Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 88. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 88 — 88. mál.
um háhraðanettengingar í dreifbýli og á smærri þéttbýlisstöðum.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að undirbúa frumvarp til laga sem tryggi að allir landsmenn eigi kost á háhraðanettengingu óháð búsetu. Málið verði afgreitt fyrir þinglok í vor.
Háhraðanettenging flokkast sem grunnþjónusta í nútímasamfélagi að mati flutningsmanna þessarar tillögu, rétt eins orkuveita og símaþjónusta. Í skriflegu svari samgönguráðherra við fyrirspurn um háhraðatengingar á 130. löggjafarþingi kemur fram að yfir 22.000 Íslendingar hafa ekki slíka tengingu (sjá fylgiskjal). Síminn og fjarskiptafyrirtækin meta það svo að ekki sé arðvænlegt að leggja ADSL-tengingar í byggðarlögum þar sem íbúar eru færri en 150. Þarna ráða gróðasjónarmiðin för en inntak þessarar tillögu er hins vegar að það sé skylda samfélagsins að tryggja öllum Íslendingum háhraðanettengingu óháð búsetu. Án þess er ekki um að ræða jafnstöðu við aðra um þátttöku í nútímasamfélagi. Því eiga stjórnvöld að semja við fjarskiptafyrirtækin um að veita, eða hafa milligöngu um að veita, slíka þjónustu.
Á meðan svo háttar til að mikill fjöldi Íslendinga hefur ekki háhraðanettengingu og góðan aðgang að upplýsingahraðbrautinni eru heimabyggðir þeirra ósamkeppnishæfar þegar kemur að vali fólks og fyrirtækja til búsetu. Byggðirnar eru annars flokks í þessu tilliti og íbúum þeirra er mismunað af hálfu samfélagsins.
Sprottið hafa upp nokkur öflug fyrirtæki sem veita háhraðanettengingar í dreifbýli í gegnum örbylgju. Þau hafa veitt þessa þjónustu í mörgum byggðarlögum sem ekki hafa háhraðanettengingu og gefst íbúum þar þá í raun og veru í fyrsta sinn kostur á að kaupa sér ágæta háhraðanettengingu. Þó að það jafnist ekki á við fullkomna háhraðanettengingu og þá sítengingu sem hún býður upp á er þetta samt að einhverju leyti sambærilegt við það. Þjónustu þessara fyrirtækja á að nýta til að tryggja öllum heimilum landsins möguleika á háhraðanettengingu enda mikil þekking og færni til hjá þessum fyrirtækjum.
Kostur á háhraðanettengingu snýst um sanngirni og jöfn tækifæri allra landsmanna til búsetu. Háhraðanettengingar eru grunnþjónusta sem sker úr um hvort svæði telst búsetukostur fyrir fólk eða ekki. Með háhraðanettengingu er verið að veita íbúum dreifbýlisins og smærri þéttbýlisstaða jafnstöðu, jöfn tækifæri á við aðra íbúa Íslands til að nýta sér þá ótal möguleika sem samskiptabyltingin hefur fært okkur nútímamönnum til menntunar, jöfn tækifæri til að afla upplýsinga, skapa atvinnutækifæri og eiginlega vinna við hvað sem er, að heiman að hluta. Fjarvinnsla, fjarnám og aðrir slíkir möguleikar nýtast ekki þeim sem ekki hafa öfluga nettengingu.
Þá er það stór þáttur í menntun, uppeldi og þátttöku barna og unglinga í nútímasamfélagi að hafa fyrsta flokks tengingu við netið til að þau megi nýta það til góðra hluta sér til afþreyingar, upplýsingaöflunar og sjálfsmenntunar hvers konar. Netið býður upp á ótal leiðir til símenntunar með býsna einföldum hætti. Í þessari byltingu og þróun þurfa allir landsmenn að geta tekið þátt. Því er brýnt að stjórnvöld hafi forustu um að tryggja að allir eigi þess kost að hafa háhraðanettengingu, óháð búsetu.
Fylgiskjal.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða sveitarfélög á landinu hafa háhraðatengingar og hver ekki?
