Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 198. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 199  —  198. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um eldfjallagarð á Reykjanesi.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvernig hefur verið brugðist við hugmyndum Landverndar o.fl. um stofnun eldfjallagarðs á Reykjanesi?
     2.      Hvernig fellur hugmyndin að tillögu Umhverfisstofnunar að náttúruverndaráætlun?
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að slíkur garður verði að veruleika?