Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 154. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 154  —  154. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um forvarnir gegn fíkniefnum og meðferð ungra fíkniefnaneytenda.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hver eru framlög hins opinbera til forvarna gegn ólöglegum fíkniefnum nú og hver voru árleg framlög 1995–2005 á núvirði? Hverjir hafa fengið framlögin og hversu mikið hefur hver um sig fengið?
     2.      Hver eru framlög hins opinbera til meðferðar ungra fíkniefnaneytenda á yfirstandandi ári, hver voru framlögin árin 1998–2005 og hver eru áætluð framlög árið 2007?


Skriflegt svar óskast.