2. Hver er íbúafjöldi þeirra sveitarfélaga sem ekki hafa háhraðatengingar, sundurgreint eftir sveitarfélögum?
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi listum.
Sveitarfélög og byggðarkjarnar sem hafa möguleika til ADSL-tenginga.
Sveitarfélög (byggðarkjarnar) sem hafa möguleika til háhraðatenginga með örbylgju og ekki hafa verið talin áður.
Mannfjöldi eftir byggðarkjörnum, 2003.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 88 — 88. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um háhraðanettengingar í dreifbýli og á smærri þéttbýlisstöðum.
Flm.: Björgvin G. Sigurðsson, Kristján L. Möller, Jón Gunnarsson, Einar Már Sigurðarson, Guðrún Ögmundsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Valdimar L. Friðriksson, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Össur Skarphéðinsson.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að undirbúa frumvarp til laga sem tryggi að allir landsmenn eigi kost á háhraðanettengingu óháð búsetu. Málið verði afgreitt fyrir þinglok í vor.
Greinargerð.
Háhraðanettenging flokkast sem grunnþjónusta í nútímasamfélagi að mati flutningsmanna þessarar tillögu, rétt eins orkuveita og símaþjónusta. Í skriflegu svari samgönguráðherra við fyrirspurn um háhraðatengingar á 130. löggjafarþingi kemur fram að yfir 22.000 Íslendingar hafa ekki slíka tengingu (sjá fylgiskjal). Síminn og fjarskiptafyrirtækin meta það svo að ekki sé arðvænlegt að leggja ADSL-tengingar í byggðarlögum þar sem íbúar eru færri en 150. Þarna ráða gróðasjónarmiðin för en inntak þessarar tillögu er hins vegar að það sé skylda samfélagsins að tryggja öllum Íslendingum háhraðanettengingu óháð búsetu. Án þess er ekki um að ræða jafnstöðu við aðra um þátttöku í nútímasamfélagi. Því eiga stjórnvöld að semja við fjarskiptafyrirtækin um að veita, eða hafa milligöngu um að veita, slíka þjónustu.
Á meðan svo háttar til að mikill fjöldi Íslendinga hefur ekki háhraðanettengingu og góðan aðgang að upplýsingahraðbrautinni eru heimabyggðir þeirra ósamkeppnishæfar þegar kemur að vali fólks og fyrirtækja til búsetu. Byggðirnar eru annars flokks í þessu tilliti og íbúum þeirra er mismunað af hálfu samfélagsins.
Sprottið hafa upp nokkur öflug fyrirtæki sem veita háhraðanettengingar í dreifbýli í gegnum örbylgju. Þau hafa veitt þessa þjónustu í mörgum byggðarlögum sem ekki hafa háhraðanettengingu og gefst íbúum þar þá í raun og veru í fyrsta sinn kostur á að kaupa sér ágæta háhraðanettengingu. Þó að það jafnist ekki á við fullkomna háhraðanettengingu og þá sítengingu sem hún býður upp á er þetta samt að einhverju leyti sambærilegt við það. Þjónustu þessara fyrirtækja á að nýta til að tryggja öllum heimilum landsins möguleika á háhraðanettengingu enda mikil þekking og færni til hjá þessum fyrirtækjum.
Kostur á háhraðanettengingu snýst um sanngirni og jöfn tækifæri allra landsmanna til búsetu. Háhraðanettengingar eru grunnþjónusta sem sker úr um hvort svæði telst búsetukostur fyrir fólk eða ekki. Með háhraðanettengingu er verið að veita íbúum dreifbýlisins og smærri þéttbýlisstaða jafnstöðu, jöfn tækifæri á við aðra íbúa Íslands til að nýta sér þá ótal möguleika sem samskiptabyltingin hefur fært okkur nútímamönnum til menntunar, jöfn tækifæri til að afla upplýsinga, skapa atvinnutækifæri og eiginlega vinna við hvað sem er, að heiman að hluta. Fjarvinnsla, fjarnám og aðrir slíkir möguleikar nýtast ekki þeim sem ekki hafa öfluga nettengingu.
