp á yfirborðið. Til samanburðar er venjuleg háhitahola um 2 km djúp og gefur af sér 240–340° C heita blöndu af vatni og gufu. Það sem úr djúpholunni kemur er yfirhituð þurrgufa með miklum mun meira orkuinnihald en venjuleg jarðgufa. Í slíkri gufu myndast engir vatnsdropar og því engin sýra þannig að tæring á ekki að vera vandamál. Til nýtingar þarf að ná yfirmarksvatninu úr iðrum jarðar þannig að það blandist ekki efra jarðvatni, og þarf því stálfóðringar í holurnar niður á hið æskilega dýpi. Djúphola af þessu tagi er talin geta gefið allt að tífalt afl „venjulegrar“ holu (líklega allt að 50 MW í stað 4–5 MW nú), og eins og áður segir kynni að vera unnt að vinna 3–5 sinnum meiri orku en nú úr hverju háhitasvæði sem tekið er til virkjunar. Borholur á hverju svæði, til rannsókna og vinnslu, verða talsvert færri en nú er þörf á og sjálf jarðvarmavinnslan er því umhverfisvænni þar sem rask minnkar við vegi og borteiga.
Forathugun stóð árin 2001–2003 og lauk með ítarlegri skýrslu. Áformað var að bora þrjár tilraunaholur alls. Hitaveita Suðurnesja bauð fram hina fyrstu þeirra haustið 2004, á Reykjanesi. Borun hófst þar í nóvember 2004 og var boruð þar dýpsta háhitahola landsins í tveimur áföngum, alls 3082 m á dýpt. Í nóvember 2005 var holunni hleypt upp en hún reyndist ekki nógu traust, hrundi saman og eyðilagðist við lagfæringartilraunir í febrúar 2006.
Ekki reyndist unnt að fá aðra heppilega holu á Reykjanessvæðinu og var ákveðið að færa sig um set á svæði Landsvirkjunar norður í Kröflu. Við upphaf haustþings var verið að auglýsa útboð eftir efni í holuna. Einnig hefur komið í ljós að enginn bor virðist vera tiltækur hjá borfyrirtækjum fyrr en í byrjun árs 2008, og er því útlit fyrir að ekki sé hægt að byrja fyrr. Töfin nemur því að minnsta kosti tveimur árum.
Ef fé rennur ekki hraðar til verkefnisins en nú er gert ráð fyrir kann að þurfa að bíða til um 2020 eftir niðurstöðum, þ.e. ef nægilegar vísbendingar fást ekki fyrr en að fullboruðum öllum þremur rannsóknarholunum. Hugsanlegt er þó að fyrsta holan gæti skilað árangri að liðnum tveimur til þremur árum. Framkvæmdahraði og forgangsröð áfanga stjórnast nú að nokkru af því hvernig ástatt er hjá orkufyrirtækjunum við virkjunarframkvæmdir.
Með meira fjármagni kann að vera hægt að flýta verulega fyrir þannig að víst yrði um árangur að liðnum fimm til tíu árum. Að því ber ríkisvaldinu að stuðla, í félagi við orkufyrirtækin íslensku og erlenda rannsóknasjóði, þar sem sannkallaðir þjóðarhagsmunir liggja við.
Heildarkostnaður við verkefnið er nú talinn munu verða um 5–6 milljarðar kr. Í áætlun um lok núverandi áfanga við fyrstu holuna er gert ráð fyrir að orkufyrirtækin leggi hvert um sig fram sjöttung fjármagns. Frá tveimur erlendum rannsóknasjóðum kemur samtals sjöttungur, og ríkisstjórnin hefur gefið fyrirheit um fimmta sjöttunginn. Við upphaf haustþings stóð enn eftir síðasti sjöttungurinn en góðar vonir voru um að hann fengist hjá áhugasömum einkaaðila eða í tengslum við næstu rammaáætlun Evrópusambandsins eða sem styrkur. Um framhaldið er svo ekkert ákveðið.
Í þessari tillögu er gert ráð fyrir því að iðnaðarráðherra semji áætlun um það hvernig ljúka megi rannsóknarverkefninu Djúpborun á Íslandi á fimm til tíu árum. Í áætluninni sé gerð rækileg grein fyrir fjármagni sem til þyrfti og sagt til um hversu mikið fé er líklegt að leggja yrði til í fjárlögum næstu ár. Til að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir er eðlilegt að stefna að því að áætlunin liggi fyrir nú á vorþinginu, enda eiga allflestar upplýsingar að vera tiltækar og aðgengilegar hjá verkefnisstjórninni og aðstandendum verkefnisins.
