Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 200. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 201  —  200. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um sjófuglarannsóknir og breytingar á náttúrufari.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvað líður samstarfi Náttúrufræðistofnunar Íslands, Hafrannsóknastofnunarinnar og Háskóla Íslands um sjófuglarannsóknir?
     2.      Hver er staða þeirra stofna sem helst hefur hallað á undanfarin sumur, svo sem kríu, stuttnefju og langvíu?
     3.      Kunna fræðimenn í undirstofnunum ráðuneytisins skýringar á bágu ástandi toppskarfs í Breiðafirði nú í haust?
     4.      Telur ráðherra að breytingar á stofnum sjófugla tengist yfirstandandi loftslagsbreytingum, en þeir eru sagðir breytast hratt við helstu grannlönd okkar á líkan hátt og hér virðist raunin?