Þá er það stór þáttur í menntun, uppeldi og þátttöku barna og unglinga í nútímasamfélagi að hafa fyrsta flokks tengingu við netið til að þau megi nýta það til góðra hluta sér til afþreyingar, upplýsingaöflunar og sjálfsmenntunar hvers konar. Netið býður upp á ótal leiðir til símenntunar með býsna einföldum hætti. Í þessari byltingu og þróun þurfa allir landsmenn að geta tekið þátt. Því er brýnt að stjórnvöld hafi forustu um að tryggja að allir eigi þess kost að hafa háhraðanettengingu, óháð búsetu.
Fylgiskjal.
Svar samgönguráðherra við fyrirspurn
Björgvins G. Sigurðssonar um háhraðatengingar.
(592. mál á 130. löggjafarþingi.)
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða sveitarfélög á landinu hafa háhraðatengingar og hver ekki?
2. Hver er íbúafjöldi þeirra sveitarfélaga sem ekki hafa háhraðatengingar, sundurgreint eftir sveitarfélögum?
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi listum.
Sveitarfélög og byggðarkjarnar sem hafa möguleika til ADSL-tenginga.
| Akranes | Akureyri | Bessastaðahreppur | Blönduós |
| Bolungarvík | Borgarnes | Dalvík | Egilsstaðir |
| Eskifjörður | Eyrarbakki | Fáskrúðsfjörður | Garðabær |
| Garður | Grindavík | Grundarfjörður | Hafnarfjörður |
| Hella | Hellissandur | Húsavík | Hvammstangi |
| Hveragerði | Hvolsvöllur | Höfn | Ísafjörður |
| Keflavík | Kópavogur | Mosfellsbær | Neskaupstaður |
| Njarðvík, Innri og Ytri | Ólafsfjörður | Ólafsvík | Patreksfjörður |
| Reyðarfjörður | Reykjavík | Rif | Sandgerði |
| Sauðárkrókur | Selfoss | Seltjarnarnes | Seyðisfjörður |
| Siglufjörður | Skagaströnd | Stykkishólmur | Tálknafjörður |
| Vestmannaeyjar | Vogar | Vopnafjörður | Þorlákshöfn |
Sveitarfélög (byggðarkjarnar) sem hafa möguleika til háhraðatenginga með örbylgju og ekki hafa verið talin áður.
| Bifröst | Borðeyri | Drangsnes | Flateyri |
| Grímsnes- og Grafningshreppur | Hnífsdalur | Hólmavík | Hvanneyri |
| Stokkseyri | Suðureyri | Vík í Mýrdal (1.4.04) | Þingeyri |
| Hjalteyri | Kristnes | Hrafnagil |
Mannfjöldi eftir byggðarkjörnum, 2003.
| ADSL | Alls | Alls | Byggðarlög án háhraðatenginga | ||
| * | Hafnarfjörður | 21.207 | |||
| * | Garðabær | 8.878 | |||
| * | Álftanes, Bessastaðahreppi | 1.886 | |||
| * | Kópavogur | 25.352 | |||
| * | Reykjavík | 112.490 | |||
| * | Seltjarnarnes | 4.577 | |||
| * | Mosfellsbær, meginbyggð | 6.376 | |||
| * | Mosfellsbær, Mosfellsdalur | 213 | |||
| * | Grundarhverfi, Reykjavík | 507 | |||
| Strjálbýli á höfuðborgarsvæði | 431 | ADSL/örbylgja | |||
| * | Grindavík | 2.434 | |||
| Hafnir, Reykjanesbæ | 120 | 120 | |||
| * | Sandgerði | 1.389 | |||
| * | Garður, Gerðahreppi | 1.290 | |||