Ríkisvaldið hlýtur að stuðla að því – í félagi við orkufyrirtækin íslensku og erlenda rannsóknasjóði – að sem allra fyrst fáist niðurstöður úr þessari rannsókn. Djúpborunartæknin gæti í einu vetfangi gjörbreytt stöðunni í íslenskum orkumálum og skapað færi á samstöðu um forgangsröð við virkjun, verndun og aðra nýtingarkosti sem nú er ekki í sjónmáli.
Háhitasvæði á Íslandi til orkuöflunar umfram þau sem nú þegar eru virkjuð verður að velja af mikilli kostgæfni. Vel sýnileg háhitasvæði á landinu eru aðeins um 20–25 eftir því hvernig á er litið, því sumum þeirra sem venjulega er talað um í einu lagi má í raun skipta í nokkur svæði. Að auki eru svæði án verulegra ummerkja á yfirborði og enn önnur undir jökli án greinilegra ummerkja nema t.d. í efnasamsetningu áa sem frá þeim streyma. Þetta á við um svæði undir Mýrdals-, Hofs- og Tindfjallajökli, og um svæði nálægt Prestahnjúk og Hrúthálsum.
Af þessum 20–25 svæðum hefur um helmingi þegar verið raskað á einn eða annan hátt vegna orkuöflunar eða annarra framkvæmda. Þessi svæði eru þegar virkjuð til orkuöflunar, a.m.k. að hluta: Svartsengi, Reykjanes, Hengilssvæðið, Námafjall og Krafla. Köldukvíslarbotnum hefur verið sökkt og framkvæmdir eru hafnar á Þeistareykjum. Eftir stendur um það bil tylft óraskaðra eða lítt raskaðra háhitasvæða, m.a. Brennisteinsfjöll, hlutar Hengilssvæðisins, Kerlingarfjöll, Hveravellir, Torfajökulssvæðið, Vonarskarð, Öskjusvæðið, Fremri- Námur, Gjástykki, svæðið í Öxarfirði, Grímsvötn og Kverkfjöll. Að auki má telja svæðin í Krýsuvík og við Geysi sem hefur verið raskað að hluta.
Verðmæti náttúru á háhitasvæðunum hefur ekki verið rannsakað í heild, og náttúrufarsrannsóknir á óröskuðu svæðunum eru afar takmarkaðar. Sum hinna óröskuðu svæða nýtast illa til orkuvinnslu, og gera má ráð fyrir verulegri andstöðu við orkuframkvæmdir á mörgum svæðanna. Til dæmis eru fjögur þeirra nefnd sem verndarsvæði í tillögum Samfylkingarinnar um „Fagra Ísland“: Kerlingarfjöll, Brennisteinsfjöll, Torfajökulssvæðið og Grændalur. Miklu skiptir því að geta fullnýtt þau svæði sem þegar eru virkjuð og búa svo um hnútana að frekari nýting gangi eins lítið á umhverfi og nokkur kostur er á.
Þessi þingsályktunartillaga er flutt í samhengi við önnur þingmál Samfylkingarinnar um náttúruvernd og orkuframkvæmdir á yfirstandandi löggjafarþingi.
Málið kom fyrst fram á Alþingi í síðasta löggjafarþingi og var þá sent út til umsagnar. Umsagnir sem bárust voru allar jákvæðar. Þar á meðal voru Íslenskar orkurannsóknir, Orkustofnun, Byggðastofnun, Samorka, Norðurorka, Eyþing, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Í síðastnefndu umsögninni er þó lögð áhersla á að stuðningur við djúpborunarrannsóknir verði ekki til að skerða annað rannsóknafé af hálfu ríkisins. Vegna þess skal tekið fram að það er ekki ætlunin af hálfu flutningsmanna, og er gert ráð fyrir stórauknum náttúrufarsrannsóknum næstu árin í öðrum tillögum Samfylkingarinnar af sama meiði.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 63 — 63. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um verkefnið Djúpborun á Íslandi.
Flm.: Mörður Árnason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Jóhann Ársælsson, Kristján L. Möller, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Alþingi ályktar að fela iðnaðarráðherra að semja áætlun um það hvernig ljúka megi verkefninu Djúpborun á fimm til tíu árum. Í áætluninni, sem samin verði í samráði við forsvarsmenn verkefnisins og óháða sérfræðinga, verði gerð grein fyrir fjármagni sem til þyrfti og hversu mikið fé er líklegt að leggja þyrfti til í fjárlögum. Ráðherra kynni Alþingi þessa áætlun í formi skýrslu eða frumvarps á vorþingi 2007.
Greinargerð.