Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 209. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 210  —  209. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um bifreiða-, ferða- og risnukostnað.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



    Hver var bifreiða-, ferða- og risnukostnaður ríkisins árið 2005, sundurliðaður eftir ráðuneytum og stofnunum, og hvaða breytingar urðu milli áranna 2004 og 2005, sundurliðaðar á sama hátt?


Skriflegt svar óskast.