| * | Keflavík, Reykjanesbæ | 7.963 | |||
| * | Njarðvík, Reykjanesbæ | 2.825 | |||
| * | Vogar, Vatnsleysustrandarhreppi | 833 | |||
| Strjálbýli á Suðurnesjum | 99 | 99 | ? | ||
| * | Akranes | 5.588 | |||
| *** | Hvanneyri, Borgarfjarðarsveit | 193 | e-max | ||
| Kleppjárnsreykir, Borgarfjarðarsveit | 45 | 45 | |||
| Reykholt, Borgarfjarðarsveit | 33 | 33 | |||
| * | Borgarnes, Borgarbyggð | 1.770 | |||
| *** | Bifröst, Borgarbyggð | 210 | e-max | ||
| * | Hellissandur, Snæfellsbæ | 412 | |||
| * | Rif, Snæfellsbæ | 144 | |||
| * | Ólafsvík, Snæfellsbæ | 1.025 | |||
| * | Grundarfjörður, Grundarfjarðarbæ | 843 | |||
| * | Stykkishólmur | 1.162 | |||
| Búðardalur, Dalabyggð | 246 | 246 | |||
| Strjálbýli á Vesturlandi | 2.767 | 2.767 | ? | ||
| Reykhólar, Reykhólahreppi | 121 | 121 | |||
| * | Patreksfjörður, Vesturbyggð | 701 | |||
| * | Tálknafjörður, Tálknafjarðarhreppi | 327 | |||
| Bíldudalur, Vesturbyggð | 233 | 233 | |||
| Krossholt, Vesturbyggð | 14 | 14 | |||
| *** | Þingeyri, Ísafjarðarbæ | 330 | Snerpa | ||
| *** | Flateyri, Ísafjarðarbæ | 307 | Snerpa | ||
| *** | Suðureyri, Ísafjarðarbæ | 331 | Snerpa | ||
| * | Bolungarvík | 944 | Snerpa | ||
| * | Ísafjörður | 2.596 | |||
| *** | Hnífsdalur | 419 | Snerpa | ||
| Súðavík, Súðavíkurhreppi | 191 | 191 | |||
| *** | Drangsnes, Kaldrananeshreppi | 88 | Snerpa | ||
| *** | Hólmavík, Hólmavíkurhreppi | 398 | Snerpa | ||
| *** | Borðeyri, Bæjarhreppi | 23 | e-max | ||
| Strjálbýli á Vestfjörðum | 814 | 814 | |||
| Laugabakki, Húnaþingi vestra | 82 | 82 | |||
| * | Hvammstangi, Húnaþingi vestra | 583 | |||
| * | Blönduós, Blönduóssbæ | 888 | |||
| * | Skagaströnd, Höfðahreppi | 582 | |||
| * | Sauðárkrókur, Sveitarfélaginu Skagafirði | 2.620 | |||
| Varmahlíð, Sveitarfélaginu Skagafirði | 133 | 133 | |||
| Hólar, Sveitarfélaginu Skagafirði | 92 | 92 | |||
| Hofsós, Sveitarfélaginu Skagafirði | 180 | 180 | |||
| * | Siglufjörður | 1.434 | |||
| Strjálbýli á Norðurlandi vestra | 2.551 | 2.551 | |||
| Grímsey, Grímseyjarhreppi | 93 | 93 | |||
| * | Ólafsfjörður, Ólafsfjarðarbæ | 994 | |||
| * | Dalvík, Dalvíkurbyggð | 1.461 | |||
| ** | Hrísey, Hríseyjarhreppi | 180 | Svar | ||
| Litli-Árskógssandur, Dalvíkurbyggð | 132 | 132 | |||
| Hauganes, Dalvíkurbyggð | 158 | 158 | |||
| *** | Hjalteyri, Arnarneshreppi | 45 | Tengir | ||
| * | Akureyri | 16.086 | |||
| *** | Kristnes, Eyjafjarðarsveit | 53 | Tengir | ||
| *** | Hrafnagil, Eyjafjarðarsveit | 136 | Tengir | ||
| Svalbarðseyri, Svalbarðsstrandarhreppi | 207 | 207 | |||
| Grenivík, Grýtubakkahreppi | 294 | 294 | |||
| Reykjahlíð, Skútustaðahreppi | 208 | ||||
| Laugar, Þingeyjarsveit | 94 | 94 | |||
| * | Húsavík, Húsavíkurbæ | 2.368 | |||
| Kópasker, Öxarfjarðarhreppi | 138 | 138 | |||
| ** | Raufarhöfn, Raufarhafnarhreppi | 252 | Svar | ||
| Þórshöfn, Þórshafnarhreppi | 370 | 370 | |||
| Strjálbýli á Norðurlandi eystra | 3.566 | 3.566 | |||
| Bakkafjörður, Skeggjastaðahreppi | 106 | 106 | |||
| * | Vopnafjörður, Vopnafjarðarhreppi | 569 | |||
| Fellabær, Fellahreppi | 373 | 373 | |||
| Borgarfjörður eystra, Borgarfjarðarhreppi | 97 | 97 | |||
| * | Seyðisfjörður | 730 | |||
| Hallormsstaður, Austur-Héraði | 59 | 59 | |||
| * | Egilsstaðir, Austur-Héraði | 1.721 | |||
| Eiðar, Austur-Héraði | 41 | 41 | |||
| * | Neskaupstaður, Fjarðabyggð | 1.400 | |||
| * | Eskifjörður, Fjarðabyggð | 972 | |||
| * | Reyðarfjörður, Fjarðabyggð | 671 | |||
| * | Fáskrúðsfjörður, Austurbyggð | 599 | |||
| Stöðvarfjörður, Austurbyggð | 262 | 262 | |||
| Breiðdalsvík, Breiðdalshreppi | 177 | 177 | |||
| Djúpivogur, Djúpavogshreppi | 385 | 385 | |||
| Nesjakauptún, Sveitarfélaginu Hornafirði | 85 | 85 | |||
| * | Höfn, Sveitarfélaginu Hornafirði | 1.740 | |||
| Strjálbýli á Austurlandi | 1.900 | 1.900 | |||
| Kirkjubæjarklaustur, Skaftárhreppi | 141 | 141 | |||
| *** | Vík í Mýrdal, Mýrdalshreppi | 296 | frá 1.4.04 | e-max | |
| * | Vestmannaeyjar | 4.344 | |||
| Skógar, Rangárþingi eystra | 26 | 26 | |||
| * | Hvolsvöllur, Rangárþingi eystra | 712 | |||
| * | Hella, Rangárþingi ytra | 635 | |||
| Rauðalækur, Rangárþingi ytra | 34 | 34 | |||
| *** | Stokkseyri, Sveitarfélaginu Árborg | 465 | e-max | ||
| * | Eyrarbakki, Sveitarfélaginu Árborg | 580 | |||
| * | Selfoss, Sveitarfélaginu Árborg | 5.068 | |||
| Flúðir, Hrunamannahreppi | 296 | 296 | |||
| Laugarás, Bláskógabyggð | 120 | 120 | |||
| Reykholt, Bláskógabyggð | 164 | 164 | |||
| Laugarvatn, Bláskógabyggð | 176 | 176 | |||
| *** | Sólheimar, Grímsnes- og Grafningshreppi | e-max | |||
| Árbæjarhverfi, Sveitarfélaginu Ölfusi | 58 | 58 | ? | ||
| * | Hveragerði | 1.902 | |||
| * | Þorlákshöfn, Sveitarfélaginu Ölfusi | 1.332 | |||
| Strjálbýli á Suðurlandi | 5.144 | 5.144 | ? | ||
| 290.505 | 22.417 | ||||
| * Með ADSL-möguleika. | |||||
| ** Með gervihnattasamband. | |||||
| *** Með örbylgjusamband. | |||||
| ? Óljós staðsetning, hugsanlega möguleikar til háhraðatenginga að hluta ADSL/örbylgja. Höfuðborgarsvæðið og nokkur önnur sveitarfélög eru einnig þjónustuð með örbylgju, t.d. Selfoss, Eyrarbakki og Bolungarvík, Borgarnes og Akureyri. | |||||
| Skýringar: Mannfjöldatölur miðast við 1. desember 2003 og eru byggðar á upplýsingum frá Hagstofu Íslands. | |||||